Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Qupperneq 8

Læknaneminn - 01.07.1979, Qupperneq 8
endur þar frekar en á öðrum sviðum vísindamenn- ingar nútímans. Samt er okkur skylt að hafa í huga hlutverk há- skólans að veita vísindalega þjálfun nemendum sín- um. Elín: Markmið með kennslu grunngreina í lækna- deild er að nemendur öðlist haldgóða þekkingu á byggingu og starfsemi heilbrigðs líkama, og hlut- verk kennslunnar er að vinna að því marki. Flestir sem láta sig menntun lækna varða, telja slíka þekk- ingu nauðsynlega undirstöðu undir nám í læknis- fræði. Kennsla í líffærafræði miðlar þekkingu á bygg- ingu líkamans, en þekkingarmiðlun á starfsemi líf- andi likama kemur í hlut lífeðlis- og lífefnafræði. Eg tel mig mega fullyrða að allir kennarar jafnt sem nemendur í læknadeild séu mér sammála um að viss lágmarksþekking í þessum grunnfræðum sé nauð- synleg hverjum lækni og þá einnig hverjum lækna- nema. Hins vegar greinir menn á um, hvar markið skuli sett og tel ég að menn verði seint á eitt sáttir í þeim efnum. Lífefnafræðin er tiltölulega ung fræðigrein, hvort heldur sem litið er á stöðu hennar innan biologiu eða innan læknisfræðinnar. Fræðigreinin er auk þess meira „abstract“ en líffærafræði og lífeðlis- fræði og gildi hennar því ekki jafnaugljóst öllum, eins og gildi hinna grunngreinanna tveggja. Má vera að þessi tvö atriði, þ. e. æska og abstraction grein- arinnar valdi því að iífefnafræðin býr við minni hylli nemenda en skyldi. Hörður: Markmið allrar kennslu í læknadeild er oð veita nemendum fræðslu og menntun á sviði læknisfræði, en próf í þeirri grein er eitt af þeim skilyrðum, sem maður þarf að uppfylla áður en honum er veitt lækningaleyfi og leyfi lil að nota starfsheitið Iæknir. Líta verður á læknisfræði sem sérhæfða námsleið í líffræði mannsins (heilbrigðs og sjúks) annars veg- ar, og lækningatækni hins vegar. I flestum lækna- skólum er lögð veruleg áhersla á hina almennu líf- fræðimenntun læknanemans, og tekur hún upp væn- an skerf af námstímanum. Hins vegar má hugsa sér læknanám á öðrum grundvelli, en út í þá sálma verður ekki farið hér. Markmið lífefnafræðikennslu í læknadeild er að veita læknanemanum fræðslu og menntun í lífefna- fræði, sem að magni til er í hóflegu hlutfalli við aðr- ar kennslugreinar deildarinnar. Hvað er hóflegt hlut- fall ræðst annars vegar af því hve mikinn skilning og þekkingu á greininni er nauðsynlegt að nemandi hafi til að geta tileinkað sér aðrar námsgreinar, sem kenndar eru samhliða eða síðar á námstímonum. Hins vegar ræðst hið hóflega hlutfall af stöðu og mikilvægi greinar sem grundvallargreinar og vaxtar- brodds líffræði almennt og læknisfræði sérstaklega. Sá, sem biður um nákvæma formúlu verður hins vegar að fara bónleiður til búðar vegna þess að það, hve mikið rúm hver kennslugrein fær í svo fjölþættu námi sem nám í læknisfræði er, verður aldrei reikn- að út eða ákvarðað með óyggjandi rökum. Ekki má gleyma því, að sú grunnmenntun, sem læknaneminn hlýtur í háskóla, þarf að endast hon- um á einn eða annan hátt í áratugi. Þó að hann síðar stundi framhaldsnám eða hljóti endurmenntun, er ólíklegt að hann hafi tækifæri lil að bæta um slaka un d irstöðumenn tun. Þorvaldur: Kenna læknanemum undirstöðuatriði um efni þau, er byggja upp líkamann og helstu atriði um efnabreytignar, sem eiga sér stað í lifandi heil- brigðum frumum. Þá er kennt um umhverfi það, er frumurnar búa í, hvernig frumur stjórna því og hvernig starf fruma er samhæft með stjórnun á 6 LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.