Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 51

Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 51
Frumvarp til lyfjialaya 1950 (Flutt á 70. löggjafarþingi 1950, þingskjal 116) Frumvarp þetta var samið að tilhlutan Apótekara- félags íslands og Lyfjafræðingafélags íslands. Það var flutt á sama þingi og frumvarpið til lyfsölulaga, er ræðir um í 9. lið á undan, var flutt í seinna skipti ( þingskjal 112). Astæða er þó til þess að ætla, að frumvarpið hafi í raun verið samið nokkrum ár- um áður og þá sent Alþingi, en ekki verið flutt (sbr. greinargerð með frumvarpi til lyfsölulaga 1962, 83. löggjafaþing, þingskjal 54). Líta má svo á, að frumvarpið sé annars vegar andsvar lyfsala og lyfjafræðinga við stefnu land- læknis og samherja hans í lyfsölumálum eins og hún birtist í fyrrnefndu frumvarpi til lyfsölulaga. Hins vegar er í frumvarpi lyfsala og lyfjafræðinga brydd- að á ýmsum metkum nýmælum í lyfjamálum á breiðari grundvelli. I greinargerð segir m. a.: „I frumvarpinu er byggt á, að rétt sé, að innflutningur, sala og tilbúningur lyfja sé í höndum aðila, sem til þess fái sérstaka heimild, og fari fram á ábyrgð þeirra, en lúti eftirlits þess opinbera og reglum, sem það setur með lögum eða reglugerðum.“ — Má segja, að þessi stefna hafi síðan orðið ofan á í lyfsölulög- um 1963 (sjá á eftir). Enn segir í greinargerð: Frumvarp þetta er fram komið í því augnamiði að bæta úr þörf vorri á heild- arlöggjöf um lyffræði, en slík löggjöf er að sínu leyti jafnmikilvæg heilibrigðismálum þjóðarinnar sem læknisfræðileg löggjöf, er vér höfum þó átt um alllangt skeið.“ I 1. kafla frumvarpsins er líklega í fyrsta sinn í íslenskri lagasmíð leitast við að skilgreina hugtakið lyf. í 2. kafla er fjallað um stofnun apóteka og veit- ing lyfsöluleyfa og í 3. kafla um rekstur apóteka. Fjórði kafli er um lyfjagerð og lyfjaverslun. Þar er kveðið svo á, að apótek hafi rétt til lyfjagerðar og innflutnings lyfja o. fl. (15. gr.). í þessum kafla niunu einnig vera fyrstu ákvæði í íslenskri lagasmíð, er lúta að heildverslun með lyf í því formi, er nú þekkist (16. gr.). Þá eru ákvæði um skipun fimm manna í lyfaskrárnefnd (20. gr.) og um hlutverk hennar (21. gr.). í þessari grein er kveðið svo á, að nefndin skuli semja eða velja lyfjaskrá, lyfseðla- söfn og íormúlskrár og semja breytingar og viðauka við þessi heimildarrit. Þá á nefndin að vera ráð- herra til aðstoðar, ef hann óskar þess, við rannsókn og prófanir lyfja og lækningatækja, semja reglugerð um verðlagningu lyfja og gefa árlega úr lyfjaverð- skrá og ennfremur semja reglur um lyfseðla, af- hendingu lyfja eflir þeim og hver lyf megi einungis selja eftir lyfseðli. I 27. gr. er auk þess beinlínis tekið fram, að nefndin skuli veita umsögn um sér- lyf, áður en þau yrðu skráð (ákvæði um sérlyf eru í heild svipuð og í fyrrnefndu frumvarpi 'til lyfsölu- laga). Eru ákvæði þessi öll hin merkustu. Verkefni lyfjaskrárnfndar voru þarna flest hin sömu og urðu samkvæmt lyfsöiulögum nr. 30/1963. Að auki voru nefndinni falin verkefni, sem lyfjaverðlagsnefnd voru síðar falin. 1 4. kafla (26. gr.) eru skýr ákvæði um takmörk- un á lyfjaauglýsingum. I 1. málsgr. 26. gr. segir: „Auglýsingar á lyfjum eru bannaðar nema í sérrit- um lækna og lyfjafræðinga og á annan þann hátt, að ekki sé líklegt, að auglýsingin komi fyrir almenn- ingssjónir.“ - Svipuð ákvæði um auglýsingar á lyfj- um hafa síðar verið lögfest. I 6. kafla eru ýmis merk fyrirmæli um gæði lyfja, merkingu og áletrun. I greinargerð segir, að fyrir- mynd þessara ákvæða sé sótt í bandaríska lyfjalög- gjöf frá árinu 1938. Sjöundi kafli fjallar um eftir- lit. I 1. málsgr. 36. segir: „Ráðherra skipar sérstak- an lyfjaskoðunarmann ríkisins (visitator).“ Var hér greinilega átt við mann i fullu starfi. Mó segja, að ákvæði þessi hafi í raun verið fyrstu tillögur um stofnun sérstaks lyfjaeftirlits í landinu. Stofnun Lyfjaeftirlits ríkisins var fyrst til lykta leidd með Re-ykjavíkur apotek. LÆKNANEMINN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.