Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 59

Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 59
í lög um lyf eða lyfjasölu. Væri það jafn óeðlilegt og setja ákvæði um lækna í lög um heilbrigðisþjón- ustu. Varð því að ráði að semja sérstakt lagafrum- varp um lyfjafræðinga, er síðan varð að lögum lítið breytt (lög um lyfjafræðinga nr. 35 11. maí 1978). Var frumvarp þetta í nokkru sniðið eftir læknalög- um. í lögum þessum eru þannig ákvæði um sér- fræðingsviðurkenningu, er mjög gætu lyft stétt lyfjafræðinga upp, ef nýtt verða. I frumvatpi nefnd- arinnar var einnig lokamálsgr. 3. gr. orðuð svo: „Við veitingu starfsleyfis undirritar lyfafræðings- efni yfirlýsingu þess efnis, að hann heiti því að við- halda þekkingu sinni og auka sem kostur er.“ Þetta ákvæði fór svo fyrir brjóst umsagnaraðilum, að það var fellt úr frumvarpinu eins og það var lagt fyrir Alþingi. Þá lagði nefndin á það áherslu í greinar- gerð, að nauðsyn bæri til þess að setja ákvæði í reglugerð, er nánar skilgreini, hver störf aðstoðar- lyfjafræðingar megi inna af hendi (sbr. 7. gr. lag- anna). Snemma árs 1978 skilaði nefndin af sér frum- varpi til lyfjalaga. Var það í 15 köflum. Voru í ein- um kafla, 6. kafla, rammaákvæði um lyfjasölu og lyfjadreifingu. Var þar m. a. að finna merk nýmæli um stofnun spítalalyfjabúða og um heimild fyrir Háskóla Islands að kaupa og reka lyfjabúð með sér- stöku tilliti til kennslu og rannsókna í lyfjafræði lyf- sala. Að öðru leyti var ætlun nefndarinnar að semja sérstakt frumvarp um lyfjabúðir og ef til vill fleiri atriði. Ráðherra (Matthías Bjarnason) strikaði þennan kafla út og liggur því eftir að setja um þenn- an málaflokk ný ákvæði í lögum, enda þótt reynt hafi verið með frumvarpi til Iaga um lyfjadreifingu, sem enn er ekki útrætt. Þess má þó geta, að heim- ildarákvæði til reksturs háskólalyfjabúðar hafðist inn í lög um Hás'kóla Islands við síðustu endurskoð- un (sbr. 2. málsgr. 36. gr. laga nr. 77 10. september 1979). Skal nú víkja nokkuð að einstökum greinum lyfjalaga. Samkvæmt 1. gr. eru lyfjanefnd, lyfjaverðlags- nefnd, stjórn lyfsölusjóðs, Lyfj aeftirlit ríkisins og landlæknir ráðherra dl aðstoðar og ráðuneytis við framkvæmd laga þessara. Auk þess hefur ráðherra hverju sinni sína ráðuneytisstarfsmenn, er hann get- ur skipt í deildir með heimild í öðrum lögum. Hér varð því ofan á, að í þessum lögum ættu ekki heima ákvæði um sérstaka lyfjamáladeild í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. 1 frumvarpi til laga um lyfjadreifingu er hins vegar gert ráð fyrir lyfjamála- stjóra (1. gr.). I 2. gr. er skilgreining á lyfjum. Hugtakið lyf mót- ast fyrst og fremst af notagildi efna og efnasam- banda til lækninga, fróunar eða varnar gegn sjúk- dómum og sjúkdómseinkennum í mönnum eða dýr- um. I öðru lagi mótast skilgreining lyfjahugtaksins af því að telja efni og efnasambönd, sem notuð eru alveg hliðstætt við lyf til lyfja (þ. e. a. s. efni notuð til sjúkdómsgreiningar á eða í líkamanum, svæfing- ar, staðdeyfingar, getnaðarvarna eða til þess að auka frjósemi manna og dýra). Skilgreiningin nær einnig til umbúða og áhalda, sem hafa lyf að geyma. Er þetta nauðsynlegt m. a. vegna þess að sum ílát og áhöld er hafa lyf að geyma eru hluti þess forms, sem lyf eru látin út í. I 3. gr. er heimildarákvæði fyrir ráðherra að fengnum tillögum nefndarinnar að fella hjúkrunar- og sjúkragögn og lyfjagögn undir lyfjahugtakið. I þessari grein er einnig gert ráð fyrir, að landlæknir geti hlutast til, að sérfróðir menn geri tillögur um nánari skilgreiningu og stöðlun fyrrnefnds varnings. Er hér augljóslega óunnið verkefni, er fyrst og fremst lýtur að skilgreiningu og stöðlun á plastefn- um. í 4. gr. eru undanþáguákvæði varðandi vítamín, er í stórum dráttum taka mið af gildandi bandarísk- um ákvæðum á þessu sviði. í 5. gr. eru ákvæði um læknaneminn 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.