Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 61

Læknaneminn - 01.07.1979, Blaðsíða 61
skólans í meinafræði að Keldum úti á köldum klaka (sbr. 6. lið að framan). Fjallað er um ávísun lyfja, lyfseðla, afgreiðslu þeirra og merkingu lyfja í 6. kafla Iaganna (15-17. gr.). í 2. málsgr. 15. gr. segir svo: „Útgefandi lyf- seðils undirritar hann eigin hendi ásamt stöðuheiti (læknir, tannlæknir, dýralæknir) eða les hann fyrir í síma með þeim hætti, að ljóst sé af símlestrinum, hver hann er. Staðfestir útgefandi þannig, að hann hafi sjálfur ávísað hlutaðeigandi einstaklingi eða umráðamanni tilgreindu lyfi í tilteknu magni og sagt fyrir um skammta eða notkun.“ Eru þetta miklu ítarlegri og skýrari fyrirmæli en áður hafa gilt um lyfseðla hér á landi, þótt stutt séu. I 16. gr. er það nýmæli, að kveðið er á um nokkur atriði, er vera skulu í reglugerð um gerð lyfseðla og afgreiðslu lyfja, er lyfjanefnd gerir tillögur um í samráði við landlækni. Forsenda þessa er sú, að reglugerð þessi er ein hin allra veigamesta, er lýtur að starfi lækna og lyfsala og því mjög nauðsynlegt, að vel sé til hennar vandað. Núgildandi reglugerð um gerð lyfseðla og afgreiðslu lyfja er nr. 291/ 1979 og gekk í gildi 1. 9. 1979. I 14. gr. segir svo, að framleiðslu lyfs sé ekki að fullu lokið, fyrr en það er komið í merkt afhending- arílát. I 17. gr. eru ítarleg ákvæði um merkingu þeirra íláta, sem lyf eru afhent í. Hliðstæð ákvæði eru í 59. gr. lyfsölulaga fyrir sérlyf. Nauðsynlegt var talið að láta slík ákvæði ná til afhendingaríláta und- ir öll lyf. 1 7. kafla (18,—26. gr.) eru miklu fyllri ákvæði um auglýsingu og kynningu lyfja, lækningaáhalda, sjúkravarnings og lyfjagagna en áður hafa verið í lögum hér á landi. Meginstefna þessara ákvæða er sem fyrr að tryggja, að auglýsingar og kynningar seu sem réttastar og í samræmi við gildandi lög og fyrirmæli og komi einungis þeim í hendur, er hafa ínenntunarlegar forsendur til þess að geta metið þær. Er ástæða til að ætla, að auglýsendur hafi yfirleitl tekið þessum ákvæðum vel. Fjallað er um lyfjanefnd í 10. kafla (27.-31. gr.). Auk þeirra verkefna nefndarinnar, sem áður eru nefnd, eru nokkur lil viðbótar tilfærð í 28. gr. Verk- efni lyfjanefndar eru þannig í heild hæði mikil og margþætt. Engu að síður gerðust þau firn og undur, að tillögur þeirrar nefndar, er frumvarpið samdi og þegar voru orðnar að lögum (lög nr. 85 25. maí 1976), sbr. hér á undan, voru gersamlega hundsað- ar. Fjöldi nefndarmanna var skorinn niður í þrjá einungis, en samtímis gert ráð fyrir aukamönnum til þess að sinna ákveðnum verkefnum. Þeir sem Jjetta afrek unnu, hafa greinilega litla eða enga reynslu haft af störfum í fastanefndum. Þetta fyrir- komulag leggur óhemjulegt álag á formann nefndar- innar og því hætt við, að störf gangi eigi undan svo sem lyfjalög gera ráð fyrir. Ákvæði þessi eru svo fjarri öllu viti, að þeim hlýtur að verða hreytt fyrr eða síðar. Fátt olli endanlega meiri örðugleikum í nefnd þeirri, er samdi frumvarp til lyfjalaga, en kveða á skipun manna í lyfjaverðlagsnefnd. Er 9. kafli lag- anna (32.-38. gr.) um lyfjaverðlagsnefnd. Var mjög reynt að tryggja, að sjónarmið sem flestra þeirra, sem framleiðendur, seljendur og kaupendur eða neytendur mega teljast, kæmu fram við skipun manna í nefndina. Þegar frumvarpið var endanlega lagt fram, hafði skipun lyfjaverðlagsnefndar verið færð í fyrra horf að kalla, sbr. 28. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963. Var það vafalaust á þeirri forsendu, að sú skipan væri þekkt og hefði reynst þolanlega, en allt væri á huldu um það, hversu önnur skipan myndi gefast. Hins vegar var verksvið nefndarinnar víkkað nokkuð og meira hugað að ákvæðum um verðlagn- ingu lyfja utan lyfjabúða (þ. e. a. s. í lyfjagerðum og lyfjaheildsölum) en áður var og tryggt, að sjón- armið innlendra lyfjaframleiðenda og lyfjaheild- sala yrðu kynnt í lyfjaverðlagsnefnd. Þá er í 36. gr. LÆKNANEMINN 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.