Læknaneminn - 01.01.1983, Side 24
Fig. 4. The prepared stomach stretched upward. It can now easily reach the apex inside
the right half of the thorax.
2000 ml og fékk maöurinn 5 einingar
af blóði í aðgerðinni og á eftir. Hann
þoldi vel aðgerðina, sem tók hálfa
sjöttu klukkustund. Var farið með
hann á gjörgæslu.
Eftir aðgerð
Maðurinn var í 5 daga á gjörgæslu.
f>ar fékk hann blóð til viðbótar.
Síðan var hann fluttur á legudeild.
Þar þáði hann áfram næringu í æð
sem og vökva. Eftir viku var tekin
röntgenmynd, sem sýndi að ana-
stomosan hélt. Eftir það fór maður-
inn að drekka vökva, síðan fljótandi
fæðu, maukfæðu og Iéttmeti annað.
Honum fór stöðugt fram og útskrif-
aðist 3 vikunt eftir aðgerð.
v. azygos. Á mynd 3 sést vélindað
með þeim hluta sem inniheldur æxl-
ið.
4. Vélindað var nú skorið frá mag-
anum, þó á þann hátt að nokkur hluti
af curvatura ntinor magans fylgdi
með því. Við þetta varð maginn að
löngum, lokuðum poka sem náði
auðveldlega upp undir apex thoracis
(mynd 4).
5. Vélindað var nú tekið sundur
ofarlega og flett upp. Mynd 5 sýnir
5x5x2 cm blómkálslagað æxli í
slímhúðinni ásamt ntiklum bjúg í
henni.
6. Maginn var nú dreginn upp um
hiatus oesophagi og saumaður fastur
í apex thoracis dxt. Ekki strekktist þó
verulega á mótum maga og skeifu-
garnar eða þeim hluta magans sem lá
upp um hiatus. Góður litur var á
maganum allan tímann.
7. Sá stubbur sem eftir var af vél-
inda var nú saumaöur utan á mag-
ann. Þetta kallast „anastomosis end-
to-side". Vandlega var gætt að því að
hylja anastomosuna með lífhimnu
magans (tunica serosa). Vélindað
vantar alveg lífhimnu og er ysta lag
þess aðeins þunnt bandvefsskæni
(tunica adventitia). Engin strekking
var á þessum samskeytum, þar eð
maginn var kyrfilega saumaður upp í
apex thoracis.
.8. Uppklippt vélindað var sent
meinfróðum. Skv. frystiskurði voru
allar skurðbrúnir lausar við illkynja
frumur.
9. Hægra lunga var síðan blásið út
og var eðlilegt. Hemostasis var góð-
ur. Sett voru inn tvö thoraxdren og
Penorsdren í kvið. Skurðum var lok-
að á venjulegan hátt. Blæðing var um
Umraeður
Maður þessi var vanur að forðast
kjöt. Þar sem hann var gestkomandi
þetta umrædda kveld borðaði hann
kjötið fyrir kurteisi sakir. Hafði hann
af því lífsháska þenna.
Það sem gerðist hefir verið eitt-
hvað á þessa leið: Kjötbitinn stíflar
vélindað. Meðfram því að það er
orðið svo vítt þá er m. cricopharyng-
Fig. 5. The lower two-thirds of the esophagus has been opened to show the tumour. The
scale indicates centimetres.
22
LÆKNANEMINN ■-‘/,».3-36.árg.