Læknaneminn - 01.01.1983, Blaðsíða 30

Læknaneminn - 01.01.1983, Blaðsíða 30
b) Vökvi í lið (hydrops). Greina má jafnvel óverulega vökvaaukningu í hné er hnéskel flýtur þegar þrýst er á hana (patella-tap eða-dans). Vökvi í lið er einkenni um ósérhæfða lið- pokabóigu sem aftur er einkenni fjölda hnésjúkdóma. Rannsókn á liðvökvasýni gefur mikilvægar upplýsingar. c) Vöðvasyturkur. Einkum er um að ræða styrkleika á m. quadriceps. Mæla á ummál læris 10 og 15 cm. ofan við liðbil og bera saman við heilbrigða hnéð. Hægt er að meta réttikraft hnés kliniskt eða með þar til gerðum mæli (dynamometer). Meta á vöðvaþéttleika við isometr- iskan samdrátt. Við fjölmarga hnéáverka og sjúk- dóma rýrnar m. quadriceps hratt. Quadriceps rýrnun er mjög algengt einkenni með hnésjúkdómum. d) Eymsli. Eymsli yfir liðbili eru oft einkenni um iiðþófaáverka. Eymsli yfir liðböndum eða liðbandafestum verða oft við áverka á liðbönd. Oft eru eymslin meiri sé liðbandarifan ófullkomin (subtotal), en við full- komna liðbandarifu. Randeymslin utanvert eða innan- vert við hnéskel. Þetta er einkenni um chondromalacia patellae. Bankeymsli eða þrýstieymsli yfir hnéskel. Oft einkenni um chon- dromalacia patellae eða slitgigt í femoro-patellar lið. Eymsli yfir neðsta hluta hnéskeljar getur verið við mb. Sinding-Larsen- Johansson. Preifieymsli yfir tuberositas tibiae verður oft við mb. Osggod-Shlatter, eða við afrifu þar. 3. Stöðugleiki Stöðugleikaprófun er nauðsynlegur þáttur í kliniskri skoðun, einkum eft- ir áverka. Bera á saman prófun á báðum hnjám. Sökum verkja getur stöðugleikaprófun verið erfið eða ómöguleg. Pá er nauðsynlegt að svæfa eða deyfa sjúklinginn til að ganga úr skugga um stöðugleika hnésins. Ætíð skal líta á hnéáverka með blæðingu í liðinn (haemarthrosis) sem alvarlegan þar til annað sannast. Nauðsynlegt er að greina liðbanda- áverka í hné innan 8-10 daga eigi möguleikar á aðgerð að vera góðir. a) Medial óstöðugleiki. Petta er merki um áverka á innra hliðarbandi. Sé hnéð óstöðugt innanvert (med.) í vægri beygju (20-30°) er innra hlið- arband rifið, annað hvort djúpi hlut- TAFLA I ÚTLIT SEIGJA H. BLK. um. BAKTERÍUR LIÐ/BLÓÐ -SYKUR KRISTALLAR EÐLIL. LIÐUR strá- gulur, tær eðlil. < 0.2 > 75% EFTIR MEIÐSLI blóö- litað eðlil. 0.2-2 T > 50% BAKTERÍU- ÍGERÐ grágrænn grugg minnkuð 30-100 + < 50% -v BERKLA- Igerð gulur grugg minnkuð 10-100 + < 50% + LIÐAGIGT gulur oft grugg minnkuð 1-50 -r > 50% -r REAKTIV LIÐBÓLGA gulur tær eðlil. 0.2-10 + > 50% + KRISTALLA grugg LIÐBÓL.GA minnkuð 10-100 + > 50% + 28 LÆKNANEMINN ‘-4/u*. - 36. árg.

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.