Læknaneminn - 01.01.1983, Síða 34

Læknaneminn - 01.01.1983, Síða 34
Evrópskar rannsóknir höfðu áður beinst að sauðfjármaurtegund einni er nefnist Ixodes ricinus. Ef áfram skal haldið með sögu þeirra 51 Lyme íbúa sem mynduðu rannsóknarhópinn, mundi einn þeirra eftir því að hafa verið bitinn af skordýri skömmu áður en útbrot komu fram, en þó svo að 25% hóps- ins hefðu fengið útbrot og Iiðbólgur var enn ekki sannað að um tengsl væri að ræða þar á milli. — Næsta stóra framsóknin í rann- sóknum á Lyme sjúkdóm var 1977, og enn voru Steere og félagar þar að verki. Rannsókn þeirra félaga fólst í því að skoðaðir voru allir þeir einstakl- ingar sem náðist í og höfðu sögu um ECM-húðútbrot og liðbólgur. í því tilefni var komið á fót eftirlitskerfi með þátttöku heimilislækna á Lyme svæðinu, til að ná til sem flestra með þessi ákveðnu einkenni. Til að minnka hlutdrægni í mati einkenna, þá skoðaði einungis einn læknir alla sjúklingana. Eftirfarandi rannsóknir voru gerð- ar: 1) Blóðstatus, sem reyndist vera eðlilegur. 2) Sökk-mælingar, sem sýndu fram á lágt gildi. 3) Gigtarpróf, sem reyndust nei- kvæð. 4) Athugun á serum sjúklinga, m. t. t. vírusa, mycoplasma og bacteria sem þekktar voru að því að geta valdið liðbólgum. Niður- stöður reyndust vera neikvæðar. 5) Biopsiur úr liðhimnum og húð- lesionum reyndust eðlilegar. 6) Liðvökvi sýndi hækkun á hvítum blóðkornum. Niðurstöður leiddu í Ijós, að af 32 sjúklingum, sem skoðaðir voru, höfðu 5 sjúklingar einungis húðles- ionir, 8 einungis liðbólgur, en 19 bæði húð- og liðbólgueinkenni. 4 sjúklinganna höfðu einnig miðtauga- kerfiseinkenni, og 2 höfðu einkenni frá hjarta, en þessum einkennum verður lýst síðar. I þessari rannsókn fundu Steere og félagar einnig hækkun á immune-complexum í blóði sjúklinga, á sama tíma og húð- útbrot komu fram. Ef orsakavaldur sjúkdómsins var maur, hvaða maur þá? Ixodes-ættin hafði verið tengd þessum ECM-út- brotum í Svíþjóð á fyrri hluta aldar- innar. Árið 1978 var safnað saman upp- lýsingum hvaðanæva að í U.S.A. um tilfelli sem líktust ECM-útbrotum, og þessi tilfelli borin saman við land- fræðilega dreifingu á Ixodes ættinni. Dreifing tilfella kom best heim og saman við dreifingu á þremur skyld- um Ixodes-maurum: Ixodes damm- ini, I. scapularis og I. pacificus. Dreifing tilfella var einkum bund- in við 3 svæði: 1) Norðausturströnd Bandaríkj- anna, sérstaklega Connecticut- fylki. 2) Miðvesturríkin, sérstaklega Wis- consin. 3) Norðurhluta Kaliforniu-fylkis og Oregon. Árið 1979 var stigið stórt skref í etiologiskri leit sjúkdómsins, þegar nokkrum sjúklingum tókst að hand- sama maur á líkama sínum, þar sem seinna komu fram ECM-húðútbrot. I öllum þessum tilfellum reyndist um Ixodes dammini að ræða. Fóru menn n ú að velta fyrir sér hvað það væri við þennan maur sem ylli einkennum, ef maurinn var á annað borð sökudólg- urinn. Tvennt kom til greina: 1) Framandi mótefnisvaka svörun. 2) Sýkingarmiðill. Maður nokkur að nafni Willy Burgdorfer hafði staðið fyrir allsér- stakri tilraun á miðjum 6. áratugnum í Evrópu, þar sem ECM-útbrotum var smitað frá manni til manns. Gerðist það með því að extracti úr húðlesionum var sprautað í húð heil- brigðs manns og komu þá fram svip- uð útbrot. Hr. Burgdorfer var nú kallaður vestur um haf til starfa með Steere og félögum. Læknar höfðu greint frá því að Penicillin og Tetracyclin hefðu slegið á einkenni Lyme-sjúkdómsins. 1980 gáfu Steere og félagar 113 sjúkling- um með ECM-útbrot áðurnefnd lyf og kom í Ijós að tími húðútbrota og liðbólgna styttist verulega miðað við control-hóp. Studdi þetta eindregið að bakteria væri orsakavaldur þessa sjúkdóms. 1982 var loks stigið fullnaðarskref í því að sanna etiologiu sjúkdómsins þegar Steere, Burgdorfer og sam- starfsfólk fundu Spirochetur í 20- 60% af rannsökuðum Ixodes damm- ini maurum. Sýnt var fram á, með immunofluorescence-aðferð að sjúklingar með ECM-húðútbrot höfðu mótefni gegn þessum spiroc- hetum. Þetta benti mjög sterklega til að Lyme-sjúkdómi væri valdið af I. dammini spirochetum, en til þess að hefja þau orsakatengsl yfir allan vafa, þurfti að fullnægja kröfum Koch’s sem eru eftirfarandi: 1) Að finna sýkil í sjúklingi. 2) Að rækta sýkil. 3) Að sýkja aftur og fá fram sams- konar einkenni og áður. 4) Að rækta aftur úr sjúklingi. 1982 tókst að rækta I. dammini spirochetuna úr 5 sjúklingum með Lyme-sjúkdóm, 3 tilfelli ræktuðust úr blóði, 1 úr húðlesion og 1 úr mænuvökva. Hér hafði tekist að uppfylla 1. og 2. kröfu Koch’s. Síðan var I. dammini maurinn Iát- inn bíta kanínur og viti menn, kanín- urnar fengu ECM-húðútbrot eftir bitin. Hér hafði 3. krafa Koch’s óbeint verið sönnuð, en ekki þótti hættandi á að nota menn sem til- 32 LÆKNANEMINN - 36. árg.

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.