Læknaneminn - 01.01.1983, Blaðsíða 44
aðir væru með í strætó. Þetta var
bara hluti af ísrael.
Við inngang í spítala, skóla, stórar
búðir og söfn eru varðmenn og þurfa
allir með töskur að opna þær og
sýna ofan í. Það vandist eins og
annað þegar við loksins vissum
hvaðmennirnirvildu.
Við vorum oft spurðar um afstöðu
okkar til stríðsreksturs ísraela í
Líbanon en fólki stóð greinilega ekki
á sama um álit Evrópubúa. Eins og
gefur að skilja höfðu ísraelsmenn
mismunandi skoðanir á þessu og
heyrðum við margar útskýringar. Við
fórum þó lítið út í pólitískar umræður
bæði af því að margir samþykktu
flest sem við sögðum og reyndu lítið
að andmæla okkur. Einnig gerðum
við okkur litla von um að fá 1-2
milljónir manna til að skipta um
skoðun.
í ísrael búa gyðingar frá flestum
heimshornum sem hafa flutt með sér
menningu og venjur þess lands sem
þeir hafa búið í, jafnvel i 2000 ár. Oft
er lítið eftir af gyðinglegu útliti í þessu
fólki, aðeins trúin skilur það frá
öðrum í landinu. Þetta margbreyti-
lega útlit og klæðaburður gerir ísra-
elskt götulíf fjölskrúðugt. Minna ber
þó á þessu hjá afkomendum fólksins
sem er fætt í ísrael. Strangtrúa gyð-
ingar setja mikinn svip á landið með
klæðaburði og framkomu. Þeir búa
flestir í Jerúsalem, margir í ákveðn-
um borgarhluta, Mea Shearim. Þar
eiga konur að klæðast siðsamlega
og hylja hné sín og olnboga, auk
þess hár sitt ef þær eru giftar, karlar
og konur mega ekki ganga saman á
götu þarna. Arabar með dúk á höfði
eru margir, sérstaklega í vesturhluta
Jerúsalem og á Vesturbakkanum og
Gasa svæðinu. Kristnir menn eru
líka fjölmennir í Jerúsalem og þar
sjást munkar og nunnur frá fjöl-
mörgum trúardeildum. Borgir í ísrael
eru Ólíkar, Tel Aviv mest vestræn en
Jerúsalem heilögust.
í Jerúsalem er gamall borgarhluti
og skipta gyðingar, arabar, kristnir
og armenar honum niður. Þetta er
lítið svæði með þröngum götum og
sölubúðum meðfram þeim öllum.
Þar tíðkast að prútta um verð og voru
flestir sölumennirnir of ágengir.
Einnig höfðu þeir mikinn áhuga á að
geta upp á frá hvaða landi við vorum,
þögnuðu þó ef við svöruðum, á ís-
land hafði enginn heyrt minnst.
Þarna eru líka heilögustu staðir
þriggja trúarbragða, Grátmúrinn
(vesturveggurinn) í gyðingatrú,
Musterisfjall með moskum í Múham-
eðstrú, og Via Dolorosa og kirkjan á
Golgata fyrir kristna.
Mjög gaman er að vera við Grát-
múrinn við sólarlag á föstudag þegar
hvíldardagurinn hefst. Þá koma
margir gyðingar þangað að biðjast
fyrir. Við skildum lítið hvað var að
gerast þarna. Menn voru í 10-20
manna hópum og virtist hver hafa
sína aðferð eftir trúarhita. Flestir fóru
þó í gegnum nokkur stig lesturs,
hneiginga og söngls og að þessu
loknu sungu menn og dönsuðu.
Vesturveggurinn myndar eina
hliðina á Musterisfjalli og þangað
fórum við. Bannað er að fara í skóm
inn í moskurnar en það var í lagi því
þarna voru dýrindis teppi á gólfum.
Fátt annað var í moskunum, utan
stór steinn í annarri. Sagan segir að
þaðan hafi Muhameð stigið til himna
eftir að ganga frá Mekka í þrem
skrefum. Allir sem vilja fá að koma
við þetta síðasta fótspor spámanns-
ins.
Þá var meira glysið í kirkjunni á
Golgata. Grísk-kaþólskir eiga kirkj-
una eins og flestar kirkjur þarna en
aðrar trúardeildir eiga sín heilögu
horn með altörum.
Það leikur greinilega enginn vafi á
hvar Jesús var krossfestur, smurður,
grafinn o. fl. Allir staðir eru nákvæm-
lega merktir, t. d. er lítill silfurdiskur
undir einu altarinu en þar mun kross-
inn hafa staðið. Sömu sögu er að
segja frá flestum stöðum þar sem
Jesús á að hafa komið, t. d. Betle-
hem, en þar er vendilega merkt hvar
hann snerti þessa jörð fyrst.
Þegar leið á mánuðinn vorum við
orðnar ansi slæptar og þreyttar. Við
hlökkuðum til að fara og komast aftur
til Kaupmannahafnar til fólks sem
hugsaði líkar okkur. Þegar við fórum
var leitað vandlega í farangrinum og
við vorum spurðar hvort einhver
hefði getað sett ofan í töskurnar án
okkar vitundar. Við þurftum líka að
sanna að við vorum skiptinemar og
sverja af okkur allt samneyti við
,,grunsamlega menn“.
Við vorum fegnar að fara en sökn-
uðum þessa margbreytilega lands
jafnframt og erum staðráðnar I að
fara aftur.
42
LÆKNANEMINN ' - 36. árg.