Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 10
10
F E R Ð I R
i
Á rústum eyðibýlisins að Kirkjubóli við upphaf gönguferðar á Hrolleifsbarg
mánudagsmorgun 13. júlí. (Ljósm. Magnús Guðmundsson)
og settist að ríkulegu kaffiborði. Undu menn þar fram eftir kveldi við
góðgerðir, gamanmál og glaðvært spjall einkum um ætttartengsl ýmiss
konar, en frammi lágu ættfræðibækur um Strandamenn, svo sem Pálsætt
og Ófeigsfjarðarætt. Einnig sýndi Sjöfn húsmóðir áhugasömum gestum
húsið, en máttarviðir þess allir eru sagaðir úr rekaviði í sögunannyllu
heimamanna. Sömuleiðis hafði panill í einu herbergi verið unninn úr
rekaviði, en það þótti of dýrt og fyrirhafnarsamt, svo að aðkeyptur panill
frá Finnlandi hafði meira verið notaður. Heimboðinu lauk svo með hóp-
myndatöku af húsbændum og gestum þeirra í skini kvöldsólarinnar.
Mánudagur 13. júlí.
Fótaferð var samkvæmt venju kl 8 og morgungrautur kl. 9. Að þvi loknu
tygjuðust menn til stórræða, því nú skyldi þreytt vafalítið erfiðasta
gönguferð leiðangursins, allar götur upp á Hrolleifsborg í Drangajökli.
Svo sem til að minna á alvöru þess að ganga á jökul var samkvæmt fyrir-
mælum Gísla leiðsögumanns tekin með nælonlína löng og hvít til örygg-