Ferðir


Ferðir - 01.06.1993, Síða 16

Ferðir - 01.06.1993, Síða 16
16 F E R Ð 1 R Bœnhúsið í FurufirSi. (Ljnsni. Cuðmundur Gunnarsson) snjóskaflar ríkjum. Sæmilega glögg gata er þó þarna, er rudd hefur verið fyrr á árum og við hana standa vörður sem vísa göngumönnum veginn. Þegar yl'ir skarðið er komið opnast sýn yfir Furufjörð. Hann mun hafa þótt einna búsældarlegastur af fjörðum og víkum á Norður-Ströndum, enda er eggslétt graslendi og iðjagrænt í dalnum sem upp frá firðinum gengur. Gjaman var víst fleirbýli á einu bújörðinni þar, sem var við fjarð- arhornið að norðanverðu. Landkostir eru líka snöggtum meiri en t.d. í Þaralátursfirði, áðurnefnt graslendi ólíkt loðnara og blómlegra en þar. Þegar sjón gaf yfir fjörðinn fóru göngumenn að ræða um, hvar Jakob Kárason hefði valið liði sínu náttstað. Sannspár reyndist sá sem var hon- um nákomnastur og kunnugastur, að Jakob hefði ekki látið slysavarnar- skýli ónotað sem stendur við sama fjarðarhomið og eyðibýlið en spöl- korn lengra til norðvesturs. Varð enda fljótlega séð í sjónauka, að fólk var ferli við skýlið. Göngumenn þrömmuðu því áfram yfir graslendið. óðu Furufjarðarósinn við bæjarstæðið og lituðust þar um. Síðan áfram að slysavarnarskýlinu og höfðu tal af fbúum þar. Sá sem þetta ritar sneri aftur á bæjarstæðið að skoða betur það sem þar var að sjá. Þrjú hús eru þar uppistandandi, íbúðarhús, geymsluhús og

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.