Ferðir - 01.06.1993, Síða 25
F E R Ð I R
25
Horft afsandsléttunninni ofan og anstan Dyngjufjalladals suðaustur til Dyngjufjalla. Niður-
gönguleiðin er rétt /uvgra megin við fönnina sem sést efst til vinstri.
(Ljóstn. Ingvar Teitsson)
komu akandi frá Dreka með viðlegu- búnaðinn. Tjölduðum við um nótt-
ina í dalbotninum og fórum síðan morguninn eftir að leita að skálastæði.
Leist okkur þá best á móbergsklöpp vestan árinnar, um I km norðan
hryggjarins sem við gengum niður í Dyngjufjalladalinn.
Þegar leitinni að skálastæði var lokið, ókum við norður úr Dyngju-
fjalladal áleiðis í Suðurárbotna. Var fallegt útsýni á leiðinni til fjalla eins
og Herðubreiðar, Kollóttudyngju, Herðubreiðarfjalla, Hvammsfjalla, Blá-
fjalls og Sellandafjalls. Vegalengdin eftir slóðinni frá fyrirhuguðu skála-
stæði niður að efstu lindunum í Suðurárbotnum reyndist 22-23 km. Þaðan
eru svo 7 km niður að gangnaskálum Mývetninga á Stóruflesju við Suð-
urá. Er því í lengsta lagi að ganga á einum degi úr Dyngjufjalladal á
Stóruflesju enda þótt þetta sé gott gönguland og mishæðalítið.
I skálunum á Stóruflesju geta 14 manns gist í kojum og auk þess eru
dýnur á gólfi fyrir tvo, alls 16 manns. Þess ber að geta að vegurinn um
hraunið rétt ofan Suðurárbotna, svo og vegurinn um Suðurárbotnana
sjálfa, er hið versta torleiði og rétt jeppafær í þurru. Frá skálunum á
Stóruflesju eru um 8 km eftir bílslóðinni í Svartárkot.