Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 40
40
F E R Ð I R
/
Arsskýrsla Bræðrafellsnefndar 1992
Vinnuferð var farin um vorið sömu helgi og farið var í Þorsteinsskála og
Dreka. Fjórir fóru í ferðina á góðum jeppa með kunnugum bflstjóra og er slíkt
gott í svona ferð. Haldið var rakleitt að uppgöngu við Herðubreið, en gengið
þaðan í skálann með þungar byrðar og komið þangað er liðið var á nóttu. Eftir
góða hvíld var tekið til hendi, því að ýmsu var að huga eftir veturinn, fúavarið,
málað, þrifið og lagað. Gömul hurð og fleira sagað í eldinn og afgangs timbur
notað til að endurnýja stiga o.fl. Nóg er af uppkveikju en kol þarf að endur-
nýja fljótlega. Kamarinn var orðinn nokkuð sandblásinn og var hann fúavarinn
og síðan bornar á hann 2 umferðir af þekjandi efni, svo hann leit vel út þegar
við fórum en eftir er að vita hvernig efnið reynist. Fleki við útidyr var fokinn
um 50-60 m norður í hraunið og er hann þó nokkuð þungur, svo eitthvað hefir
rokið verið. Komið var með fleiri ullarteppi til hlífðar dýnum og sem ábreiður.
Mála þarf veggi að utan næsta sumar og lagfæra ofninn eða fá nýjan en hann
er illa sprunginn. Vatnsbrúsar utan á húsinu voru sprungnir eftir frostið og
þyrfti að losa þá á haustin. Vonandi verður skálinn betur nýttur ef gönguferðir
um Odáðahraun verða vinsælar á næstu árum.
F.h. Bræðrafellsnefndar
Magnús Guðmundsson
S
Arsskýrsla gönguleiðanefndar FFA 1992
Á aðalfundi FFA vorið 1992 urðu talsverðar umræður um gönguleiðir og
byggingu gönguskála á vegum félagsins. í maí 1992 tilnefndi svo stjórn FFA
fimm menn í gönguleiðanefnd og eru þeir þessir: Ingvar Teitsson, formaður,
Árni Jóhannesson, Jakob V. Kárason, Jón Dalmann Ármannson og Þór Þor-
valdsson.
Nefndin hélt sjö fundi á árinu þar sem rætt var m.a. um byggingu göngu-
skála í Odáðahrauni og gönguleiðir á þeim slóðum. Dagana 14.- 16. ágúst fór
fimm manna hópur á vegum nefndarinnar að kanna gönguleið yfir Dyngjufjöll
frá skálanum Dreka um Öskju og Jónsskarð yfir í Dyngjufjalladal. í þessari
ferð fannst heppileg gönguleið norðvestur úr Jónsskarði niður í Dyngjufjalla-
dal. Einnig fannst hentugt stæði fyrir gönguskála á vesturbakka árinnar í
Dyngjufjalladal, norðarlega í dalnum. I þessari ferð var einnig skoðuð göngu-
leiðin úr Dyngjufjalladal um Suðurárbotna í Svartárkot.
I samvinnu við stjórn FFA var sótt um byggingarleyfi fyrir gönguskála í