Bændablaðið - 07.09.2023, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Þróun matvælaverðs hér á landi
sambærileg og í nágrannalöndum okkar
Verðþróun Samræmd vísitala neysluverðs er notuð til að
mæla breytingar á verðlagi innan EES og auðvelda með því
samanburð á verðbólgu milli ríkjanna. Grunnur samræmdrar
vísitölu neysluverðs er byggður á sömu gögnum og íslenska
neysluverðsvísitalna. Þó eru þær ekki algjörlega sambærilegar,
vegna mismunandi umfangs einstakra liða.
Mestu munar að eigið húsnæði er ekki með í samræmdu
vísitölunni. Samkvæmt vísitölunni mælist 12 mánaða
verðbólga í júlí 7,5% hér á landi en 6,1% innan EES svæðisins.
Hér sést að hægt hefur á verðhækkunum erlendis á bæði kjöt-,
mjólkur- og kornvörum á meðan verðbólgan á íslenskum
matvörum sérstaklega hafði enn ekki byrjað að lækka þegar
júlímælingar voru birtar. Hæst náði 12 mánaða verðbólga
á matvörum tæplega 20% í Evrópu fyrri hluta þessa árs en
féll svo hratt.
Verðbólga á matvælum hefur ekki náð þeim hæðum á
Íslandi en í júlí leitaði hún enn þá upp á við og var þá nánast
sú sama og evrópska matvælaverðbólgan.
Kjötvörur Samræmd vísitala neysluverðs mælir 12 mánaða hækkun á kjötvörum í júlí 15,1%
hér á landi en 8,6% innan EES svæðisins.
Mjólkurvörur Samræmd vísitala neysluverðs mælir 12 mánaða hækkun á mjólkurvörum í
júlí 12,5% hér á landi en 8,9% innan EES svæðisins.
Matvælaverð Samræmd vísitala neysluverðs mælir 12 mánaða hækkun matvæla í júlí 12,2%
hér á landi en 12,6% innan EES svæðisins.
Kornvörur Samræmd vísitala neysluverðs mælir 12 mánaða hækkun á mjólkurvörum í júlí
12,3% hér á landi en 13,1% innan EES svæðisins.