Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
LÍF&STARF
Önundarfjörður:
Synt í klauffar
Sæunnar
Laugardaginn 26. ágúst sl.
var mikið um dýrðir á Flateyri
þegar hinn árlegi viðburður
Sæunnarsund fór fram og fjórtán
ofurhugar lögðust til sunds í
Önundarfirði.
Haustið 1987 stóðu bændur Í
Breiðadal neðra í Önundarfirði,
Halldór Mikkaelsson og Guðrún
Hanna Óskarsdóttir, frammi fyrir
því að fækka þurfti í fjósi, það var
offramleiðsla á mjólkurvörum,
smjörfjallið var hátt og nú áttu
bændur að minnka framleiðslu og
fækka kúm. Valið var þeim hjónum
erfitt en ákveðið var að kúnni Hörpu
skyldi fórnað. Harpa var ljómandi
afurðagóð kýr, skapgóð en svolítið
sérstök eins og átti svo sannarlega
eftir að koma í ljós.
Hver var Sæunn?
Á þessum tíma var rekið slátur
hús á Flateyri en landbúnaður
var blómlegur á þessum árum á
Vestfjörðum og þann 13. október var
Hörpu stuggað í bíl sem flutti hana á
Flateyri. Magnús frá Hóli, slátrarinn
á Flateyri, er mikill öndvegispiltur
en alls ekki að skapi Hörpu sem
með miklum bægslagangi rauk af
bílnum og var engu tauti við hana
komið, sleit hún af sér öll bönd og
tók á rás út á bryggju. Fyrir henni
urðu fiskikör sem þeyttust í burtu
sem eldspýtustokkar væru og að
endingu flaug þessi um það bil 500
kg skrokkur sem fjöður yfir allt
sem fyrir var og fram af bryggjunni
í ískaldan októbersjóinn.
Í forundran gláptu viðstaddir á
skepnuna taka á rás út fjörðinn, reisti
hún halann sem loftnet væri meðan
hún tróð marvaða af ótrúlegri lagni.
Í snatri var sjósettur björgunarbátur
sem leiðbeindi henni þvert yfir
fjörðinn frekar en að synda bara
út sjóndeildarhringinn, út á opið
Atlantshaf. Einhver hafði vit á því
að hringja í bændur í Valþjófsdal
og boða þeim sögulegan „kúreka“.
Guðmundur Steinar og Sigríður á
Kirkjubóli skunduðu niður í fjöru og
tóku þar á móti Hörpu sem var í góðu
ásigkomulagi, þó með örlitla sjóriðu.
Dóri og Gunna í Breiðadal tóku
líka á móti Hörpu í fjörunni handan
fjarðar og höfðu varla við henni
akandi. Ekki þótti annað sanngjarnt
en að Harpa fengi að lifa eftir annað
eins afrek og keyptu Kirkjubólshjón
Hörpu svo ekki þyrfti að ferja hana
aftur til baka, kaupverð hefur ekki
verið gefið upp en upp frá því var
hún nefnd Sæunn.
Sæunn var leidd á bás í fjósinu
á Kirkjubóli og undi þar hag
sínum vel, mjólkaði ljómandi og
á sjómannadaginn 1988 bar hún
kvígu sem nefnd var Hafdís, ekki
ólíklegt að hún hafi öðlast þennan
gríðarlega lífsvilja vegna hennar.
Spenar Hafdísar voru að sögn
hins vegar lokaðir, af sumum talið
vegna kuldaáfalls í móðurkviði
og var því ekki sett á. Átti Sæunn
aðeins nautkálfa eftir þetta sem ekki
fengu að lifa og fjölga sér. Ættbogi
þessarar merku skepnu lauk því hjá
henni en hún var felld að nokkrum
árum liðnum og heygð í fjörunni
þar sem hún kom að landi og er þar
Sæunnarhaugur. Sæunn þótti afar
sérstök, með athugul augu og virtist
fylgjast vel með umhverfi sínu,
rólynd og þægileg skepna.
Af Sæunni eru sagðar margar
sögur og skrifaðar hafa verið fréttir
á mörgum tungumálum, meira að
segja hefur verið skrifuð um hana
bók, færri vita að Sæunn átti bróður,
tuddann Moðhaus, sem sömuleiðis
átti að færa til slátrunar á Flateyri.
Eins og systu leist honum ekkert á
Magnús frá Hóli, sleit sig lausan á
bryggjunni og stökk út í sjó en í stað
þess að synda yfir fjörðinn eða til
hafs eins og Sæunn beygði hann til
vinstri og tók land við Kaldá, gerði
sig þar heimakominn í fjósinu og
hafði brotið þar allt og bramlað
þegar að var komið. Honum var
engin miskunn sýnd og voru dagar
hans þar með taldir.
Synt í klauffar Sæunnar
Alla tíð síðan hefur saga Sæunnar
lifað með Flateyringum og árið 2018
tók sig saman hópur sem ákvað
Sundhetjur ársins 2023. Mynd / Niklas Siemens
Agnieszka Narkiewicz-Czurylo kemur fyrst að landi og henni til aðstoðar eru Svanborg Gróa Hinriksdóttir og Hrönn
Garðarsdóttir. Mynd / Bryndís Sigurðardóttir
Sæunnarhaugur, á myndinni eru frá vinstri, Elísa Kristinsdóttir, Þuríður
Hjartardóttir og Þóra Kristinsdóttir, sem allar syntu þetta árið. Mynd / BS
Réttu dekkin draga fram bestu
eiginleika bílsins og veita
hámarks öryggi.
Fáðu ráðleggingar fagmanna
við val á réttum dekkjum.
Nesdekk
er í næsta
nágrenni
við þig!
nesdekk.is / 561 4200
Fiskislóð 41
101 Reykjavík
561 4110
Tímabókun
Skeifan 9
108 Reykjavík
590 2098
Tímabókun
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Tímabókun
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Tímabókun
Austurvegur 54
800 Selfossi
590 2095
Tímabókun
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Tímabókun
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Tímabókun
Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn
og skoðaðu dekkjaúrvalið
á nesdekk.is