Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 Lífrænt Ísland og VOR (félag um lífræna framleiðslu) standa fyrir lífræna deginum í ár líkt og í fyrra þegar hann var haldinn í fyrsta sinn. Einn viðburður verður á höfuð- borgarsvæðinu á Kaffi Flóru í Grasagarðinum, laugardaginn 16. september, á milli klukkan 13–17. Fjögur býli víðs vegar um landið munu á sama tíma opna sín býli fyrir gestum og gangandi. Kaffi Flóra ætlar í samstarfi við Lífrænt Ísland að bjóða upp á rétti byggða nær alfarið á lífrænum íslenskum hráefnum. Það verður því hægt að kaupa sér dýrindis lífrænan íslenskan mat þennan dag á Kaffi Flóru, hitta lífræna bændur og framleiðendur og fræðast um lífræna ræktun. Á þessum fjórum lífrænu býlum sem opna hjá sér þennan dag geta gestir séð, smakkað og heyrt hvað lífrænir bændur eru að vinna að. Einhverjar uppákomur verða yfir daginn, leikir fyrir börn og jafnvel alla fjölskylduna. Lífræni dagurinn var stofnaður í fyrra, 18. september 2022, og var haldinn á Neðri-Háls í Kjós í Hvalfirði hjá Kristjáni Oddssyni og Dóru Ruf, sem eru frumkvöðlar í lífrænum kúabúskap og framleiðslu mjólkurvara. Að baki fyrsta lífræna deginum stóðu Anna María Björnsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Tumi Bjartur Valdimarsson í samstarfi við VOR. Jóhanna Vilhjálmsdóttir hefur skrifað bók um áhrif eiturefna í umhverfi á heilsu en lífrænn matur er ein leið til að forðast eiturefnaleifar í mat. Tumi Bjartur er kvikmyndagerðarmaður og lífrænn neytandi. Anna María er lífrænn neytandi, kvikmyndagerðarkona og er nú gengin til liðs við Lífrænt Ísland sem verkefnastjóri Lífræna dagsins 2023.Okkur langaði að gera eitthvað til að vekja athygli á þessari tegund ræktunar á Íslandi en aðeins eru um 30 lífrænir bændur og framleiðendur á Íslandi af um 3000. Í fyrra var þetta boðsviðburður og takmarkaður fjöldi sem hægt var að bjóða. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra heiðraði okkur með nærveru sinni og í ræðu hennar tilkynnti hún að hún hefði nýlokið undirritun á samningi um gerð tillögu að aðgerðaáætlun fyrir lífræna ræktun á Íslandi. Þessi litli viðburður breyttist því í sögulegan viðburð fyrir lífræna ræktun á Íslandi en lífrænir framleiðendur hafa margir beðið eftir þessu í áratugi. Markmiðið var að bjóða í lífræna matarveislu þar sem matreitt var eingöngu úr lífrænum íslenskum hráefnum. Sólveig Eiríksdóttir og Gunnhildur Emilsdóttir sáu um eldamennskuna með dyggri aðstoð frá Kolbrúnu Björnsdóttur, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Anne-Mette Heltborg Poulsen. Maturinn þennan dag var stórfenglega gómsætur og nokkrir höfðu á orði að þetta væri besti matur sem þau höfðu smakkað um ævina. Markmiðið okkar var að ganga eins langt og hægt væri í að nota lífrænt vottuð hráefni af íslenskum uppruna og enduðum við í um 95%. Einungis sítrónur, smjör og þurrkrydd var ekki hægt að fá lífrænt vottuð og íslensk. Hin gullna danska leið var því farin en í Danmörku fá mötuneyti og veitingastaðir sem eru með 95% hráefnanna lífrænt vottuð sérstakt gullmerki sem er mikill gæðastimpill. Það var ótrúlega gaman að sjá hvað hægt var að töfra fram fjölbreyttan mat úr lífrænum íslenskum hráefnum og hlökkum við til að endurtaka leikinn á lífræna deginum í ár. Á Íslandi er m.a. verið að rækta og framleiða lífrænar íslenskar kartöflur, gulrætur, rófur, fjölbreytt úrval af grænmeti, káli, salati, tómötum, gúrkur, mjólk, ost, jógúrt, gríska jógúrt, bygg, heilhveiti, repjuolíu, kex, sultur, chutney, súrkál, grænmetisborgara og grænmetisbuff, hnetusteikur, falafel, súpur, kökur, nautakjöt og lambakjöt, egg en einnig fleira eins og snyrtivörur. Allir eru velkomnir á Kaffi Flóru laugardaginn 16. september kl. 13–17 eða á lífrænu býlin víðs vegar um landið á sama tíma. Einnig er kjörið að halda upp á lífræna daginn með því að elda heima hjá sér úr lífrænum íslenskum hráefnum þennan dag og stuðla þannig að útbreiðslu lífræns landbúnaðar á Íslandi. www.lifraentisland.is Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri lífræna dagsins 2023 LÍFRÆNT ÍSLAND Lífræni dagurinn 16. september 2023 Lífrænu bæirnir sem munu opna sín býli í ár eru: • Akur organic, Flaga, Þórshöfn • Móðir Jörð, Vallanesi, Egilsstöðum • Sólbakki garðyrkjustöð, Ós Hörgársveit • Syðra-Holt, Svarfaðardal YFIR 35 ÁRA REYNSLA Sömu eigendur frá upphafi Um 100 bílar á staðnum ! | S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s | | B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 | Límtré-Timbureiningar Stálgrind Yleiningar PIR Steinull Streymi heildverslun ehf. Goðanesi 4 603 Akureyri S N V 588 2544 streymi@streymi.is www.streymi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.