Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Nýr smájepplingur frá Toyota
byrjaði að sjást á götunum á
síðasta ári. Þetta er merkilega
sparneytinn og fjölhæfur bíll með
meiri veghæð en gengur og gerist
í þessum stærðarflokki.
Yaris Cross býr yfir þeirri sérstöðu
að bjóða upp á fjórhjóladrif, sem er
ekki sjálfsagt í flokki smájepplinga.
Eins og margir bílar frá Toyota, þá
fæst Yaris Cross sem tvinnbíll. Toyota
hefur nýtt tvinnkerfið á sniðugan
hátt, en afturhjólin eru hvergi tengd
við bensínmótorinn, heldur eru þau
knúin áfram af rafmagnsmótor.
Hægt er að fá Yaris Cross ekki sem
tvinnbíl, en þeir bílar eru einungis
framhjóladrifnir.
Ef augun eru pírð nógu mikið í
rökkri er hægt að ruglast á þessum bíl
og nýjasta Toyota Rav4. Yaris Cross
samsvarar sér vel og er margfalt
fríðari en stóri bróðir hans, Toyota
Corolla Cross. Þegar Yaris Cross er
lagt við hliðina á tuttugu ára gömlum
Toyota Corolla hlaðbak, þá sést að
bílarnir eru nánast jafnstórir. Sé lagt
við hliðina á venjulegum Yaris af
nýjustu gerð, er bersýnilegt að hér
er um miklu stærra ökutæki að ræða.
Nóg af hnöppum
Þegar sest er um borð tekur á móti
manni fríð innrétting. Hún er nær
alfarið svört, en gylltar línur lyfta
hlutunum aðeins upp. Bíllinn í
þessum prufuakstri er af gerðinni
Adventure, sem er ein af best búnu
útfærslunum.
Toyota er á margan hátt íhaldssamt
fyrirtæki, en það sést í afstöðu
þeirra til gamaldags hnappa. Hér er
hljóðstyrk, miðstöð og fleiru stjórnað
með auðfinnanlegum tökkum, ólíkt
því sem er í mörgum nýjum bílum
þar sem öllu er stjórnað í gegnum
snertiskjá, sem getur verið óþarflega
flókið.
Blessunarlega hefur Toyota
haldið í hnappana, því sjálfur
margmiðlunarskjárinn er með afar
gamaldags viðmóti. Hann gerir sitt,
en hvað útlitið varðar er varla hægt að
sjá mun á þessu margmiðlunarkerfi
og því sem var í nýjum bílum fyrir
áratug. Kostir þess eru þó að það er
fljótvirkt og næmt fyrir snertingu,
jafnvel þótt notaðir séu hanskar. Enn
fremur er auðvelt að tengja síma með
Bluetooth og bakkmyndavélin fer í
gang þegar er bakkað. Helst vantaði
nálægðarskynjara að framan og aftan
til að auðvelda það að leggja í stæði.
Sæti þægileg
Framsætin eru sérlega þægileg með
stillanlegum mjóbaksstuðningi. Til að
gera hávaxna fullkomlega sátta þyrfti
að vera hægt að færa sætin nokkra
sentímetra aftar. Stórt glerþak er
aukahlutur á þessum bíl og hleypir
mikilli birtu inn í farþegarýmið.
Aftursætin eru einungis nógu stór
fyrir börn, smávaxna fullorðna eða
hávaxin prúðmenni sem barma sér
ekki þrátt fyrir þrengslin. Þakið er lágt,
en er íhvolft rétt yfir kollinum til að
gefa örlítið meira rými. Fótaplássið er
jafnframt það lítið að nauðsynlegt er
að færa framsætin fram séu fullorðnir
aftursætisfarþegar með fætur. Enn
fremur er líklegt að erfitt sé að koma
stórum barnabílstólum fyrir.
Stærð og form skottsins er vel
nothæft. Afturhlerinn er breiður og
opnast það hátt að engin hætta er á
að reka höfuðið í. Gólfið flúttir við
afturhlerann og er smá geymslupláss
undir skottgólfinu, þó ekki nógu stórt
til að rúma varadekk.
Notalegur í akstri
Akstursupplifuninni má lýsa sem
notalegri. Veg- og vindhljóð er
prýðilega einangrað og stýrið er létt.
Auðvelt er að kveikja á skynvædda
hraðastillinum og akreinavaranum.
Þegar kerfið er í gangi sýnir bíllinn
mikið umburðalyndi gagnvart því
hvernig haldið er í stýrið – ólíkt
mörgum bílum – og því er auðvelt
að slaka á þegar keyrt er á góðum
vegum, eins og Reykjanesbrautinni.
Þá sér bíllinn um aksturinn eiginlega
alveg sjálfur.
Í þéttbýli er þægilegt að vera
með mjúka fjöðrun þegar ekið
er yfir hraðahindranir. Stiglaus
sjálfskiptingin er jafnframt í essinu
sínu þegar stöðugt er verið að stoppa
og taka af stað. Ökumaðurinn verður
í raun ekki var við hana.
Það sem kemur sérstaklega á óvart
með Toyota Yaris Cross er hversu
öflugur hann er á malarvegum. Í
þessum prufuakstri var farið yfir
blautan og holóttan veg með lausri
möl og Yaris kvartaði ekki neitt. Þegar
ekið var ofan í dýpstu holurnar var
glymurinn í farþegarýminu vel
dempaður og mjúk fjöðrunin virkaði
vel á þvottabrettum. Óverulegur
hávaði myndaðist vegna steinkasts
á undirvagninn.
Fjórhjóladrifið hjálpaði til við að
gera bílinn stöðugri í lausamölinni,
þó tekið skuli fram að þetta sé langt
því frá eins gott aldrif og í bílum eins
og Subaru.
Að lokum
Helstu mál í millimetrum – breidd
1.765; lengd, 4.180, hæð 1.595.
Hæð undir lægsta punkt er 17
sentímetrar. Ódýrasta útgáfa Yaris
Cross er á 5.250.000. Verð Adventure
útgáfunnar er frá 7.250.000. Bíllinn
í þessum prufuakstri, með nokkrum
aukahlutum, var á 7.312.950 krónur.
Allt verð með vsk.
Toyota Yaris Cross Adventure
er vel útbúinn bíll sem er jafnvígur
í borg og sveit. Þó þetta sé frábært
ökutæki, er líklegt að Yaris Cross eigi
erfitt með að keppa við fjöldann allan
af góðum rafmagnsbílum sem eru
nálægt þessum í verði. Þar má helst
nefna fjórhjóladrifinn Tesla Model 3,
sem er merkilegt nokk á nánast sama
prís og bíllinn í þessum prufuakstri.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Toyota Yaris Cross
Toyota Yaris Cross er fjórhjóladrifinn tvinnbíll þar sem afturhjólin eru knúin með rafmótor, á meðan framhjólin eru knúin af bensínmótornum. Þetta er bíll
með góða aksturseiginleika á fjölbreyttum. Veikasti hlekkurinn er hátt verð í samanburði við betur búna rafmagnsbíla. Myndir / ÁL
Lítið rými er í aftursætunum. Toyota leggur mikið í hönnun sinna bíla um þessar mundir.
Skottið er rúmgott og flúttir gólfið við hlerann. Margmiðlunarkerfið er gamaldags en gerir sitt.