Bændablaðið - 07.09.2023, Page 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Veðurfar leikur eitt stærsta
hlutverkið í kornrækt og því er
ekki hægt að stýra, ekki frekar en
annars staðar, en hér er allra veðra
von allan ársins hring. Norðlæg lega
landsins gerir það að verkum að
sumrin eru stutt og hitastigið svalt.
Hérlendis höfum við þó töluvert af
landi og vatni, sem er takmarkandi
þáttur víðs vegar annars staðar í
heiminum.
Innflutningur á byggi og hveiti
árið 2022 var um 60 þúsund
tonn, sem mögulega væri hægt
að rækta hérlendis og anna þar
með eftirspurn markaðarins,
að því gefnu að íslenskt korn
verði samkeppnishæft í verði
og gæðum. Að ekki sé talað um
ávinning þess að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og ná
markmiðum um kolefnishlutleysi,
að minnsta kosti að minnka
kolefnisspor, með því að rækta
vöruna hérlendis sem næst
neytandanum þar sem yfirvofandi
loftslagsvá og hamfarahlýnun skal
ekki taka af léttúð.
Kornrækt eykur fæðuöryggi
Til að íslenskt korn geti tekið við af
innfluttu korni þarf hins vegar fyrst
að þróa og skapa umgjörð fyrir
innlendan kornmarkað. Bændur
hafa kallað eftir einhvers konar
tryggingakerfi svo kornræktin
verði áhættunnar virði. Það er til
mikils að vinna ef vel tekst til,
m.a. að auka fæðuöryggi, tryggja
sjálfbærni og efla íslenskan
landbúnað.
Skýrslan „Bleikir akrar – aðgerða-
áætlun um aukna kornrækt“ er afurð
starfshóps matvælaráðherra sem var
útgefin fyrr á árinu. Þar er tekið fram
að kornrækt hefur verið stunduð
hérlendis frá landnámi, þó með
mislöngum hléum, en frá árinu 1990
tók kornrækt verulega að aukast
sem náði hámarki kringum 2010.
Þá fór örlítið að halla undan fæti
en hefur svo farið vaxandi á nýjan
leik. Síðastliðin ár hefur uppskera
aukist og er nú um 10.000 tonn,
mestmegnis bygg. Talið er að um
300 bændur standi að kornrækt
hérlendis. Það korn sem ræktað er
fer mest til fóðrunar eigin skepna
heima á bæjum.
Áætlanir segja til um að á næstu
20 árum geti markaður fyrir bygg og
hveiti hérlendis farið yfir 100.000
tonn, sem sagt tífaldast að stærð.
Aðkoma stjórnvalda
Einstaklingsframtak bænda hefur
vegið þungt í kornrækt hérlendis
en ríkið hefur hingað til lítið komið
að stuðningi við greinina, sem er
sérstakt í ljósi þess að um 25% af
orkuneyslu mannsins kemur frá
korntegundum.
En nú kveður við nýjan tón hjá
stjórnvöldum og eflaust hafa þættir
eins og heimsfaraldur kórónuveiru,
stríðsátök í heiminum og loftslagsvá
ýtt við ráðamönnum því samkvæmt
fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
verða tveir milljarðar, á árunum
2024–2028, nýttir til þess að hrinda
aðgerðaáætlun um aukna kornrækt í
framkvæmd. Nú eru einungis fjórir
mánuðir eftir af árinu, eða þangað
til þessir fjármunir, eða hluti þeirra,
eiga að koma inn í greinina.
Leitað var eftir svörum um
ráðstöfun þessara fjármuna til korn-
ræktar á Íslandi hjá matvæla-
ráðuneytinu en ekki fengust svör
í tæka tíð fyrir prentun.
Álit sérfræðinga
Hrannar Smári Hilmarsson starfar
sem tilraunastjóri Jarðræktar-
miðstöðvar Landbúnaðarháskóla
Íslands (LbhÍ) og er einn höfunda
skýrslunnar Bleikir akrar.
„Fyrsta forgangsmál kornræktar
á Íslandi er að það þarf að kynbæta
korn. Allt annað verður til einskis
ef ekki verða til kynbætur á korni,
eins og annars staðar í heiminum.“
Hrannar segir kynbætur á korni
hafa legið í dvala hérlendis, alveg
síðan kynbótaverkefni Jónatans
Hermannssonar lögðust af fyrir
mörgum árum og í samanburði við
nágrannalönd okkar erum við langt
á eftir í plöntukynbótum.
„Á þessari öld hefur þróun í
plöntukynbótum verið gríðarlega
hröð sem við höfum algjörlega
farið á mis við. Þegar kornkynbætur
hérlendis hefðu átt að eflast lögðust
þær nánast af.“
Hrannar telur ástæðuna hafa
verið skipulagsleysi og skort á
fjármagni. Hann bendir jafnframt á
að erlendis eru einkarekin fyrirtæki
sem starfa að plöntukynbótum en
slíkt er ekki raunhæft hérlendis.
Það hafi svo ekki verið fyrr
en ráðherra matvæla, Svandís
Svavarsdóttir, skipaði starfshóp
sem skrifaði áðurnefnda skýrslu,
Bleikir akrar, að hjólin fóru að
snúast á nýjan leik.
Hrannar fagnar því hversu vel
ráðherra hefur tekið í skýrsluna og
að hún sýni það í verki en áætluð
er tveggja milljarða innspýting
í greinina næstu fjögur ár, 2024
til 2028.
FRÉTTASKÝRING
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.ISINFO@UU.IS
*Verð á mann m.v. 2 fullorðna. Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvalla-
gjöld og skattar, gisting með morgunverði, ferðataska og handfarangur.
Keflavík Agadir Agadir Keflavík
09:00 15:00 19:15 22:30FRÁBÆRIR
FLUGTÍMAR
TAKMARKAÐUR
SÆTAFJÖLDI!
GISTING MEÐ
MORGUNVERÐI
AGADIR, MAROKKÓ
BEINT FLUG OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN
verð frá 149.900 KR.*
31. OKTÓBER - 8. NÓVEMBER 8 DAGAR
Kornrækt:
Í sókn eftir erfiðleika
– Hefur þessum málaflokki verið sinnt með fullnægjandi hætti?
Kornrækt hefur verið stunduð hérlendis frá landnámi, þó með mislöngum hléum, en frá árinu 1990 tók kornrækt verulega að aukast sem náði hámarki
kringum 2010. Myndir / Hrannar Smári Hilmarsson
Kornrækt virðist vera í sókn á nýjan leik og hefur ákvörðun stjórnvalda
að setja töluvert fjármagn inn í greinina hjálpað mikið til. Starfshópur
á vegum matvælaráðuneytis framkvæmdi ítarlega úttekt á stöðu
kornræktar á Íslandi sem leiddi til umbreytinga.
Þórdís Anna Gylfadóttir
thordisannag@gmail.com
Fyrsta forgangs-
mál kornræktar
á Íslandi er að það
þarf að kynbæta korn.
Allt annað verður til
einskis ef ekki verða
til kynbætur á korni,
eins og annarsstaðar í
heiminum...“