Bændablaðið - 07.09.2023, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
LÍF&STARF
„Ég stend með sveitinni,
hún er minn heimur“
– Verk Ísleifs Sesselíusar Konráðssonar sýnd á Drangsnesi
Verk eins helsta naívista þjóðar-
innar eru um þessar mundir til sýnis
á gamla bókasafninu á Drangs-
nesi við Steingrímsfjörð.
Ísleifur Sesselíus Konráðsson var
alþýðulistamaður, fæddur á Stað í
Steingrímsfirði árið 1889. Ungur vann
hann ýmis störf til sjós og lands en fór
til Danmerkur um þrítugt og starfaði
m.a. á Hovedbanegaarden, í Tívolí og
á Dyrehavsbakken í um hálfan annan
áratug. Hann hafði áhuga á myndlist
og sagan segir að hann hafi einhverju
sinni hitt Kjarval og sá síðarnefndi
hvatt hann til að kaupa sér liti og léreft
og hefjast handa. Ekki er vitað til að
Ísleifur hafi hlotið leiðsögn í málaralist.
Hann var einfari í íslenskri myndlist,
sjálflærður og kom sér á efri árum upp
eigin myndveröld, handan við sögu og
tíma, eins og Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur segir í hugleiðingu um
verk hans. Myndir hans eru málaðar
hnausþykkum litum og sýna gjarnan
landslag, ekki endilega raunverulegt
heldur eins og það er í hugskoti
listamannsins, gróður, fuglalíf og
kennileiti.
Hvítt rósatraf
„Í myndum Ísleifs víkur eltingaleikur
við staðreyndir alltaf fyrir lönguninni
til að „hafa líf í náttúrunni“, eins
og hann segir í viðtali við Matthías
Johannessen [Morgunblaðið, 1962,
innsk.blm.]. Og náttúran í verkum
hans er sannarlega sneisafull af
lifandi verum (þó ekki mannverum,
við þær réði hann sennilega ekki):
hestum, kindum, hreindýrum,
hvítabjörnum og umfram allt
fuglum,“ skrifar Aðalsteinn.
Listamaðurinn taldi náttúruna fulla
af vættum og ástæðu þess að menn
sæju ekki t.a.m. huldufólk vera þá að
„filman í skynjun okkar sé undirlýst“.
Hann sá aldrei huldufólk sjálfur en
bað fólk um að raska ekki ró þess þar
sem verk hans voru sýnd. Í fyrrnefndu
viðtali við Matthías sagðist Ísleifur
aldrei mála sólsetur því hann vildi
hafa tröll í myndum sínum og þau
væru aðeins á ferli um nætur. Hann
hafði litlar mætur á borginni, þar sem
engar væru vættirnar, en þær tengdust
landinu í sinni hreinustu og tærustu
mynd. Skýin voru í hans huga ein
tærasta ímynd fegurðar og kallaði
Ísleifur þau „hvítt rósatraf“. Í verkum
hans er alltaf veðurblíða enda gætti
hann þess að ekki „laumaðist nein
vitleysa inn í myndirnar“.
Ísleifur sagði enn fremur í
viðtalinu að hauststjörnurnar væru
óvenju fallegar við Steingrímsfjörð,
sumarnæturnar heiðar og bjartar og að
þær færu svo vel við kletta og grænar
lautir að ómögulegt sé að fyrirgefa
nokkrum manni sem lætur sér sæma
að eyða slíkri fegurð til einskis. Á
slíkum stað sé ekki hægt að komast
hjá því að vera ástfanginn.
Búsæld og fegurð
haldast í hendur
Í samantekt Ólafs J. Engilbertssonar
um Ísleif segir að í huga listamannsins
hafi mestu hamingjustundir hans
verið að sitja yfir ánum fyrir
norðan og gleyma sér með þeim
og því til áréttingar segir Ísleifur í
fyrrnefndu viðtali: „Nú flykkjast
allir til Reykjavíkur og halda að þar
séu fallegar lautir og grasivaxnir
balar, en það er ekki hægt að bera
það saman við Steingrímsfjörð. Ég
stend með sveitinni, hún er minn
heimur. Ég hef tekið sveitina með
mér, hvert sem ég hef farið. Ég hef
aldrei vogað mér lengra en svo að
ég gæti tekið æskustöðvarnar með
mér.“ Steingrímur lést árið 1972
og hvílir í Drangsneskirkjugarði.
Björn Th. Björnsson listfræðingur
skipulagði útför hans fyrir hönd
vina listamannsins. Hafði Björn
ritað í sýningarskrá fyrstu sýningar
Ísleifs, í Bogasal árið 1962, að
myndveröld hans ætti rætur í íslenskri
bændamenningu „... þar sem búsæld
og fegurð haldast jafnan í hendur og
hrikaleikinn er sem oftast í bland við
einhverjar duldar vættir“.
Það er Steingrímur listafélag sem
stendur að sýningunni og standa þar
að baki þær Ásta Þórisdóttir, Didda H.
Leaman, Inga Þórey Jóhannsdóttir og
Þórunn Björnsdóttir. Þær segja verk
Ísleifs hafa ratað víða en ekki verið til
nein heildarskrá um þau fram að þessu.
Því er óskað eftir upplýsingum frá
fólki um hvað eina sem tengist Ísleifi,
svo sem ljósmyndum af verkum hans
og honum sjálfum auk upplýsinga um
t.d. ljóð hans og muni.
Aðstandendur sýningarinnar
bjóða upp á vinnustofur fyrir
grunnskólanemendur á svæðinu í
tengslum við sýninguna. Hún ber
heitið Ísleifur á heimaslóð og verður
opin til 17. september nk.
Götuskráð,
hvít númer
Krókur,
dráttargeta
680 kg
Ultramatic sjálfskipting
10 ára ábyrgð á reim,
5 ára ábyrgð á hjóli Hátt og lágt drif
og driflæsingar
Einungis 307 kg
með bensíni og olíum
Warn spil
að framan
Rafmagnsstýri
Þrautreynd við íslenskar aðstæður
— verð frá 2.560.000 kr.
Mikið úrval aukahluta í boði s.s.
aukasæti og fótstig, framrúða,
töskur omfl.
YAMAHA GRIZZLY
EPS FJÓRHJÓL
— klár til afgreiðslu!
Yamaha á Íslandi
Kletthálsi 3, 110 Reykjavík
S 540 4980 | www.yamaha.is
Umboðsaðili
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Grímsey á Steingrímsfirði. Drangar.
Rauðisandur.Kaldrananes.
Verk Ísleifs Konráðssonar eru sýnd í gamla bókasafninu á Drangsnesi í
Strandasýslu. Myndir / Steingrímur listafélag
Ísleifur Sesselíus Konráðsson.