Bændablaðið - 07.09.2023, Side 33

Bændablaðið - 07.09.2023, Side 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 í Rússlandi hefur tekið miklum breytingum. Um miðja síðustu öld var viðurinn bundinn saman í fleka og honum fleytt niður árnar (norður að Íshafi) að næstu sögunarmyllu eða uppskipunarhöfn, þá tapaðist mikið af við út í Íshafið. Í kringum 1990 var byrjað að setja viðinn á pramma og draga með dráttarskipum niður árnar. Frá því í kringum 1950 hefur skógarhögg í Rússlandi aðallega farið fram á vatnasvæði Yenisey-fljóts í Síberíu og í Evrópuhluta Rússlands.“ Ólafur segir að önnur ástæða fyrir minni reka við strendur Íslands sé að hafís norðurskautsins fari sífellt minnkandi vegna hlýnunar loftslags og sjávar. „Viður getur ekki flotið á opnu hafi nema í takmarkaðan tíma en timbrið verður þá vatnsósa og sekkur. Eftir því sem hafísinn minnkar þarf viðurinn að fljóta lengur á opnu hafi. Forsenda þess að viðurinn nái til Íslands er að hann sé sem lengstan tíma frosinn fastur í hafísinn. Þegar viðurinn berst inn í Íshafið frá ánum í Rússlandi frýs hann fastur í ísinn og ferðast með honum þar til hann bráðnar en það gerist þegar ísinn berst inn í Atlantshafið með Austur- Grænlandsstraumnum,“ segir hann. Árið 1993 birti Ólafur greinina Uppruni rekaviðar við Íslandsstrendur; tímatals- árhringjafræðileg rannsókn (Origin of the driftwood on the coasts of Iceland; A dendrochronological study, Jökull, no 43, 1993./Flottími). Þar segir: „Við frá fjarlægum löndum rekur sífellt að ströndum landsins. Útbreiðsla hans er breytileg en segja má að finna megi rekavið með fram allri strandlengju landsins.“ Fram kemur að tímatals- árhringjarannsóknir hafi lengi verið notaðar til að áætla uppruna rekaviðar. Í niðurstöðum Ólafs segir að rekaviður sem falli til við strendur Íslands samanstandi einkum af furu og greni; söguðum trjábolum. Stór hluti af rekanum sé þó lerki af náttúrulegum uppruna sem hafi rofist úr bökkum fljóta í Austur-Síberíu. „Í okkar fyrstu rannsóknum á reka við Ísland fundum við ekki reka frá Alaska né Kanada,“ segir Ólafur og heldur áfram: „Síðar fundum við greni sem komið hafði frá Mackenzie-fljóti í Kanada og frá Yukon í Alaska en mjög sjaldgæft.“ Ekki hefur verið áætlað hversu mikill reki berst til landsins á hverjum tíma, að sögn Ólafs. Rekinn var lífsbjörg Reki hefur þekkst frá öndverðu. Fornmenn nýttu rekavið á Íslandsströndum og hefur hann væntanlega bjargað þeim mörgum frá bráðum bana vegna kulda og vosbúðar og nýst sem eldsmatur og til skálabygginga. Í þá tíð var láglendið þakið birkiskógi en skógarhögg til eldiviðar og einnig beit gekk fljótt á hann. Þá varð rekaviðurinn mikilvægasta efnið fyrir hús, báta brýr, landbúnaðartæki og búsáhöld. Elsta kerfisbundna rannsókn á hérlendum reka var gerð um 1780 af Olaviusi þegar hann ferðaðist fyrir hönd dönsku krúnunnar um landið til að kanna efnahag landsmanna. Hann lýsti gerð rekaviðar, magni, notagildi og uppruna. Dr. Ivar Samset, fv. prófessor við norska landbúnaðarháskólann í Ási, gerði árið 1990 magnmælingar á reka í Skjaldbjarnarvík. Árlegt viðarmagn reyndist að meðaltali 38 rúmmetrar á hvern hektara fjörunnar. Af rekaviðnum reyndust 42% vera lengri en 3 metrar, 23% gildari en 20 cm og 70% stærri en 0,1 rúmmetri. „Það eru ekki margir skógarteigar í Noregi sem státa af slíku viðarmagni,“ skrifaði Samset. Elsta tré sem hann aldursgreindi eftir árhringjum var 365 ára gamalt lerkitré á Gálmaströnd í Steingrímsfirði, en fjöldi trjáa var 200–300 ára gamall. Fyrr á tíð merktu þeir sem áttu rekafjörur gjarnan reka sinn með persónulegu marki og varð þá óhægara um vik að stela rekavið úr fjörum annarra. Fjöldinn allur af íslenskum örnefnum bera vott um rekavið, svo sem Reki, Rekavík, Rekavatn, Rekaá og mögulega Keflavík og Bolungarvík, svo eitthvað sé nefnt. Þá eru allmörg rekaviðartengd orð í málinu, eins og til dæmis keflareki, plankareki, raftur, rekafjara, rekaítak, rekapláss og jafnvel vogrek. /sá Úr Finnafirði. Hér má sjá dæmi um hvernig bóndinn á Felli hefur nýtt reka sinn til uppbyggingar á aðstöðu fyrir sjósundgesti. Mynd / R.S. Haukur og Kiddi eru ekki róbótar Hringdu í vini og fáðu tilboð hjá fyrirtækjaþjónustu Olís, í síma 515 1100, eða á olis.is. Fyrirtækjaþjónusta Olís Alvöru fólk með alvöru þekkingu og reynslu Þeir eru alvöru sérfræðingar með áratuga reynslu og vita allt um smurolíur á landbúnaðartæki jafnt sem skipaflotann. VIÐ YFIRFÆRUM EFNIÐ Á STAFRÆNT FORM • Á DVD DISKA • MINNISLYKLA • STÆRRI MINNISDRIF FULLKOMINN TÆKJABÚNAÐUR MUNU GLATAST! MINNINGAR ÞÍNAR SPÓLUR ERU AÐ NÁLGAST ÞAÐ SÍÐASTA Trönuhraun 1, 220 Hafnarfirði. Sími 534 0400 myndform@myndform.is FÓÐUR TIL FRAMTÍÐAR Fóðurráðgjöf og heysýnataka EFTIRLIT & EFTIRFYLGNI FRÁBÆR ÁRANGUR FAGLEG RÁÐGJÖF NÁIÐ SAMSTARF Landstólpi býður upp á heysýnatöku ásamt fóðuráætlanagerð og ráðgjöf varðandi val á kjarnfóðri. Við viljum ekki einungis bjóða upp á gott fóður og góða ráðgjöf heldur viljum við einnig upplýsa þig, hvetja og kveikja áhuga. Ekki hika við að hafa samband við fóðurráðgjafa okkar í síma 480 5600 eða senda póst á netfangið landstolpi@landstolpi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.