Bændablaðið - 07.09.2023, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
LÍF&STARF
Ræktar skarfakál í Grímsey
– Listakonan Mayflor Perez Cajes er ættuð frá Filippseyjum og hefur alltaf haft áhuga á að nýta náttúruna til matargerðar
Í Grímsey er nú í gangi tilrauna
verkefni sem snýst um ræktun
á skarfakáli, sem síðan á að
markaðssetja ferskt, þurrkað og
sem skarfakálspestó.
Kjörlendi er í Grímsey fyrir vöxt
á villtu skarfakáli en eyjan hentar
einnig vel til ræktunar á þessari mat-
og lækningajurt. Hún á auðvitað
sérstakan sess í þjóðarvitund
Íslendinga sem hafa löngum gripið
til hennar til að lækna og koma í veg
fyrir skyrbjúg, vegna þess hversu
auðug hún er af C-vítamíni.
Ættuð frá Filppseyjum
Frumkvöðullinn sem stendur
að tilraunaræktuninni heitir
Mayflor Perez Cajes, er ættuð frá
Filippseyjum en kom átta ára gömul
til Íslands og er nú gift Grímseyingi.
Hún segir að skarfakálið sé að vissu
leyti erfitt í ræktun og lítil reynsla sé
af slíkri ræktun almennt í heiminum
eftir því sem hún best viti.
„Þess vegnar er ég eiginlega að
ryðja brautina og prófa mig áfram,
get lítið stutt mig við reynslu
annarra. Það þurfa að vera ákveðin
skilyrði til staðar, skarfakál vex
vel í söltu umhverfi og sendnum
jarðvegi. Því líður best utan dyra
og þrífst vel innan um illgresi.
Skarfakál er af krossblómaætt, eins
og kál, rófur, grænkál og brokkolí.
Ég hef tekið eftir því að þegar það
vex villt eitt og sér, þá gulnar það
frekar og virkar ekki eins heilbrigt.
Ég held að það sé vegna þess að
það fær þá ekki skjól frá öðrum
plöntum.
Ég hef prófað að rækta það í
mold sem er keypt verslun, en kálið
hefur ekki lifað lengi í henni. Þá hef
ég komist að því að jarðvegurinn
sem það vex í þarf að vera mjög súr.
Sem hentar okkur vel því við erum
með kindur hér og getum nýtt súrt
sauðataðið sem áburðargjafa.“
Frístundabúskapur með kindur
„Við erum með um 80 kindur,
fjölskylda mannsins míns og höfum
verið í þessum frístundabúskap frá
2009,“ segir Mayflor. „Þau komu
hingað árið 1984 frá Hjalteyri. Við
erum líka með hænur. Afgangurinn
af skarfakálinu sem ég er að vinna
með fer í hænurnar og kindurnar.
Við höldum að lömbin okkar verði
óvenju stór vegna þess að þau hafa
skarfakálið.
Hér er slátrað heima og vinir
okkar njóta góðs af því líka í
vöruskiptum. Við þurfum aldrei að
kaupa lambakjöt.
Ég geri mér einnig vonir um að
sauðfjárræktin gagnist við sjálfa
ræktunina og ætla að gera tilraunir
með að rækta kálið í snoðull, því
hún er heldur rakanum svo vel í sér.“
Vinnslupláss hjá Vörusmiðjunni
Að sögn Mayflor stendur þessi
þróunarvinna nú yfir, sem felst bæði
í tilraunaræktuninni en líka að safna
fræjum, þurrka þau og sá síðan fyrir
næsta sumar. Samhliða vinnur hún
að tilraunum í úrvinnslu á villtu
káli og markaðsmálum.
„Ég er með tvær vörutegundir
í vinnslu og hef fengið pláss
í aðstöðu vörusmiðjunnar á
Skagaströnd. Önnur tegundin er
bara þurrkað skarfakál en hin er
skarfakálspestó. Það er ekki komið
söluleyfi en vonandi kemur það
sem fyrst.
Ég reikna með að byrja á því
að selja vörurnar bara á matar-
mörkuðum – þannig að þær fara
ekki strax inn í matvörubúðir.
Krónan hefur samt sýnt áhuga á
vörunum frá mér þegar allt verður
tilbúið og svo hef ég fengið góð
viðbrögð frá veitingastöðum við
hugmyndinni.“
Saltur og sætur keimur
„Það er mjög sætur keimur
af kálinu í bland við saltið,“
segir Mayflor spurð um
bragðeinkennin. „Sumir
hafa lýst sinnepskeimi
en ég held að það sé
ekki rétt. Hins vegar
er smá piparbragð,
í ætt við klettasalat
og það getur verið
að fólk tengi
það við sinnep.
En auðvitað eru
bragðlaukar fólks
mismunandi og fólk
finnur ekki alveg
sama bragðið.
Það er rosalega
gott bara sem
ferskt salat, til
dæmis í salat-
b l ö n d u . S v o
er það þekkt
lækninga jurt
með ýmsa góða
eiginleika.“
Heimskautsbaugurinn hentar
vel til markaðssetningar
Mayflor hefur gefið vörumerki sínu
heitið Skarfakál ArcticCircle, sem
hún segir mjög viðeigandi vegna
þess að heimskautsbaugurinn liggur
jú þvert í gegnum Grímsey, frá vestri
til austurs.
„Það ætti að henta vel til
fyrir markaðssetninguna, en ég
er einmitt að gera viðskipta-
áætlun núna og er kominn með
lógó. Erlendir ferðamenn eru
flestir mjög meðvitaðir um að
heimskautsbaugurinn liggur í
gegnum eyjuna og áhugasamir um
hann. Hún segist alltaf hafa haft
áhuga á að nýta náttúruna til matar-
gerðar og svo týnir hún jurtir
líka til tegerðar – til dæmis villta
blóðbergið.
„Ég ólst upp við þessa hugsun
á Filippseyjum. Afi minn var
maísbóndi og því í nánu sambandi
við náttúruna eins og margir
Filippseyingar eru“
Listaverk úr svartfuglseggjum
Í nokkur ár hefur Mayflor
unnið listaverk úr svartfugls-
og langvíueggjum, sem njóta
vaxandi vinsælda meðal
ferðamanna sem koma í
Grímsey. „Standurinn fyrir
eggin er úr rekaviði sem
sóttur er í fjörur Grímseyjar.
Ljós er sett í standinn og svo
eru útlínur og Grímseyjar
og Íslands boruð í
eggin. Svo set ég
resin efni yfir eggin
til að styrkja þau.
Ég hef líka verið
að gera skartgripi úr
eggjunum, nýti skurn-
ina sem brotnar til
að útbúa hálsmen.“
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Heyskapur í Grímsey. Myndir / Mayflor
Mayflor segir að bragðið af skarfakálinu sé bæði salt og sætt.
Fræjum hefur verið safnað í sumar.
Svo eru þau þurrkað og svo sáð fyrir
næsta sumar.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf