Bændablaðið - 07.09.2023, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Mikill áhugi er meðal heima
manna á þessari listsköpun, að
sögn Mayflor, enda eru listaverkin
góð kynning fyrir eyjuna. „Nú þarf
bara að kynna eyjuna betur fyrir
Íslendingum,“ segir hún.
Heyrt sögur og lesið um
skarfakálið
Verkefni Mayflor á næstu mánuðum
mun því á næstu mánuðum snúast
um að nýta og rækta skarfakál,
auk þess að halda striki sínu í
listsköpuninni. „Skarfakálið er
fyrsta flokks hráefni frá náttúrunnar
hendi; bragðgott, Cvítamínríkt og
græðandi, sem gerir það tilvalið í
matargerð og matvælaframleiðslu.
Frá því ég flutti til Grímseyjar
árið 2009 hafði ég heyrt sögur og
lesið um skarfakálið, sem hér vex
allt í kringum okkur. Heimamenn
tína kálið og nota í matargerð
heimavið en mig langaði til þess
að gera meira og kynna landann og
ferðamenn fyrir þessum vannýtta
mat. Hér eru kjöraðstæður til að
rækta skarfakál því kálið vill
gjarnan vera í söltu umhverfi og
helst nálægt björgum.
Ætlaði upphaflega
að nýta þara í Grímsey
Hún segir að sér hafi fyrst
dottið í hug að rækta skarfakál
árið 2012. „Reyndar var efst á
hugmyndalistanum að nýta þara í
Grímsey, en það er frekar langsótt.
Ráðgjafinn hjá SSNE nefndi þá
skarfakál við mig og það var einmitt
númer tvö á listanum hjá mér, svo
ég fór af stað með þetta.“
Mayflor fæddist í Filippseyjum
en kom til Íslands árið 1991, en hún
ólst upp í Ólafsvík. Hún er fjögurra
barna móðir.
Hún var valin í tíu manna hóp
viðskiptahraðalsins Vaxtarrýmis
hjá Norðanátt árið 2022 og tók svo
þátt í viðskiptahraðli Atvinnumála
kvenna. Skarfa káls verkefni Mayflor
hefur verið styrkt af Sóknar
áætlun Norður lands eystra og
Atvinnumálum kvenna.
Tilraunaræktunin gengur vel eins og sést vel á þessum tveimur myndum.
NT ryksugur
HDS háþrýsti/hitadælur
Hreinsibúnaður og vélar
PGG rafstöðvar
K háþrýstidælur HD háþrystidælur
rafver.is - S: 581 2333 - rafver@rafver.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar