Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Hjónin Jóhann Pjetur Jónsson
og Harpa Jóhanna Reynisdóttir
á Hæl í Flókadal hafa smalað
umferðarþyngstu þjóðvegi Vestur-
lands frá árinu 2008.
Fyrir hverja helgi á sumrin reka
þau fé af vegunum til að fækka
slysum, en vegna umferðarþunga
sinna þau þessu starfi á næturnar.
Yfir björtustu mánuðina geta
Jóhann og Harpa smalað í kringum
miðnætti. Þegar dagarnir styttast
þurfa þau alltaf að seinka brottför
og þegar Bændablaðið slóst með í
för fyrir skemmstu, fóru þau af stað
í birtingu klukkan fimm að morgni.
Hjónin fara alltaf á fimmtudögum
og föstudögum, til þess að færra
sauðfé sé á þjóðvegunum þegar
mesta umferðin er um helgarnar,
og aka samtals 330 kílómetra.
Jóhann segir að þetta sé minnst
tveggja manna verk, þar sem
annar aðilinn þurfi að aka bílnum,
á meðan hinn sér um að reka.
Jóhann sinnir oftast nær akstrinum
en hann segir Hörpu vera lunknari
með hundinn, níu ára Border Collie
sem heitir Kolur.
Fylgjast með sauðfé og bílum
Ferlið er yfirleitt þannig að þau
aka eftir veginum og fylgjast með
hvort þau sjái kindur á vegstæðinu,
eða utan girðinga í návígi við
þjóðveginn. Þau byrja gjarnan á að
stugga við fénu með því að aka á
eftir þeim flautandi. Þegar Jóhann er
búinn að athuga hvort enginn bíll sé
í návígi fer Harpa út. Kindurnar vita
margar hvað er í vændum og hlaupa
í burtu um leið og Kolur stekkur úr
bílnum. Harpa skráir niður hvar þau
stoppa og fjölda kinda á hverjum
stað og eru gögnin notuð í tölfræði
hjá Vegagerðinni.
Kindurnar rata oft aftur í göt á
girðingunum, en víða eru hlið sem
hægt er að hleypa þeim í gegn.
Í Norðurárdal er stórt svæði þar sem
þjóðvegurinn er ekki girtur, en þá
hlaupa kindurnar yfir á. Þetta starf
er á vissan hátt eilífðarverkefni þar
sem margar kindur fari fyrr en seinna
aftur á veginn. Harpa nefnir þó að
kindurnar geti dólað sér í nokkra
daga í öruggri fjarlægð frá veginum,
eftir að þær hafa verið reknar.
Þar sem hjónin hafa sinnt þessu
starfi í fimmtán ár þekkja þau
leiðina afar vel. Þau vita því hvar
öll hlið sem má reka í gegnum eru
staðsett og hvert sé best að stugga
fénu hverju sinni. Þau segja að
þetta séu oft sömu kindurnar sem
þau eru byrjuð að þekkja. Þau nefna
dæmi um botnótta á með tveimur
botnóttum lömbum, sem þau sáu
alltaf á sama stað við þjóðveginn eitt
sumarið. Í lok sumars hefur líklega
einhver keyrt á ána, því þau hættu að
sjá hana en lömbin héldu sig áfram
á sama stað.
Frá Hvalfjarðargöngum
að Holtavörðuheiði
Á fyrri smaladeginum, sem er
fimmtudagur, hefjast hjónin handa
við Borgarfjarðarbraut við Flókadal.
Þar aka þau Borgarfjarðarbraut að
Baulu. Þaðan aka þau Hringveginn
í átt að Borgarnesi. Þá fara þau
LÍF&STARF
Stóðréttir haustið 2023
Stóðréttir verða með sama brag og venjulega og birtist hér listi yfir þær
helstu á landinu. Listi yfir fjárréttir eru á blaðsíðum 32-33 og upplýsingar
um viðbætur eða leiðréttingar skal senda á netfangið rebekka@bondi.is.
/smh
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. sunnudaginn 1. október 11.00
Árhólarétt (Unadalsrétt) við Hofsós, Skag. föstudaginn 29. september
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 29. september
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. Vantar upplýsingar
Fossárrétt á Skaga, A.-Hún. laugardagur 16. september
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnud. 17. september kl. 16.00
Kjalarlandsrétt, A.-Hún. laugardaginn 16. september
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 30. september
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. október
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. sunnud. 10. september kl.11.00
Selnesrétt á Skaga, Skag. laugardaginn 16. september
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 16. september
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudag.17. sept. kl.11.00
Staðarrétt í Skagafirði laugardaginn 16. september
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 7. október
Unadalsrétt (Árhólarétt) við Hofsós, Skag. Upplýsingar vantar.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. sunnud. 24. sept. kl. 09.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 7. október kl. 11.00
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. október
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugard. 30. sept. kl. 12:30
ÞARFTU AÐ KOMAST
AAAÐEINS HÆRRA?
Frábær samanbrjótanlegur vinnupallur
60 x 196cm, vnr. 50190824 www.byko.is
NÚNA -33%
59.995
89.995
Nætursmalar
– Smala þjóðvegi Vesturlands
Jóhann segir Hörpu lunknari með hundinn. Hann sér því um aksturinn.
Sauðfé rekið af Hringveginum í Norðurárdal í birtingu á föstudegi. Til að fækka slysum í helgarumferðinni á sumrin
lætur Vegagerðin á Vesturlandi verktaka smala umferðaþyngstu vegina vikulega. Myndir / ÁL