Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
LÍF&STARF
Dalahvítlaukur:
Búið að selja nær alla 6–8 tonna
uppskeru næsta árs
– Nálgast ræktunina lífrænt og vinna nú að því að rækta upp jarðveginn
Farsælli tilraunaræktun hvít
lauks bændanna í NeðriBrekku í
Dölum er nú lokið. Næsta sumar
verður markið sett hátt, en þá
er fyrirhugað að senda á bilinu
sex til átta tonn af Dalahvítlauk í
íslenskar matvöruverslanir.
Þegar blaðamann bar að garði
var uppskeru nýlokið og ferskur
hvítlaukurinn hékk í gróðurhúsinu
til þerris. „Við höfum tekið tvö
markviss sumur í þessa tilrauna-
ræktun og erum komin með nokkur
yrki sem við ætlum að nota til
ræktunarinnar næsta sumar. Það þarf
líka að rækta jarðveginn upp – ná
upp almennilegum lífrænum massa.
Það höfum við gert á undanförnum
tveimur árum og ætlum að halda því
áfram,“ segir Haraldur Guðjónsson,
hvítlauksbóndi í Neðri-Brekku.
Setja niður um 40 þúsund geira
Þau Þórunn Ólafsdóttir, kona hans,
eru komin í samstarf við breskan
hvítlauksræktanda, The Garlic Farm,
á eyjunni Isle of Wight í Englandi,
og kaupa útsæði af honum. Þau eiga
von á um 40 þúsund hvítlauksgeirum
í lok september sem þau munu setja
niður nú í haust. Þangað til munu
þau vinna í hvítlauksbeðunum.
Þau hafa notið liðsinnis Arnars
Eysteinssonar, bónda í Bessatungu,
við jarðvegvinnuna en af föður
hans, Eysteini Þórðarsyni, keyptu
þau einmitt sitt land í Neðri-Brekku.
„Það er hellingur af grjóti í landinu,
en við höfum aðgang að tæki hér
á næsta bæ sem tekur stærstu
steinana. Þá hefur Arnar smíðað
einfalt lítið snilldartæki fyrir
okkur sem við notum til að móta
beðin í snyrtilegar raðir. Við notum
viðarkurl á milli beða í tvennum
tilgangi, bæði fagurfræðilegum en
einnig virkar kurlið sem eins konar
hvati fyrir tiltekinn sveppagróður
í beðunum sem líka hamlar
illgresisvexti,“ segir Haraldur.
Hann bætir við að Gunnbjörn hjá
Kol ehf., sem er flutningsþjónusta
í Búðardal, hafi verið þeim mikil
hjálparhella og séð um að þau fengju
hæfilegan efnivið, eins og trjákurl úr
Skógrægt Vesturlands og moltu frá
Flúðasveppum.
Kröfuharður hvítlaukur
Þau segjast hafa unnið heimavinnuna
vel og kannað í þaula hvernig hægt
er að bæta jarðveginn með lífrænum
aðferðum svo hvítlauksræktunin
megi takast eins vel og mögulegt er
miðað við staðhætti. „Hvítlaukurinn
þarf frjósaman jarðveg og þrífst
illa í bleytu. Þá þolir hann ekki
illgresi og ég hef samviskusamlega
passað upp á að hreinsa öll beð
af öllu slíku, pikkað hvert einasta
upp með höndunum. Svo þarf hann
helst skjól,“ segir Þórunn spurð um
helstu kröfur hvítlauksins varðandi
ræktunarskilyrði.
„Við höfum talsvert pælt í
því hvernig við getum haldið
jarðveginum frjósömum án þess
að nota tilbúinn áburð – við ætlum
okkur nefnilega á næstu árum að
sækjast eftir því að fá lífræna vottun
fyrir vörumerkið okkar. Í grúski
okkar komumst við á snoðir um
ræktunaraðferð sem kallast á ensku
„cover crop“, en þá er sáð fyrir
tilteknum fjölbreyttum þekjugróðri
í beðunum eftir uppskerutímann til
að vernda og auðga jarðveginn,“
bætir Þórunn við.
Byltingarkennd aðferð
Haraldur segir að þekjugróðurinn
séu einærar jurtir sem sáð sé með
þar til gerðu sáningartæki í sex
raðir í hvert beð. Það eru bygg,
hafrar, vetrarhveiti, vetrarrúgur,
fóðurflækja, hestabaunir, ertur,
mungbaunir, bókhveiti, mustard
white, radísur og grimson clover.
Cover Crop er hluti af byltingar-
kenndri aðferð og breytingu í land-
búnaði, sem kallast á ensku
„Regenerative Acriculture“. Hún
snýst aðallega um að snúa ekki
jarðvegi, heldur nota einæran
þekjugróður, stunda beitarstjórnun
og skiptiræktun, þar sem hún á við.
Á ensku hefur þessi nálgun verið
kölluð „No-Till, Cover Crops,
Control Grazing and Crop Rotation,“
útskýrir Haraldur.
Fyrstu tilraunir með
hvítlauksræktun árið 2019
Þórunn byrjaði að prófa sig áfram
með ræktun á hvítlauk strax árið
2019, eftir að hafa sótt fyrirlestur
hjá Garðyrkjufélagi Íslands.
„Mér fannst þetta bara svo
áhugavert þegar þau bentu á að þetta
væri vel hægt á Íslandi. Maður hafði
verið að kaupa þennan innflutta úti
í búð og ég tók eftir því að þegar
hann hafði verið geymdur í tvær
til þrjá vikur, þá varð hann nánast
orðinn að dufti. Þessi tegund sem
er hér algengust er mjög hraðvaxta
– og laukurinn hraðþurrkaður – og
því má segja að bragðgæðin og
geymsluþolið sé mjög í samræmi við
það,“ segir Þórunn sem lengi hefur
haft áhuga á matargerð og gæðum
hráefna til matargerðar.
Haraldur er búfræðingur frá
Hvanneyri og segja þau að bak-
grunnur þeirra beggja fari vel saman
í þessu hvítlauksverkefni.
Þau stefna bæði að því að hætta
að vinna í daglegri reglulegri
vinnu á næsta ári en segja að það
sé bæði gefandi og skemmtilegt
að geta helgað sig þessari ræktun í
Dölunum, þar sem þau eru þó ekki
með fasta búsetu.
Nýupptekinn hvítlaukur úr tilraunaræktun Haraldar og Þórunnar í þurrkun í gróðurhúsinu, sem tekur um þrjár til fjórar vikur. Myndir / smh
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Alls voru tilraunabeðin 24 í sumar. Fjölbreyttur þekjugróður er notaður til að rækta í beðunum
eftir uppskeru til að vernda og auðga jarðveginn.Haraldur er hér við sáningarvélina og rýnir í upplýsingar um fræin.