Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 53

Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023 Dagar við Dýrafjörð – Minningabók Bjarna Guðmundssonar, fyrrverandi prófessors Bjarni Guðmundsson, fyrr­ verandi prófessor við Land­ búnaðarháskóla Íslands, hefur gefið út minningabókina Dagar við Dýrafjörð. Í áttatíu þáttum – og með ríflega eitt hundrað teiknimyndum – rifjar höfundur upp umhverfi og atvik úr uppvexti sínum þar vestra um miðja síðustu öld. Teikningar höfundar Útgáfa bókarinnar var formlega kynnt í Samkomuhúsinu í Haugadal í Dýrafirði á dögunum. Þar kom fram að á uppvaxtarárum Bjarna í Dýrafirði var margt að breytast í byggðarlaginu; í daglegum störfum, vinnubrögðum og viðhorfum. Flestir þáttanna eru kryddaðir teikningum höfundar. Um tilgang bókarinnar segir í formála hennar: „Ég vona að þú hafir gagn og gaman af verkinu. Mér þætti best ef við lestur þess kviknar hjá þér hugsun um þína eigin aðstöðu, þitt æskuumhverfi. Hver á sína ungdómsveröld. Geyma sambærilega drætti þótt ólíkar séu. Saman móta þær mynd af fjölbreyttu og síkviku samfélagi, sem á margar og misdjúpar rætur. Til rótanna sækjum við næringu og þrótt – svo og festu sem nauðsynleg er í hverfulum heimi.“ Kennsla og rannsóknir á Hvanneyri Bjarni er fæddur og uppalinn á Kirkjubóli í Dýrafirði. Að loknu framhaldsnámi var hann lengi kennari við Bændaskólann á Hvanneyri og síðan prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands til opinberra starfsloka. Samhliða kennslu stundaði Bjarni rannsóknir, einkum á verkun fóðurs og tækni við hana og miðlaði bændum fróðleik um fóðurverkun um langt árabil með greinaskrifum og fyrirlestrum á bændafundum víða um land. Bjarni hefur skrifað bækur um búfræði og búnaðarsögu, m.a. um verkhætti við bústörf svo sem jarðyrkju og heyskap á tuttugustu öld og breytingar á þeim. Höfundurinn gefur bókina út sjálfur og er hún fáanleg hjá honum á Hvanneyri á meðan upplag endist. /sá Bjarni Guðmundsson. Borgfirskri 19. aldar sögu gerð skil Út er komin bókin „Gleymd skáld og gamlar sögur – sagnaþættir úr Borgarfirði“ sem Helgi Bjarnason blaðamaður hefur tekið saman og gefið út. Höfundur segir um efni bókarinnar að það sé gluggi inn í líf, störf og örlög Borgfirðinga á 19. öld og upp úr aldamótum 1900. 532 menn og konur komi við sögu og 125 býli í Borgarfirði séu nefnd og að auki 63 annars staðar. Borgfirsk rímnaskál og hagyrðingar Gerð er grein fyrir ævi nokkurra borgfirskra rímnaskálda og hagyrðinga og sagðar sögur af fleira fólki og forvitnilegum atburðum. Þá er farið með lesendur í hringferð um Borgarfjörð í kjölfar ljósmyndara úr hópi danskra landmælingamanna sem voru þar við mælingar og kortagerð árið 1910. Segir Helgi að í bókinni séu einstæðar ljósmyndir af fólki á nokkrum bæjum og stöðum og komið við í Heyholti, Svignaskarði, Stafholti, á Hamraendum, í Norðtungu, Víðgelmi, Deildartungu, Bæ í Bæjarsveit, við Hvítá og í Borgarnesi. Bókin er í kiljuformi, 203 blaðsíður að stærð og er prýdd fjölda ljósmynda og teikninga. Hún er fáanleg hjá höfundi. /sá Til sölu er jörðin Tannstaðabakka, 500 Stað, Húnaþingi vestra, ásamt öllum fasteignum, vélum og tækjum, ásamt rekstri þeirrar mjólkur- og nautakjötsframleiðslu sem stunduð hefur verið á jörðinni. Jörðin er um 300 ha að stærð, þar af um 80 ha ræktað land og 12 ha skógrækt. Mjólkurkvóti er 329.031 ltr. Söluverð eignarinnar 335 m. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í netfangið mareik1809@gmail.com. Tannstaðabakki, 500 Stað, Húnaþing vestra Til sölu DFSK C31 pallbíll Árgerð 2017. Burðargeta 1.200 kg. Bifreiðin er ekinn aðeins 514 km. Lipur og duglegur vinnubíll. Verð 2.100.000 kr. +vsk. Upplýsingar í síma 863-2548. VIG framleiðir vandaðar og traustar þvottasnúrur fyrir íslenskar að stæður. VIG þvottasnúrurnar liggja samsíða og snúningurinn tryggir að það blæs alltaf rétt í þvottinn. Tanga · 801 Selfoss Sími 486 1810 · Fax 486 1820 www.vig.is · vig@vig.is ÍS LE NSK F RAM LE IÐ SLA UM A LL T L AND VIG afhendir þvottasnúrurnar með öllum boltum, snúrum, smurefni og undirstöðu í jörðina. Vélsmiðja Ingvars Guðna Vélsmiðja Ingvars Guðna BÆJARHRAUNI 12 220 HAFNARFIRÐI S. 555 4800 Hafnargata 52 260 Reykjanesbæ S. 421 7510 Hrísmýri 7 800 Selfossi S. 482 4200 Furuvöllum 15 600 Akureyri S. 535 9085 Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 471 1244 STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 12 110 REYKJAVÍK S. 535 9000 Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is BETRA AÐ EIGA EN VANTA! VAKTARAR - TALSTÖÐVAR - HÖFUÐLJÓS - BÆTIEFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.