Bændablaðið - 07.09.2023, Qupperneq 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær
www.vinnuvelarehf.is - S: 496 4400
Vinnslubreidd: 2,0m
Dýpt á kubbi: 1,2m
Verð kr.
án vsk.
Kr. 2.399.400 m/vsk
1.935.000
Þýsk gæði og áreiðanleiki
STRAUTMANN
STÆÐUSKERAR
Lausleg lýsing
Hér um að ræða stóra garðyrkjustöð í fullum rekstri, húsakostur rúmlega 5000 fermetrar
að stærð, með stækkunarmöguleikum, staðsett á um fjögurra hektara eignarlandi.
Aðgangur að borholu með heitu vatni.
Til sölu Garðyrkjubýlið Reykás
Reykás stendur á um fjögurra hektara landi, úr jörðinni Götu Hrunamannahreppi.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson í síma 892 6000
eða magnus@fasteignamidstodin.is
Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær
www.vinnuvelarehf.is - S: 496 4400
1.000m3
án vsk.
2.800.000
1.500m3
án vsk.
3.500.000
Verðdæmi:
2.000m3
án vsk.
4.300.000
Hagkvæm geymsla verðmæta
MYKJULÓN
Kr. 3.472.000 m/vsk Kr. 4.340.000 m/vsk Kr. 5.332.000 m/vsk
Mykjulón eru hagkvæm og afturkræf aðferð við geymslu
á húsdýraáburði sem gerir bændum kleift að hámarka
verðmæti áburðarefna og uppfylla kröfur um geymslu
búáráburðar. Mykjulón eru styrkhæf framkvæmd.
Sauðfjárdómar og forystufé
– Uppfærsla á dómstiganum samþykkt í fagráði
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Fagráð í sauðfjárrækt samþykkti
tvær breytingar á dómstiganum
sem notaður er við lambadóma,
nú í ágúst. Annars vegar er um að
ræða breytingar á viðmiðum fyrir
einkunn fyrir bak og hins vegar eru
það breytingar á dómum fyrir ull.
Þegar hrútum er gefin einkunn
fyrir bak er haft til hliðsjónar kröfur
um vöðvaþykkt, fitu og lögun
bakvöðva auk þess sem tekið er
tillit til þroska gripsins. Á síðustu
árum hafa orðið talsverðar framfarir
í þykkt bakvöðva. Var því orðin
nokkur samþjöppun í einkunnum
fyrir bak þar sem algengasta
einkunnin er 9,0. Ákveðið hefur
því verið að auka kröfurnar um 2
mm fyrir hverja einkunn dómstigans
fyrir bak.
Einnig var ákveðið að gera
þá breytingu að fyrir hæstu
bakeinkunnir eru nú gerðar meiri
kröfur um lágmarksfitu og kröfur um
hámarksfitu rýmkaðar, en viðmiðið
er nú að 45 kg lambhrútur hafi 2 til
4 mm þykka fitu yfir bakvöðvanum
til að hljóta hæstu einkunnir (9,0 eða
hærra).
Hin breytingin sem gerð var
á dómstiganum er meiri grund-
vallarbreyting. Það er gagnvart
ullinni, en nú var það skref stigið
til fulls að aftengja lit kindarinnar
ullardómnum. Hingað til hafa
aðeins hreinhvítar kindur geta fengið
hæstu einkunnir fyrir ull.
Áherslan fer því alfarið á ullar-
gæðin og ullarmagnið og reynt að
ná betur fram breytileika innan
hvers litar. Vonast er til þess að
með þessari breytingu færist þetta
ullarmat nær því að ná utan um
eðlisgæði ullarinnar. Breytingin ætti
að skapa betri grundvöll til þess að
nýta þessa einkunn í framtíðinni til
að reikna kynbótamat fyrir ull.
Breytingar þessar munu væntan-
lega hafa þau áhrif, að væg gengis-
felling verður á hrútadómunum þar
sem kröfur um vöðvaþykkt hafa
aukist. Þá ætti ekki lengur að vera
þörf fyrir það á hrútasýningum að
hafa sérstaka flokka fyrir mislitt fé.
Drög að ræktunarmarkmiðum
fyrir forystufé og dómstigi fyrir
þann merkisfjárstofn hafa legið fyrir
í nokkurn tíma og mönnum gefist
kostur á að gera athugasemdir áður
en þetta plagg yrði afgreitt af fagráði.
Í sumar voru þessi ræktunarmarkmið
yfirfarin og hafa nú verið samþykkt
af fagráðinu. Þeir sem standa fyrir
hrútasýningum á komandi hausti
eru hvattir til þess að bjóða upp
á sérstakan flokk fyrir forystufé
sem vonandi myndi auka áhuga á
forystufénu og hlúa að varðveislu
þess og ræktun.
Á heimasíðu RML má nálgast
uppfærðan dómstiga fyrri
lambadóma og endanlega útgáfu af
ræktunarmarkmiðum og dómstiga
fyrir forystuféð.
Einkunn Þykkt (mm Fita (mm) Lögun Annað
10 Meira en 39 2 - 4 mm 5
9,5 36-39 2 - 4 mm ≥ 4,5 Frábært átak, mjög breitt bak
9 32-35 2 – 4 mm ≥ 4 Mjög gott átak, breitt bak
8,5 29-31 ≥ 3,5 Gott átak, háþorn og þverþorn finnast ekki
8 27-28 ≥ 3 Finnst fyrir háþornum og þverþornum
7,5 25-26 Háþorn og þverþorn finnast greinilega
7 21-24 Áberandi gallar, lélegt sláturlamb
6,5 Minna en 21
Viðmið sem fylgja dómstiganum sem notaður er við lambadóma hafa verið uppfærð. Þessi viðmið hafa dómarar
til hliðsjónar þegar einkunn fyrir bak er gefin.
Um þessar mundir fara fram hin árlegu samræminganámskeið fyrir sauðfjárdómara. Eitt af áhersluatriðunum á
námskeiðunum er að fylgja eftir uppfærslu á dómstiganum.
Eyþór Einarsson
ráðunautur búfjárræktar-
og þjónustusviðs
ee@rml.is
Línubrjótar með ARR/x arfgerð
– Hvað á að verða um þá?
Vangaveltur hafa vaknað varðandi
það hvernig eigi að bregðast við ef
línubrjótar reynast vera af ARR/x
arfgerð.
Það er niðurstaða Mat væla-
stofnunar að túlka megi 1. mgr 25. gr.
laga nr 25/1993 um dýrasjúkdóma
og varnir gegn þeim á þann veg
að heimild stofnunarinnar til að
leyfa flutning á kynbótagripum
yfir varnarlínur geti einnig náð til
línubrjóta með ARR-arfgerð.
Haust og vetur 2023-24 gildir:
Þegar um línubrjóta er að ræða
skal allt fullorðið fé sent til slátrunar
eða aflífað, utan sláturtíðar. Ef
um lömb er að ræða sem eru með
staðfesta ARR arfgerð fá þau að
lifa svo lengi sem ekki er um að ræða
heimflutning af garnaveikisvæði yfir
á svæði þar sem ekki er bólusett við
garnaveiki. Matvælastofnun getur þó
veitt undanþágu frá þessu ákvæði
við sérstakar aðstæður.
Þetta þýðir að þegar línubrjótar
koma fram í haustréttum, ber
fjallskilastjóra að hafa samband
við eigendur. Ef viðkomandi
eigandi getur sýnt fram á (í Fjárvís)
að lömb séu af ARR-arfgerð gefst
honum þar með kostur á að sækja
um undanþágu til Matvælastofnunar
til að fá að sækja þessi lömb og setja
þau á til lífs.
Það þarf að vera tryggt að
umrædd lömb séu þá geymd í
réttinni, fóðruð og þeim brynnt uns
eigandi getur sótt þau að fengnu
leyfi Matvælastofnunar. Sækja skal
lömbin eins fljótt og hægt er.
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir,
sérgreinadýralæknir nautgripa
og sauðfjár hjá Matvælastofnun
Á FAGLEGUM NÓTUM