Bændablaðið - 07.09.2023, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2023
Skógrækt í viðkvæmri náttúru Íslands
Samtökin Landvernd og Vinir íslenskrar
náttúru (natturuvinir.is) stóðu fyrir nokkru
síðan að netfundi þar sem yfirmaður
baráttunnar gegn villibarri á Nýja-Sjálandi
ræddi mikilvægi þess að útrýma barrtrjám
utan sérstakra ræktunarsvæða.
Bændablaðið (SÁ-20. júlí)
gerði þessu efni góð skil á
grunni traustra heimilda, en
þar birtust jafnframt viðhorf
til skógræktar hér á landi sem
varð tilefni þessa pistils.
Ábyrgð og ágengar tegundir
Leitað var álits hjá sérfræðingi
búgreinadeildar skógarbænda
hjá Bænda samtökunum um viðbrögð við því
hvort reynsla Nýsjálendinga ætti erindi til okkar.
Megininntakið í svari hans var:
„Stafafura er ekki ágeng af því að til að teljast
ágeng þarf hún að leiða til rýrnunar á líffjölbreytni
að því marki að til vandræða horfi. Hún er hvergi
að gera það og það verða árhundruð ef ekki -þúsund
þangað til að það gerist, ef það gerist nokkurn
tímann.“
Þetta órökstudda andsvar til varnar þeirri
takmarkalitlu gróðursetningu stafafuru sem stunduð
er hér á landi er umhugsunarefni. Það virðist eiga rætur
sínar í umfjöllun um skógrækt og kolefnisbindingu
sem birt er á vef Skógarkolefnis (skogarkolefni.
is). Verkefnið er í umsjá Skógræktarinnar og
„ætlað öllum sem velja að ráðast á ábyrgan hátt í
ný skógræktarverkefni“ með því meginmarkmiði
að binda kolefni í skógum og búa til vottaðar
kolefniseiningar. Fram kemur að Skógarkolefni
er valkvætt regluverk, þ.e. kröfusett sem lýtur að
því að geta fullnægt alþjóðlegum kröfum um bestu
starfshætti, ábyrgð, gagnsæi og opið ferli.
Í ljósi þessa veigamikla hlutverks er forvitnilegt
að skoða þá leiðsögn sem veitt er til að stuðla að
slíkar kröfur verði uppfylltar. Meginatriðin koma
fram á nokkrum stöðum á skogarkolefni.is en
þó fyrst og fremst í umfjöllun sem þar er undir
hnappnum Um á yfirlitssíðum vefsins og ber heitið
Spurt og svarað. Þar er fjallað um forsendur ábyrgrar
skógræktar, en því miður fer sú greining um of inn
á óvenjulegar brautir.
Þetta veldur því að efnistökin fá víða á sig
blæ frjálslegra túlkana, fullyrðinga, afneitunar og
mótsagnakenndrar hagsmunagæslu.
Hringborð þröngra hagsmuna
Ummælin í upphafi greinarinnar til stuðnings
því að stafafura sé ekki ágeng eru tekin úr svari
Skógarkolefnis við spurningunni; er skógrækt
ekki ógn við líffræðilega fjölbreytni? Þar
kemur fram skýr afneitun til stuðnings algildu
sakleysi skógræktar. Röksemdafærslan er byggð
á heildarfjölda tegunda og á sér enga stoð í
viðurkenndum skilgreiningum á líffræðilega
fjölbreytni.
Þessi nálgun við að svara grundvallarspurningum
vekur áleitnar spurningar um tengsl gæða og
hagsmunagæslu.
Geta fagstofnanir stjórnvalda tekið sér nær
ótakmarkað rými til túlkana á stefnu og markmiðum
sem þær eiga að fylgja? Hve vel stuðlar ofangreint
spurt og svarað að ábyrgum starfsháttum í tengslum
við skógrækt og kolefnisbindingu?
Í Nýja-Sjálandi hvöttu ríkisstofnanir til gróður-
setningar stafafuru um áratuga skeið. Nú er hún
á bannlista og talin eitt skæðasta „illgresið“ m.a.
vegna áhrifa á landslag og lífríki. Þar er háum
fjárhæðum varið til að uppræta villibarr utan
skógræktarsvæða. Hér á landi voru barrtré, einkum
stafafura, í afgerandi meirihluta gróðursettra
plantna árið 2022 og væntanlega einnig 2023.
Dreifing með sjálfsáningu blasir víða við, en
kirfilega virðist slökkt á öllum varúðarljósum.
Það er margt sem þarf að gaumgæfa í tengslum
við skógrækt í viðkvæmri náttúru Íslands og þar
þarf víðtækt samstarf.
Margar þjóðir leita nú til Nýja-Sjálands um
samstarf við mat á langtímaáhrifum innfluttra
tegunda á þau vistkerfi sem fyrir eru og mögulegum
leiðum til lausna. Slíkt samstarf væri áhugavert
fyrir íslensk stjórnvöld.
Andrés Arnalds.
Andrés Arnalds.
Stafafura við Lyngdalsheiðarveg. Mynd / Sigurður Hjalti Magnússon
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.