Úrval - 01.03.1969, Síða 20
18
ÚRVAL
istar 32 þingsæti í þjóðþinginu, en
það telur 487 meðlimi. Samband
vinstr'flokka, sem gerðu kosninga-
bandalag við kommúnista bættu við
sig 25 sætum, en Gaullistar töpuðu
40 sætum. Nú ráða Gaullistar yfir
um það bil helmingi atkvæða í þjóð-
þinginu. Við flest lagafrumvörp
njóta þeir stuðnings miðflokkanna.
FRAMTÍÐARÁÆTLANIR
Forystumenn í flokki De Gaulle
eru þegar farnir að búa sig undir
að taka við stöðu hans er hann fell-
ur frá. Enginn getur sagt um hve-
nær sú stund kemur. De Gaulle, sem
er 77 ára gamall þjáist af minni
háttar ellisjúkdómum, en engir
meiriháttar sjúkdómar hrjá hann.
Hann sparar krafta sína og þó að
hann sé ekki eins kraftmikill og
hann var, ber ekki á því að and-
legur þróttur hans eða málgleði
hafi minnkað. Kjörtímabil hans
rennur ekki út fyrr en 1972.
Eftir að „Le grand Charles" (eða
Stóri-Kalli) hættir, kann að vera,
að Gaullistar haldi völdum eða að
vinstrisinnuð sameiningarstjórn
taki við. En sérhverja nýja stjórn
mun vanta þau persónulegu áhrif,
sem De Gaulle hefur á landsmenn
svo og hið ótrúlega vald, sem hann
hefur yfir þjóðþinginu. Þannig velta
menn nú fyrir sér hvort stöðugleiki
Frakklands, sem er mesta afrek De
Gaulles, haldist óbreyttur, er hann
hverfur af sjónarsviðinu.
LEXlA Á STAÐNUM
Það var búið að slökkva eldinn, og slökkviliðsmennirnir vöfðu saman
slöngur sinar og tóku saman allt sitt hafurtask. Þá heyrði ég móður
eina segja i kennslukonutón við litla snáðann sinn: „Sko, Jói. Þegar
slökkviliðsmennirnir eru búnir, þá ganga þeir frá öllum leikföngum
sinum.“
Naomi Natfoan.
Kannske gætu þeir á Kennedyflugvellinum farið að dæmi kauphall-
arinnar í New York, þegar annirnar verða slíkar, að það er algerlega
ómögulegt að afgreiða allt: Loka bara á miðvikudögum, svo að allar
flugvélarnar, sem eftir eru sveimandi yfir vellinum, geti lent.
Bill Vaughan.
Okkur er sagt, að vélarnar muni einhvern tíma taka við yfirráðum
í heiminum. Það er víst þess vegna, sem við tölum alltaf svo kurteis-
lega, þegar sjálfvirkur simsvari svarar hringingum okkar.
Bill Vaughan.
Þrjózkan hefur sínar góðu hliðar. Maður veit þá alltaf, hvernig
maður mun hugsa á morgun.
Glen Beamcm,j