Úrval - 01.03.1969, Side 123

Úrval - 01.03.1969, Side 123
SKJÖL VALACHI 121 hafi þá ekki getað dulið undrun sína yfir því, að hann skyldi enn vera á lífi. Næsta morgun fór Valachi fram á það, að hann yrði látinn í ein- menningsklefa, þ. e. hafður í al- gerri innilokun. Var það gert, en þ. 22. júní var hann aftur fluttur í venjulegan fangaklefa að nýju á almennri fangadeild. Þann dag gekk hann um fangelsisgarðinn eins og vélmenni. Skyndilega gekk maður nokkur framhjá honum, og líktist hann Di Palermo. Valachi minntist þá skyndilega orða þeirra, sem Di Palermo hafði kallað til hans fyrirlitningarrómi, þegar far- ið var með hann í innilokunarklef- ann: „Heyrðu, Jói, hver er aðstaða þín núna hjá gamla manninum?“ Valachi tók skyndilega upp járn- pípu, sem lá þarna í fangelsisgarð- inum, og drap rangan mann með henni. „ALEINN í ÞESSARI VERÖLD“ Eg hitti Joseph Valachi fyrst þ. 6. janúar árið 1966 í Columbiu- fangelsinu í Washington. ’É'g varð fyrst að fara í gegnum skoðun við hlið, sem stjórnað var af rafeinda- tækjum. Fyrr gat ég ekki komizt á hans fund. Síðan var mér fylgt framhjá nokkrum öðrum skoðunar- stöðvum af einum af fangelsisvörð- um þeim, sem höfðu hið eina hlut- verk að gæta Valachi nótt sem nýt- an dag. Það voru nokkrar þungar stálhurðirnar að baki mér, þegar ég náði loks fundi hans. Valachi dvald- ist lengstum í mjóu herbergi í öðr- um enda gangsins á dauðadeildinni, sem er á efstu hæð fangelsisins. — Það var einmitt í þessu herbergi, sem ég hitti hann 22. sinnum. Og í næsta klefa var sjálfur rafmagns- stóllinn. Ég dvaldi hjá honum í 4 til 5 klukkustundir hverju sinni. Hlutverk mitt var nú orðið skýrt afmarkað. Á árinu 1964 hafði Dóms- málaráðuneytið hvatt Valachi til þess að skrifa frásögn um feril sinn í undirheimum glæpanna. Dóms- málaráðuneytið hélt því fram, að útgáfa slíkrar bókar kynni að verða til hagsbótar fyrir löggæzlumenn landsins, þar eð hún ynni gegn skeytingarleysi og áhugaleysi al- mennings á hinu raunverulega ástandi í málum þessum og hvetti jafnframt aðra til þess að leysa frá skjóðunni. Valachi hófst nú handa, og hann hélt áfram skrifum sínum í 13 mánuði og skrifaði á fjórða hundrað þúsund orð. Handrit hans var samtals 1180 blaðsíður á lengd. Og í desember árið 1965 varð ég fyrir valinu til þess að fara yfir handritið, lagfæra það og búa það til prentunar. Þegar fréttirnar um þessa tilvon- andi bók tóku að síast út, hófu ýms- ir hópar og samtök ítala hér í Bandaríkjunum geysilega herferð til þess að stöðva útgáfu hennar. Sóknin hófst með því, að þeirri spurningu var varpað fram í rit- stjórnargrein í dagblaðinu „II Pro- gresso“ (Framfarirnar), hvort til- gangur þessarar útgáfu væri sá að halda lífi í og festa í sessi þá „ímynd glæpamennsku, sem virðist tengd mörgum ítölskum nöfnum í játningum Valachi". Bezta svarið við þessari spurningu kom frá Valachi sjálfum. „Um hvern fjand-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.