Úrval - 01.03.1969, Page 39
HEIMANÁMIÐ OG HÚSMÆÐURNAR
37
nám skólabarna og unglinga til þess
að þau standi ekki langt að baki
jafnöldrum sínum erlendis. En þrátt
fyrir verulegt heimanám standa ís-
lenzk börn í ýmsum greinum tals-
vert langt að baki börnum í ná-
grannalöndunum. Anna'ð væri ó-
hugsandi með svo stuttan námstíma
að baki. Kannski þó ekki eins langt
og við mætti búast. Það ber meðal
annars að þakka íslenzkum mæðr-
um.
Það er nú stefnt að því víða er-
lendis, enda víða komið í fram-
kvæmd, að þurrka nálega út allt
heimanám, en láta allt nám barn-
anna fara fram í skólunum. Enda er
þeim þá ætlaður tími til þess þar
og allar aðstæður, bæði góð húsa-
kynni, bókasöfn, lestrarstofur og
geysilega mikið af allskonar áhöld-
um til notkunar við námið. Á með-
an skólatíminn á íslandi, bæði dag-
legur og árlegur, er svo stuttur, sem
raun ber vitni um, tjóar ekki að
tala um slíkt í alvöru fyrst um sinn.
Annars virðist mér að þróun síð-
ustu ára hafi gengið í þá átt að
heimanámið — sjálfsnámið — væri
stöðugt að minnka. Það er að vissu
ieyti skaði því að sjálfsnámið hefur
jafnan verið einn af gildustu þátt-
um íslenzkrar alþýðumenntunar.
En þótt heimanámið hafi að vísu
sína galla, hefur það þó marga kosti.
Einn er sá, að það fær börnunum
skyldur í hendur, sem þau verða að
inna af höndum, ef vel á að fara.
Það er sem sé uppeldi í skyldu-
rækni. Annar kosturinn er sá, að
það tengir foreldrana fastar við
skólann og þau fylgjast betur með
námi barna sinna en ella. Þetta eru
höfuðkostirnir. En ókostirnir eru
aftur þeir, að heimanámið er oft svo
óhóflega mikið, einkum þó í fram-
haldsskólunum, að börnin hafa varla
nokkurn tíma til frjálsra afnota.
Þetta nám verður stundum að þræl-
dómi. Þetta verður oft til þess, að
börnin komast bókstaflega ekki yfir
að ljúka þessum heimaverkefnum.
Verða þau þá annað tveggja að fara
yfir námsefnið á hundavaði, eða
vanrækja eitthvað. Þetta elur upp í
börnunum kæruleysi og sviksemi,
sem í fyrstu er ill nauðsyn, en getur
síðan orðið að vana. Kemst þá oft í
tízku að vanrækja sérstakar náms-
greinar, sem þykja leiðinlegar eða
njóta lítillar virðingar. Getur þetta,
t.d. í framhaldsskólunum, komið
niður á sérstökum námsgreinum.
Hér er um einhverja mestu yfir-
sjón skólanna að ræða, sem hefur
hættulegar afleiðingar. í barnaskól-
um þar sem bekkjakennsla er, ætti
þetta ekki að þurfa að koma fyrir,
þar sem einn og sami kennarinn set-
ur börnunum fyrir heimaverkefni.
Hver meðalgreindur kennari og
skilningsgóður, ætti að rata þarna
nokkuð rétt meðalhóf ... Og þó ...
Þegar misjöfn börn, að greind og
þroska eru saman í bekkjardeild, er
-------------------------------'N
Ef hlutur mœðranna í
heimanámi barnanna vceri
þurrkaður út, það er að
segja hinna góðu og skyldu-
ræknu mœðra, myndi þar
verða mikil eyða.
V ____________;____________)