Úrval - 01.03.1969, Síða 120
118
ÚRVAL
ili sitt í New Jerseyfylki. Þetta
voru trúustu og tryggustu „her-
mennirnir" hans. Þangað kallaði
hann á sinn fund alla „liðsforingja
fjölskyldu“ sinnar, og skyldu þeir
sverja honum hollustueiða. Og þeir
komu allir á hans fund að einum
undanteknum, enda var hann
seinna myrtur. Genovese lýsti yfir
því án þess að blikna eða blána,
að hann hefði neyðzt til þess að
láta til skarar skríða gegn Costello
vegna þess eins, að Costello hefði
þegar hafið undirbúning þess að
ráða hann sjálfan af dögum. Hann
sagði, að þetta hefði því verið gert
í varnarskyni. Svo lýsti hann opin-
berlega yfir því á fundi þessum, að
hann væri yfirmaður gömlu Luci-
anofjölskyldunnar. „Nú, hver hefði
svo sem farið að véfengja það?“
bætir Valachi við hæðnisrómi.
Það átti ekki fyrir Costello að
liggja að ná aftur sömu valdaað-
stöðu og fyrr. Hann hafði að vísu
lifað skotárásina af, en nú var bú-
ið að ganga þannig frá málunum,
að hann var enginn keppinautur
Genovese lengur. En það var samt
enn eitt, sem ógnaði völdum Geno-
vese. Þar var um að ræða grimman
„húsbónda" innan Cosa Nostra, Al-
bert Anastasia að nafni. Hann réð
lögum og lofum á hafnarbökkun-
um í Brooklyn. Hann fór að hafa
orð á því, að hann ætlaði að stjórna
sókn gegn Genovese, sem miðaði
að því að koma Costello aftur til
sömu valda og hann hafði fyrrum.
„Allir vita, að Albert var óður
morðingi,“ segir Valachi. „Það
komst ekkert annað að hjá honum
en að drepa . . . drepa . . . drepa!“
Vito tókst að sannfæra einn af
„liðsforingjum" Anastasia um það,
að þeir mundu báðir hagnast á
dauða Anastasia. Liðsforingi þessi
var Carlo Cambino. Þ. 25. október
árið 1957 lét Anastasia fara vel um
sig í stól inni á rakarastofunni í
Park Sheratonhótelinu á Manhatt-
an. Hann var að fá andlitsbað og
hafði hrúgu af heitum handklæð-
um yfir andlitinu. Tveir byssubóf-
ar gengu þá skyndilega inn í rak-
arastofuna, gripu b^/ssurnar og
fylltu skrokk Anastasia af byssu-
kúlum.
Fjölskyldurnar innan Cosa Nostra
voru og eru enn milli 25 og 30 að
tölu. Samanlögð tala „fjölskyldu-
meðlimanna" er um 5000, og eru
fjölskyldur þessar dreifðar um allt
landið. Morðið á Anastasia kom illa
við þá. Hvað ætlaðist Genovese fyr-
ir? Og hvenær ætlaði hann að láta
staðar numið?
Vito varð var við þennan óróa,
og því kallaði hann saman þann
mesta aðalfund, sem boðað hefur
verið til í gervallri sögu samtak-
anna. Hann átti að fara fram í litla
þorpinu Apalachin í norðurhluta
New Yorkfylkis, aðeins þrem vik-
um eftir að Anastasia var lagður
til hinnar hinztu hvíldar. Genovese
var reiðubúinn að útskýra ástæð-
urnar fyrir morðinu á Anastasia og
morðtilrauninni gagnvart Costello.
Hann hafði tilbúna dagskrá í smá-
atriðum um öll þau mál, er ræða
skyldi. En þessi frægi fundur var
reyndar aldrei haldinn, þótt fund-
armenn væru komnir á staðinn. At-
hugull fylkislögreglumaður einn
hafði tekið eftir allri bílamergðinni.