Úrval - 01.03.1969, Blaðsíða 54

Úrval - 01.03.1969, Blaðsíða 54
52 ÚRVAL þingmönnum, læknum og lögfræð- ingum, bankastjórum og prestum, múrurum og sjómönnum, dönskum og íslenzkum — og mér hefur fall- ið vel við þá alla. 0—o Þegar Dói minn (Sigurþór) varð tvítugur 1928, lét ég loks verða af því að fara til Þingvalla. Þá keypti ég „prívat“ bíl með okkur austur og hélt þar kaffiveizlu. Það er eini dagurinn í lífi mínu, sem ég hef ekki hugsað um að spara hvern eyri. Það var ákaflega skemmtileg- ur dagur. Alþingishátíðarvorið 1930, þegar allir voru svo örir á fé og góðhjart- aðir, sendi barnsfaðir minn Dóa mínum áttahundruð krónur dansk- ar og hvatti hann jafnframt til að koma vestur. Og Dói minn fór til Ameríku og var þar í hálft fjórða ár. Honum sárleiddist — enda hafði hann bæði stopula, erfiða og illa borgaða vinnu. Tók ég þá til minna ráða og fékk 700 krónur að láni og sendi honum fyrir fargjaldinu heim. Svo kom hann, blessaður drengur- inn minn. . . . o—o Þetta eru punktarnir og þanka- strikin úr sögu gömlu konunnar, sem átti harmþrungna kanarífugl- inn innan við litla, skítuga kjallara- gluggann í Traðarkotssundi. Þrátt fyrir lélega íbúð, lága glugga, þrot- laust lífsstríð og mótlæti mætti segja mér, að hún hafi verið lífs- glaðasta og einlægasta manneskja í þessu landi. Við vorum að koma úr efnafræðitíma, eftir að hafa hlustað á langan fyrirlestur um'hina kemisku uppbyggingu mannslikamans. Þá heyrði ég eina skólasystur mína segja við aðra, og það var auðséð á svip hennar, að hún var alveg ringluð: „Það virðist alveg óhugsandi, að hann bróðir minn og Paul Newman séu samansettir úr nákvæmlega sömu kemisku efnunum." Randy Dotnaldson. Ég var nýbúin að taka við nýja bilnum mínum og var ekiki enn búin að læra á allar nýju „græjurnar", einkum rafmagnsgræjurnar, sem stjórnuðu rúðunum. Það þurfti bara að ýta á hnapp og gluggarnir runnu upp eða niður. E'itt sinn stanzaði ég við vegatollskýli. Ég reyndi að ýta á réttan hnapp fyrir rúðuna, svo að ég igæti greitt vegatollinn. En þá hafði ég ýtt á rangan hnapp, og hægri framrúðan rann niður í einum hvelli. Ég varð hálfringluð og reyndi annan hnapp, en þá runnu báðar afturrúðurnar niður. Eftir svolitið meira fikt tókst mér loks að koma hinni réttu rúðu niður. Vegatollsvörðurinn horfði á aðfarir þessar, og var honum augsýnilega skemmt. Hann hristi höfuðið og sagði: „Ungfrú, einmitt þegar ég er farinn að hafa áhyggjur af því, að kven- fólkið sé alveg í þann veginn að leggja undir sig heiminn, þá kemur einhver yðar lxk akandi og veitir mér sjálfstraustið að nýju.“ Ann Jones.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.