Úrval - 01.03.1969, Qupperneq 97

Úrval - 01.03.1969, Qupperneq 97
SKJÖL VALACHl 95 náið samstarf við hann, þar á með- al „Charley heppni“ Luciano og „Don Vito“ Genovese. Þótt Masseria hefði svona mikil völd og áhrif persónulega, þá höfðu glæpasamtök þau, sem Cosa Nostra óx smám saman upp úr, enn ekki sameinazt nokkuð að ráði, heldur ríkti þar óeining og sundrung. Auk hinnar hefðbundnu togstreitu og ósamkomulags milli Sikileyinga og Napólíbúa voru samtökin enn bút- uð sundur í alls konar smáhópa, sem menn frá einhverju sérstöku þorpi, bæ eða héraði á Ítalíu höfðu myndað með sér, er til Bandaríkj- anna kom. Enginn þessara smá- hópa var sterkari en Castellammar- ese, og þar var líka klíkukenndin langsamlega sterkust. Þar var um að ræða samsafn manna frá sikil- eysku borginni Castellammare del Golfo. Foringi þeirra í New York var Salvatore Maranzano. „Jói húsbóndi" Masseria hafði sett sér það markmið að ná alger- um yfirráðum yfir hinum ítölsku undirheimum í Bandaríkjunum. Og árið 1930 fór hann að vinna að því að útrýma Maranzano og öðrum valdamönnum Castellammarese. Nú upphófst grimmileg styrjöld milli þessara tveggja hópa. Fyrsta skref sitt til inngöngu í Cosa Nostra steig Valachi, er menn Maranzano réðu hann sem mannanjósnara. Hann átti að stunda mannaveiðar, og var honum skipað að taka á leigu íbúð í þeim tilgangi í byggingu þeirri, sem álitið var, að helzti aðstoðar- maður Masseria byggi í. Um þetta farast Valachi orð á þessa leið: „Þá hafði bara verið stungið upp á mér sem meðlim. — Sko, þeir eru þá bara að athuga mig til þess að sjá, hvernig mér muni ganga, sko, hvort ég dugi.“ Um tveim mánuðum síðar kom Valachi auga á manninn, sem hann átti að „skyggja". Og hann var ekki seinn á sér að koma skilaboð- unum rétta leið. Og síðdegis dag nokkurn, er maður þessi gekk út úr byggingunni og labbaði fram- hjá íbúð á jarðhæðinni, létu þrír byssubófar rigna yfir hann geysi- legri skothríð. Það voru endalok hans. Þetta var í fyrsta skipti, að Vala- chi hafði verið aðili að „samningi“. Tveim vikum síðar kom svo að formlegri inngöngu hans í Cosa Nostra. Honum var ekið 90 mílur norður fyrir New York. „É'g vissi aldrei, hvar við vorum staddi*r,“ segir Valachi, „en húsið var í þeim stíl, sem maður gæti einna helzt kallað nýlendustíl." Þegar þangað kom, var farið með Valachi og tvo aðra nýliða inn í lítið biðherbergi. „Eftir svolitla bið kom einhver ná- ungi fram að dyrunum og segir: „Jói, við skulum koma.“ Eg er bú- inn að gleyma, hver það var.“ „ÞANNIG MUN ÉG BRENNA ...“ Ég gekk á eftir honum inn í ann- að herbergi. Það var geysistórt. — Eina húsgagnið þar var stóreflis borð, sem lagt hafði verið á til kvöldverðar. Það hefur líklega ver- ið 30 fet á lengd. Ég hugsa, að einir 30 náungar hafi setið umhverfis borðið, og allir standa þeir upp, þegar ég kem inn. Tommy (Þriggja fingra Brown) Luechese var þar og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.