Úrval - 01.11.1969, Page 30
28 ÚRVAL
rirk-Aifk-kirkirk-kirkirk-k-kirk'trirkÍK-kiirkirAiririrk-kirk-k-k-k'k-k-Jr-k-k-k-kirkirk'kirkir
Einn kunningi minn hlustaði eitt
sinn á erindi í Rótaryklúbbnum um
fraeðslu barna í kynferðismálum.
Þegar hann kom heim um kvöldið,
ákvað hann að færa sér í nyt leið-
beiningar fyrirlesarans og kallaði
á eldri son sinn inn til sín. Hann
byrjaði eins og ráð var fyrir gert,
á að skýra æxlun blóma og óæðri
dýra og færði sig smám saman ofar
í þróunarstiganum. Drengurinn
hlustaði með athygli á vandræða-
legar skýringar föður síns, án þess
að segja nokkuð. Til þess að losna
við að þurfa að endurtaka þessa
sögu bað faðirinn drenginn að skýra
yngra bróður sínum, átta ára göml-
um, frá því sem hann hafði lært..
Drengurinn lofaði því og fór upp í
herbergi til bróður síns.
„Á ég að segja þér dálítið?“ heyrði
faðirinn eldri bróðurinn segja.
„Hvað er það?“
„Þú veizt, hvað gift fólk gerir, ef
það vill eignast börn? Pabbi sagði
mér að býflugurnar og blómin geri
alveg eins!“
(L. T. White í „Readers Dig.).
☆
Flakkari nokkur stóð fyrir rétti
og gaf upp bekk í skemmtigarði,
sem heimili sitt.
„Er þetta ekki nokkuð þæginda-
snautt heimili," sagði dómarinn.
„O, það kemur ekki að sök, —
ég er svo sjaldan heima!“
☆
í Noregi gekk orðrómur um, að
Kristilega dagblaðið „Várt Land“ og
„Norges Handels og Sjöfartstid-
ende“ ættu að sameinast.
Hið sameiginlega dagblað ætti að
heita: „Himinn og Haf!“
☆
Danskir slökkviliðsmenn hentu
eitt sinn, í sínum hópi, gaman að
kollega sínum, fyrir sunnan
landamærin, en á einni slökkvistöð
þar var uppslegið skilti:
„Öllum slökkviliðsmönnum er
stranglega bannað að neyta áfengis
síðustu sex tímana fyrir hvern
bruna!"
„Ojæja,“ sagði einn þeirra eldri.
„Ekki man ég betur en að í okk-
ar starfsreglum standi:
„Allar brunaslöngur skal prófa,
a.m.k. einni viku fyrir hvern
bruna!“
(Víkingur).