Úrval - 01.11.1969, Blaðsíða 128
126
Landkönnun hér á jörðinni á að vera að mestu lokið
ng könnun geimsins er hafin. En þó eru ekki nema um
'25 ár síðan dalur jannst með íhúum, sem höfðu lifað
einangraðir frá umheiminum í aldaraðir.
Dalurinn, sem fannst
vmmm.
ótt landkönnun eigi nú
að heita lokið hér á
jörðinni og könnun
geimsins hafin með
tunglið í broddi fylk-
ingar, eru ekki nema um aldar-
fjórðungur síðan algerlega óþekkt
landssvæði fannst í Oranjefjöllum
á Nýju Guineu. Hér var um að
ræða dal, sem var umluktur fjöll-
um og búa þar á að gizka 50.000
frumbyggjar, sem höfðu þá verið
algjörlega einangraðir frá umheim-
inum öldum saman.
Það var áhöfn bandarískrar flutn-
ingaflugvélar úr hernum, sem fann
þennan „sæludal", er hún var að
leita að nýjum flugleiðum. Þetta
var árið 1945.
George Lait flaug yfir dalinn og
kannaði hann og segir svo frá ferð
sinni:
„É'g flaug yfir þennan dal ásamt
Elsmore ofursta. í klukkutíma flug-
um við fram og aftur yfir dalnum
í minna en þrjátíu metra hæð, og
athugaði ég allt nákvæmlega í
sterkum kíki.
Dalurinn er algjörlega umluktur
snarbröttum, tindóttum fjöllum, og
eru sum meira en 3600 metrar á
hæð og snævi þakin árið um kring.
Hann er um þrjátíu og tveir kíló-
metrar á lengd, átta kílómetrar á
breidd og liggur frá norðri til suð-
urs. Dalbotninn er 1650 metra yfir
sjávarmáli. Eftir dalnum rennur á-
in Baliem, sem fellur í 600 metra
háum fossi niður dalinn að sunnan-
verðu. Nyrzt í dalnum hverfur áin
niður í stóra gjótu í fjallinu.
Allur dalbotninn og hliðarnar
báðum megin er ræktað. Um alla
flatneskjuna þvera og endilanga
liggja áveituskurðir, sem flytja
vatn úr ánni allt að fimm kílómetra
út frá árbökkunum.
Akrarnir eru ferhyrndir reitir,
líkt og á skákborði, en mjög mis-
munandi að stærð, allt frá á að
gizka 900 fermetrum upp í 200 til
300 hektara.
í hlíðunum, þar sem ekki er hægt
að koma við áveitu, virðist hver
þumlungur ræktanlegs lands hafa
verið nýttur. Grjót hefur verið