Úrval - 01.11.1969, Qupperneq 83
HlNlR FRÁBÆRU HÖNNUÐIR ÍTALÍU 81
Ég set það svo í útstillingarglugg-
ann sem eins konar jólagjöf til allra
kvenna. Kostnaðurinn? Kannske allt
að 2000 dollarar. En þetta er vita
þýðingarlaust, því að það er alltaf
búið að selja það fyrir kvöldið.“
Nú er skófatnaðarheimsveldi Sal-
vatore Ferragamos rekið af ekkju
hans og börnum. Það er glæsileg,
mjög svo nútímaleg kona, Fiamma
Ferragamo að nafni, sem sér um
hönnunina. Hún er 27 ára að aldri.
Aðalbækistöðvar fyrirtækisins eru
í höll frá 14. öld. Þar situr hún í
sínum forstjórastól og endurtekur
kjörorð föður síns: „Markmið okkar
er vellíðan viðskiptavinarins.“ Ferr-
agamo-skór eru seldir í fínum verzl-
unum um gervalla Vestur-Evrópu
og í Bandaríkjunum. Ferragamo-
fjölskyldan geymir í vörugeymslum
sínum skómót (leista) af rúmlega
6000 frægum konum, sem dreifðar
eru um víða veröld.
„Einn af mest spennandi við-
skiptavinum okkar var furstafrúin
af Baroda, „segir Fiamma.. „Þegar
hún sá, skógerð, sem henni líkaði
vel við, pantaði hún 20—30 pör af
henni í ýmsum litum. Vinnustofa
okkar leit þá út eins og fiðrildasafn."
Ein vinkona Fiömmu lýsir henni
á eftirfarandi hátt: „Það er hægt að
skoða hana sem einn af okkar dæmi-
gerðu hönnuðum hér á Ítalíu. Hún
veit skil á meðhöndlun hráefnanna,
allt frá sútun skinnanna til vefnað-
ar strigans. Hún býr yfir dásamlegu
litaskyni og næmri formkennd. Og
hún hefur þessa stórkostlegu fjöl-
skyldu að bakhjarli." Móðir hennar
sér um fjármálin, Ferruccia er aðal-
forstjóri og Jerry, frændi hennar,
Haustkjóll, teiknaSur af Emilio Pucci.
rekur verksmiðjurnar. Giovanna,
systir hennar sem er ári yngri en
Fiamma, teiknar og mótar hátízku-
fatnað, sem hentar vel þessum skó-
fatnaði.
Italía græðir sannarlega á þeim
erfðavenjum, sem tengdar eru iðn-
framleiðslu í höndum vissra ætta,