Úrval - 01.11.1969, Síða 111

Úrval - 01.11.1969, Síða 111
SKJÖTIÐ HONUM EKKI Á LOFT — ÉG Á HANN! 109 eru j árnbrautaráætlanir, gamlar símaskrár frá ýmsum borgum og sótthreinsunartæki ásamt hrúgu af gömlum skurðlæknatækjum, þar á meðal mjög fornfálegt „apparat", sem notað var til þess að fjarlægja hálskirtla áður fyrr, einnig annað „apparat11, sem notað var til þess að draga tennur úr fólki. Vinnustofan er líka aðalbækistöð heils samsafns af gervihjörtum, gerviheilum, gervieyrum og höfuð- kúpum. Og uppi yfir öllu þessu samsafni trónir svo risavaxið líkan af mannsauganu, sem starir illilega á þá gesti, sem stíga þangað fæti sínum. Þarna eru líka fjórir skjala- skápar. Og ég þakka þeim það, að unnt reyndist að bjarga hjónabandi okkar fyrir um 5 árum, þegar þeir tóku að sér hlutverk gamalla appel- sínukassa. Þarna standa líka tvö fornfáleg skrifborð, sem lokað er með renniloki og snúa sínum háu bökum saman. í einu horninu stend- ur fornfálegur skápur með skúff- um. Skápur þessi var notaður af tannlækni einum á 18. öld. Og þarna getur líka að líta ýmsa aðra mun- aðarleysingja úr húsgagnaheimin- um, sem hafa annaðhvort verið keyptir af fornsölum eða hefur ver- ið bjargað frá því að lerida á ösku- haugunum. Heiðurssætið í miðju herberginu skipar svo teikniborð eitt á hjólum. Það er búið til úr stóru stykki úr flugvélarvæng, sem afgangs var af ónýtri flugvél, sem eitt sinn var notuð í eftirlíkingartilraunum. Það er ekki nema sanngjarnt að taka það fram, að Randy hefur reynt að koma skipulagi á sumar þessar eignir sínar og flokka þær í eins konar kerfi. Plata ein hefur verið negld ofan á annað skrifborð- ið. I hana hafa verið boruð 56 mis- munandi stór göt til þess að stinga blýöntum, strokleðrum og öðru slíku í. Og skjalataska hangir snyrti- lega í krók, sem festur hefur verið í loftið. Líklega hefur verið gripið til þessa ráðs í varúðarskyni vegna hugsanlegrar flóðahættu. Hvað snertir hina hlutina, sem taldir hafa verið upp, og fleiri tugi annarra hluta, þá ér ekki neitt skipulag á þeim, að því er óþjálfuð augu fá greint. En Randy virðist þó vita, hvar hver hlutur er geymdur. Eitt sinn varð mér það á að reyna að laga svolítið til í allri þessari hrúgu. Og ég hef aldrei séð mann- inn minn eins reiðan fyrr eða síð- ar. Hann tautaði fyrir munni sér mánuðum saman: „Þú týndir minn- isblöðunum mínum! Þú gekkst ein- hvers staðar frá bókinni minni, þar sem ómögulegt var að finna hana!“ Vísindamennirnir, sem Randy sýnir vinnustofu sína stoltur á svip,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.