Morgunblaðið - 01.07.2005, Page 20

Morgunblaðið - 01.07.2005, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hvetur til ein- ingar í Líbanon Beirút, Washington. AFP. | Súnnítinn Fuad Siniora var í gær útnefndur nýr forsætisráðherra Líbanon. Hann hét því að beita sér ákaft fyrir ein- ingu og umbótum. Siniora var lengi fjármálaráðherra í stjórnum undir forsæti Rafiks Hariris er myrtur var í febrúar. Nýtur Siniora stuðnings kosningabandalags undir forystu sonar Hariris, Saads Hariris. Siniora er fýrsti forsætisráð- herrann sem tekur við eftir að Sýr- lendingar fóru loks með herafla sinn frá landinu í vor eftir áratuga her- setu. Margir Líbanar gruna þá um að hafa staðið íyrir morðinu á Hariri sem snerist gegn þeim. Forseti landsins, Emile Lahoud, var kjörinn að undirlagi Sýrlendinga en hann neitar að segja af sér. Siniora hét því að berjast gegn spillingu og breyta kosningalögum svo að ekki yrði lengur stuðst við um 60 ára gamalt kerfi þar sem helstu trúflokkar skipta með sér æðstu embættum. „Líbanar hafa greitt það dýru verði að geta náð aftur frelsi sínu og byggt upp lýðræðislegt og fullvalda ríki,“ sagði Siniora. „Við þurfum öll að taka þátt í þeirri bar- áttu. Við getum aðeins bætt upp glötuð tækifæri ef allir Líbanar standa saman.“ Sýrlendingar réðu með stuðningi herja sinna, leyniþjónustumanna og S Reuters Atök í Suður-Líbanon PALESTÍNSKUR skæruliði notar dreifirit til að kveikja í vindlingi sínum í borginni Sidon í Suður-Líbanon í gær. íbúar Líbanons segja ísraelskar her- flugvélar hafa sleppt miklum fjölda dreifirita yfir suðurhluta landsins og í Beirút um miðja nótt. í dreifiritunum var varað við því að afleiðingarnar yrðu alvarlegar ef aðgerðir Hezbollah-samtakanna gegn Israel stigmögn- uðust. Samtökin myrtu ísraelskan hermann á miðvikudag og fsraelar svör- uðu með loftárásum á bækistöðvar Hezbollah í gær. innlendra hjálp- arkokka lögum og lofum í landinu og gat enginn orðinn forsætisráðherra án velvildar þeirra eða hlut- leysis. Bandalag Hariris, sem barðist fyrir brottför Sýrlend- inga, fékk nauman meirihluta í þing- kosningunum fyrir skömmu. Siniora fékk hins vegar stuðning 72 af alls 128 þingmönnum i gær. Er ástæðan sú að tveir öflugir leiðtogar sem kepptu við Hariri, drúsinn Walid Jumblatt og helsti leiðtogi kristinna Líbana, Michel Aoun, ákváðu báðir að styðja Siniora. Sættir milli Aouns og Hariris Aoun var fyrir 15 árum einn helsti andstæðingur Sýrlendinga og stuðn- ingsmanna þeirra í Líbanon og sneri íyrst heim úr útlegð í vor en gekk óvænt til liðs við liðsmenn Sýrlend- inga rétt fyrir kosningarnar. Hann gagnrýndi Hariri-ættina, sem talin er eiga um fjóra milljarða dollara, í kosningabaráttunni og sagði hana hafa misnotað aðstöðu sína við at- kvæðaveiðar. En Aoun átti fund á miðvikudag með Hariri og náðust þar fullar sættir. Sjóræningjar stela hjálpar- gögnum Naíróbí. AFP. | Vopnaðir menn hafa tekið á sitt vald flutningaskip undan strönd Sómalíu. Skipið flytur mat- væli á vegum Sameinuðu þjóðanna til fórnai-lamba flóðbylgjunnar ógurlegu sem reið yfir á Indlandshafi í fyrra. Um borð í skipinu eru 850 tonn af matvælum frá Japan og Þýskalandi sem ætluð eru íbúum Sómalíu. Þar líða enn um 28.000 manns skort eftir flóðbylgjuna miklu sem myndaðist á Indlandshafi 26. desember sl. Tíu manna áhöfn skipsins hafði að sögn eigenda þess í gær ekki verið unnið mein. Ekki er vitað hverjir sjóræningj- ai-nir eru en þeir hafa krafist 500 þús- und dollara (um 32 milljóna króna) í lausnargjald. Eigandi skipsins, sem leigði það Sameinuðu þjóðunum, sagði að þessari kröfu hefði verið hafnað. Skipinu, sem nefnist MV Semlov, var rænt á mánudag er það var statt um 300 kílómetra norðaustur af Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Skipið lagði upp frá Mombasa í Ken- ýa og var fórinni heitið til Bosasso í norðausturhluta Sómalíu. Löndin sem hér ræðir um eru í Austur-Afr- íku og hggja að Indlandshafi. Sjórán eru tíð á þessum slóðum og hafa til þess bær yfirvöld ítrekað varað við því á undanliðnum mánuðum að mikil áhætta fylgi sighngum á þessu haf- svæði. Fréttaskýring | Ejnverskt fyrirtæki, sem er að mestu í eigu ríkisins, vill nú kaupa bandaríska olíufyrirtækið Unocal á 18,5 milljarða dollara. Kristján Jónsson segir frá viðbrögðum vestra þar sem margir óttast aukin áhrif Kínverja. Viðskipti eða stórveldahagsmunir? Reuters Tankbíll í eigu orkufyrirtækisins Unocal lestaður með gasi. Fyrirtækið er níunda öflugasta olíu- og gasfyrirtæki Bandaríkjanna og á einnig miklar lindir í Austur-Asíulöndum. Tilboð kínverska olíu- og gasfyrirtæk- isins CNOOC í bandaríska olíufyrir- tækið Unocal hefur valdið miklu upp- námi í Bandaríkjunum og ástæðurn- ar eru af margvíslegum toga. Þeir sem óttast aukin áhrif Kínverja telja að stjórn kommún- ista í Peking sé að búa í haginn vegna aukinnar þarfar fyrir olíu í framtíðinni í kjölfar vaxandi iðnvæðingar landsins en einnig að tryggja að væntanlegt risaveldi haldi áfram að dafna, kannski á kostnað þess eina sem fyrir er. „Frá rykugum sléttum Austur-Afríku til stranda Kaspíahafsins rejma Kínverjar að losa um tök Bandaríkjamanna á orkuhndum heims- ins og tryggja sér eldsneytið sem þeir þurfa til að efnahagurinn haldi áfram að þenjast út,“ sagði í The New York Times þegar fréttir bár- ust af tilboðinu. Kínversk fyrirtæki munu að sögn sérfræð- inga vera orðin afar áhugasöm um kaup á öfl- ugum fyrirtækjum í Bandaríkjunum, meðal annars vegna þess að hagnaðurinn er of lítill á innanlandsmarkaðinum. Hann er sagður ein- kennast af ofþenslu í byggingariðnaði, bólu sem hafi orðið til vegna þess að bankar lands- ins hafi lánað hömlulaust og á lágum vöxtum. En aðstæður í Bandaríkjunum og heimsmál- unum eru með þeim hætti að tilboðið í Unocal veldur nú meiri ókyrrð í stjórnmálum en ella. Hefur verið sagt að líkja megi málinu við að eldflaug hafi lent í miðri Washington, að vísu án þess að springa. Margvísleg rök Mörg og óhk rök eru notuð af hálfu þeirra sem vilja setja skorður við framsókn Kínverja. En einkum er bent á að um sé að ræða öflugt einræðisríki sem auki nú hratt framlög til varn- armála, brjóti harkalega mannréttindi, ógni grannþjóðum og sé líklegt til að misnota tök sín á viðskiptalífinu í pólitískum tilgangi. Hækkandi olíuverð á heimsmarkaði, ekki síst vegna vaxandi þarfa Kínverja, um 160 milljarða dollara halli á viðskiptum Bandaríkj- anna við Kína í fyrra og áhugi margra þing- manna á að setja á refsitolla til að þvinga Kín- verja til að hækka gengi júansins og draga þannig úr útflutningi, allt hjálpast þetta að. Margir tortryggnir Bandaríkjamenn segja auk þess rangt að heimila kínversku fyrirtæki, sem ríkið á 70% hlut í, að kaupa mikilvæg fyrirtæki í bandarískum orkuiðnaði þótt Kínverjar setji enn hömlur á kaup erlendra aðila á innlendum fyrirtækjum. Fleira veldur tortryggni í Bandaríkjunum. Bent er á að Kínverjar hiki ekki við að semja um olíukaup við íran og önnur ríki sem stjórn- völd í Washington eiga í hörðum deilum við vegna beins stuðnings þeirra við alþjóðlega hryðjuverkahópa, segirí The Chrístian Science Monitor. En verði kaupin á Unocal bönnuð er ljóst að harðlínumenn í Peking munu notfæra sér mál- ið. Þeir munu segja að Bandaríkjamenn séu staðráðnir í að koma í veg fyrir að Kína verði stórveldi með sterkan efnahag. Ekki sé hægt að treysta orðum Bandaríkjamanna um að al- þjóðaviðskipti eigi að vera frjáls. Sameiginlegir hagsmunir beggja þjóða Hagfræðingar hafa lengi bent á að bæði rík- in eiga mikilla sameiginlegra hagsmuna að gæta. Markaðurinn vestanhafs er geysilega mikilvægur fyrir Kínverja og yrði aðgangur þeiira að honum takmarkaður yrði það þungt áfall fyrir efnahag þeirra. En Bandaríkjamenn eru einnig háðir Kína. Þeir gætu hamlað gegn ódýrum innflutningi þaðan og þannig bjargað allmörgum innlendum störfum í sumum grein- um en fyrir efnahag landsins í heild yrðu áhrif- in neikvæð. Neytendur yrðu að borga meira fyrir fatnað og iðnfyrirtæki að kaupa dýrara stál, svo að dæmi séu nefnd. Kínverjar fjármagna að verulegu leyti fjár- lagahallann vestra með því að kaupa bandarísk ríkisskuldabréf, þeir hafa safnað alls um 230 JFu vill læra á fjármála- markaðinn í Bandaríkjunum og einfaldasta leiðin er þá að hasla sér þarvöll.í milljörðum dollara í slíkum bréfum eða um 12- 14% af öllum bandarískum ríkisskuldabréfum utan heimalandsins. Hins vegar er ljóst að Kín- verjar hafa keypt bréfin vegna þess að þeir telja fjárfestinguna góða og örugga. Má deila um það hvort þeir myndu vilja kaupa skulda- bréf annarra ríkja, t. d. í Evrópu, í staðinn. En ef pólitísku samskiptin versnuðu mjög og þeir gripu þrátt fyrir allt til svo róttækra aðferða myndu afleiðingarnar verða ófyrirsjáanlegar fyrir efnahag Bandaríkjanna. Vilja læra á markaðinn Kínverjar bjóðast til að borga 18,5 milljarða dollara, þar af 16 milljarða í reiðufé, fyrir Uno- cal og hafa með tilboðinu sett í uppnám tilraun olíurisans Chevi'on til að komast yfir fyrirtækið fyrir 16,7 milljarða. Til samanburðar má neftia að verg landsframleiðsla Islendinga í fyrra var um 13 milljarðar dollara. Forstjóri CNOOC, Fu Chengyu, er verk- fræðingur, menntaður á Vesturlöndum og sagður vera staðráðinn í að styrkja fyrirtækið sem er hið þriðja stærsta í olíuiðnaði landsins. Fu vill læra á fjármálamarkaðinn í Bandaríkj- unum og einfaldasta leiðin er þá að hasla sér þarvöll. Fyrsta tilraun fyrirtækisins til að kaupa Unocal mistókst fyrir fáeinum árum en nú er beitt markvissari aðferðum. Hafa Kínverjamir ráðið þrautþjálfaða milhgöngumenn til að reka áróður fyrir sig í þingsölum og annars staðar í kerfinu. Einnig hyggst Fu fara sjálfur til Washington til að reyna að sannfæra þingmenn um að ekki búi neitt slæmt að baki, aðeins sé um hefðbundin viðskiptasjónarmið að ræða en ekki lymskufulla aðgerð til að grafa undan hagsmunum Bandaríkjanna. Fu mun óvart hafa kallað CNOOC einu sinni „kommúnu", orðalag sem Kínverjar forðast nú orðið eins og heitan eldinn. Það minnir um of á gamla tíma. Telja að öryggi í orkumálum sé ógnað Unocal er níunda stærsta fyrirtæki á sínu sviði í Bandaríkjunum og ræður yfir miklum olíulindum í heimalandinu en einnig í Austur- Asíulöndum. Þrátt fyrir þetta er ljóst að kaupin hafa engin úrslitaáhrif á orkubúskap landsins. En tveir þingmenn vilja nú að sögn The Wall Stree t Journal að stjórn Bush forseta láti kanna hvort hindra beri kaupin á þeirri for- sendu að öryggi í orkumálum sé ógnað og Kín- verjar fái ef til vill aðgang að viðkvæmum tækniupplýsingum. Einnig láta margir í ljós efasemdir um að kaup Kínverja á erlendum orkufyrirtækjum byggist á hreinum markaðs- forsendum. Fréttaskýrandinn Guy de Jonquieres segir í grein í Financial Times að viðbrögðin í Banda- ríkjunum séu ekki merki um styrk. Hann segir fáránlegt að berjast harkalega gegn kaupum Kínverja á meðalstóru orkufyrirtæki en reiða sig jafnframt á að þeir fjármagni bandarísk ríkisútgjöld með skuldabréfakaupunum, út- gjöld sem m.a. fari í að tryggja öryggi þjóðar- innar. „Þetta er merki um öryggisleysi [banda- rísku] þjóðaiinnar. Ef Bandaríkjamenn vilja meira öryggi ættu þeir að opna dyrnar upp á gátt fyrir kínverskum fjárfestingum, ekki loka þeim. Því meiri sem þátttaka Kínverja verður í efnahag Bandaríkjanna þeim mun meira eiga þefr undir því að hann sé í lagi og þeim mun öfl- ugri verður hvatinn til þess fyrir þá til að forð- ast jafnt pólitíska sem efnahagslega árekstra," segir Guy de Jonquieres. kjon@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.