Morgunblaðið - 01.07.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 01.07.2005, Qupperneq 22
Ur bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Sefd veidileyfi á iunda | Landeigendur í Grímsey á Steingrímsfirði hafa ákveðið að gefa fólki kost á að veiða lunda á landi sínu í eyjunni. Kemur það fram á fréttavefnum strand- ir.is, og þar segir einnig að í Grímsey sé gríð- arlega stór lundabyggð, sumir segi hana þá stærstu á Islandi og jafnvel í Evrópu. Veiði- leyfi eru seld hjá Jóni Magnússyni í Bæ 1. • • • Gengið í Teigsskóg | Umhverfis- og náttúi-uvemdamefnd Reykhólahrepps stendur fyrir almennri gönguferð um Teigs- skóg við vestanverðan Þorskafjörð næst- komandi sunnudag en Vestfjarðavegur mun liggja um skóginn samkvæmt tillögum Vega- gerðarinnar. Skipulagsstofnun vinnur nú að umhverf- ismati á væntanlegu vegstæði Vest- fjarðavegar nr. 60 í Gufudalssveit. Nokkrar leiðir koma til greina og hafa sveitarstjórn- imar þrjár í Barðastrandarsýslum eindregið mælt með svokallaðri B-leið. Sú leið felur meðal í sér þvemn Djúpafjarðar og Gufu- fjarðar og einnig að vegurinn mun liggja út með Þorskafirði að vestanverðu í gegnum svokallaðan Teigsskóg sem er stærsti birki- skógur á Vestfjörðum. Fæstir hafa séð þetta svæði með eigin augum, enda ekki aðgengi- legt nema gangandi fólki. Fulltrúi Náttúrustofu Vestfjarða verður með í gönguförinni og greinir frá dýra- og plöntulífi á staðnum. Lagt verður upp í göng- una frá bænum Gröf klukkan 13 á sunnudag. • • • Landgræðsla | í lok síðustu viku hófust framkvæmdir við landgræðslu í Eskifjarð- ardal. Fjarðabyggð, Landgræðslan og Vegagerðin hafa tekið höndum saman um að græða upp malamámur í sveitarfé- laginu. Fyrsti áfangi þessa verkefnis hófst í fyrrahaust og var gengið frá jöfnun mal- amámusvæða á Eskifirði og er nú verið að sá í þau svæði. Svæðin sem um er að ræða em við syðri borholu hitaveitunnar og norð- an Eskifjarðarár, samtals um 7 hektarar. Afram verður svo haldið á sömu braut næstu árin. Em svæðin formuð á haustin og sáð svo í þau sumarið eftir. • • • Nýr púttvöllur | Nýr níu holu púttvöllur hefur verið opnaður á tjaldstæði Höfða- hrepps á Skagaströnd. A vefsíðu hreppsins kemur fram að Ingibergur Guðmundsson, fyrsti formaður Golfklúbbs Skagastrandar, sló fyrsta höggið á vellinum í keppni við Hjálm Sigurðsson, tómstunda- og íþrótta- fulltrúa Höfðahrepps. Púttvöllurinn er öllum opinn en þeir sem vilja keppa verða að minnsta kosti til að byrja með að hafa með sér púttara og kúl- ur. Minnstaður Öskað sam- starfs um út- tekt á atvinnu- tækifærum Höfudborgin | Akureyri | Sudurnes | Austurland Leiks g M í ■ ,á s > jM fm. * 11 u< ^ WímLd ** ▼'f< m \ J % -j Æk Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Málað á grjót Þau Kristöfer og ísabella Nótt sátu í skógarreitnum og máluðu á steina sem svo var komið fyrir við göngustíga. Fjöldi þorpsbúa á Djúpavogi kom til að skoða listaverk barnanna. Bjarkartúnsbörn búa til listaverk Djúpivogur | Hinn árlegi skóg- ardagur leikskólans Bjark- artúns á Djúpavogi var haldinn í kringum Jónsmessuna. Ibúar bæjarins fjölmenntu til að skoða listaverk barnanna og hafði verkunum verið komið fyrir í skógræktinni rétt fyrir utan Djúpavog. Sýningin í ár er sérstaklega glæsileg og greinilegt að sköp- unarkraftur og gleði ríkir á meðal barnanna á Bjarkartúni. Listaverkin voru m.a. búin til úr plastflöskum, bréfrúllum og fleiru sem venjulega fer aðra leið en upp í tré. Sýningin stend- ur yfir fram á haust. Skagafjörður [ Sveitarstjórn Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem óskað er eftir samstarfi við iðnaðarráðuneytið um heildstæða út- tekt og rannsóknir á möguleikum Skaga- fjarðar til áframhaldandi uppbyggingar fjölbreyttrar atvinnustarfsemi í héraðinu. Einnig er óskað eftir stuðningi við nýsköp- unarstarf sem Skagfirðingar vinna að og aðgerðaráætlun þar um. Tillagan var fiutt af Bjarna Jónssyni, sveitarstj órnarfulltrúa Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs, og var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn eftir að gerðar höfðu verið á henni orðalagsbreytingar. ------------------------ Unnt að prútta á sölubásum á Markaðsdegi Bolungarvík | Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík, verður haldinn með fjölda sölubása og skemmtidagskrá pæstkomandi laugardag, klukkan 13 til 18. A markaðnum verður selt nánast allt milli himins og jarðar, gestir geta skemmt sér á milli þess sem þeir versla eða prútta á sölubásunum. Fjölmargir þekktir skemmtikraftar koma fram á Markaðsdeginum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. A staðnum verð- ur fjöldi leiktækja fyrir yngri kynslóðina. Auk alls þessa verður tískusýning á barna- fatnaði, keppt í hinni árlegu sultukeppni, grettukeppni, öskurkeppni og margt fleira. Raunar hefst dagskrá helgarinnar í kvöld þar sem allir sameinast um að grilla á risa- grilli í Hreggnasagryíju þar sem Soffía og Pálína Vagnsdætur munu leiða brekkusöng við brakandi varðeld. Helginni lýkur síðan með vatnsdeginum í Sundlaug Bolungarvíkur. Þar geta gestir tekið þátt í vatnsslagnum í öllum fótunum með viðeigandi búnað að vopni. ---------------------- Skákmót haldið í Trékyllisvík Trékyllisvík | Skákmót til minningar um Jónu Sigurveigu Guðmundsdóttur frá Stóru-Avík fer fram í Trékylhsvík á Strönd- um um helgina. Mótið hefst kl. 20 í kvöld og verða þá tefldar þrjár atskákir. A morgun verða tefldar tvær atskákir til viðbótar. I fjórum síðustu umferðunum verða tefldar hrað- skákir. Hrókurinn skipuleggur ferð á mótið og verður boðið upp á gistingu og mat. Meðal þátttakenda verða alþjóðlegir meistai’ar og stórmeistarar í skák, en mótið er opið öllum. ^spran U SPAMSióöUtt PSYXJAVÍKUP 00 UASKCKNIS Skráning skuldabréfa í Kauphöll íslands Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf. - 3.000.000.000 - 1. flokkur 2005 Nafnverð útgáfu og lánstími: Útgefandi: Skráningardagur í Kauphöll Skilmáiar skuidabréfa: Þegar hafa verið gefnar út og seldar 3.000.000.000 kr. að nafnverði. Heildamafnverð flokksins verður allt að 5.000.000.000 kr. að na&verði. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf., kt. 610269-5089, Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Kauphöll íslands mun taka þegar útgefin og seld bréf að upphæð 3.000.000.000 kr. að nafnvirði á skrá 5. júlí 2005. Skuldabréf 1. flokkur 2005 em verðtryggð. Bréfin bera ekki vexti. Utgáfúdagur er 1. mars 2005. Endurgreiða skal höfuðstól skuldarinnar með einni greiðslu þann 1. mars 2012. Auðkenni skuldabréfaflokksins: Auðkenni bréfanna í kerfi Kauphallar Islands er SPR05 1. Umsjón með skráningu: Viðskiptastofa SPRON kt. 501197-2979, Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Skráningarlýsingu og önnur gögn um SPRON varðandi ofangreind skuldabréf liggja frammi hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, Ármúla 13a, 108 Reykjavík, sími 550 1200. Auk þess er hægt að náigast upplýsingar á heimsíðu sparisjóðsins www.spraa.ls Mínstund frett@mbl.is Morgunblaðið/Alfons Fólk í fréttum í Ólafsvík Ljósmyndasýningin Fólk í fréttum hefur verið sett upp á Hótel Ólafsvík. Hún er liður í dagskrá Færeyskra dagasem haldnir eru í Ólafs- vík um helgina. f tilefni opnunarinnar býður Hótel Ólafsvík upp á kaffihlað- borð á laugardag og sunnudag. Á ljósmyndasýningunni eru verð- launamyndir eftir fréttaritara Morg- unblaðsins á landsbyggðinni, meðal ann- ars tvær fréttamyndir sem Alfons Finnsson í Ólafsvík er höfundur að. Sýningin er sett upp á nokkrum stöð- um á landsbyggðinni nú í sumar. Mynd- irnar verða í Ólafsvík til 24. þessa mán- aðar. Höfuðborgarsvædið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland SteinunnÁsmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Af sigghendu Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd velti fýrir sér um- ræðum um sigghenduna í þættinum Mín stund. Hann yrkir: Spekingurf búðum Braga birti dóm í skeyti. Oröum kunni karl að haga, kláraðflestu leyti. Sigghendunni sóknarfæri síst hann veitti ogglotti. Úrskurðaði að hún væri afhending meö skotti. Rúnar bætir við: Braga-hersis Bangslmon bar sig þversum móti von. Kvæðaversa kunnurdon, Kristján Bersi Ólafsson. Sigrún Haraldsdóttir lagði út af fréttum: Cruise sér nýrrar kvinnu bað. Kýr úr fjósum streyma. Sjálfsvíg kvenna standa í stað. Sturlavinnurheima. pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.