Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 26

Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Menntun | Stofnun Sigurðar Nordal býður upp á íslenskukennslu fyrir Bandaríkjamenn „Pabba fannst tilvalið að skíra mig í höfuðið á Eiríki rauðaa Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.ís ÍSLAND er svolítið Ameríkusinnað land að mati nokkurra bandarískra háskólanema sem eru hér á landi í ís- lenskukennslu á vegum Stofnunar Sigurðar Nordal og germönsku deildar Minnesota-háskóla í Banda- ríkjunum. Nemarnir hafa dvalið hér á landi síðastliðnar þrjár vikur en þar áður voru þeir í tungumálanámi í Minnesota. I hópnum, sem telur þrettán manns á aldrinum 19-88 ára, eru ekki einungis háskólanemar heldur einnig VeStur-íslendingar og annað áhugafólk um íslenska tungu og menningu. Það var árið 2001 sem Landa- fundaneftid veitti Stofnun Sigurðar Nordals fyrst stjn-k til að efla ís- lenskukennslu vestanhafs. Minne- sota-háskóli varð fyrir vahnu sem samstarfsskóh þar sem margt fólk af norrænum ættum býr í fylkinu, góð- ar flugsamgöngur eru þaðan til Is- lands og í háskólanum þar hefur ver- ið boðið upp á kennslu í forníslensku. Nú styrkir menntamálaráðuneytið verkefnið og hefur Icelandair veitt þátttakendum afsláttarfargjöld ásamt því að Minnesota-háskóli veit- ir námsstyrki. Háskólanemamir í hópnum fá námskeiðið metið til ein- inga í sínum skólum, en þátttakend- urnir koma alls staðar að úr Banda- ríkjunum. Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðs Nordals, segir að í upphafi hafi hugmyndin verið sú að halda tungumálanámskeiðið alfarið vestanhafs en þar sem tahð var að áhugi yrði varla nægur fyrir því var hugmyndin þróuð betur. Námskeiðið í ár er það fimmta í röðinni og bygg- ist þannig upp að nemendur dveljast fyrst í Minnespta í þrjár vikur en ferðast svo til Islands í áframhald- andi íslenskukennslu og menning- arferð. Guðrún Theódórsdóttir, aðjúnkt í íslensku fyrir útlendinga, hefur kennt námskeiðin frá byrjun, bæði í Bandaríkjunum og hérlendis. Þá er nemunum einnig boðið upp á fyr- irlestra um náttúru íslands, íslenska sögu og menningu ásamt því að menningarstofnanir og sögustaðir sunnan- og vestanlands eru heim- sóttir. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við fjóra íslenskunema fyrr í vikunni og fékk að heyra hvemig þeim líkar kennslan, landið og menn- ingin. Nick Eyvindson er 24 ára nemi í fornámi í læknisfræði við Concordia- háskólann í Saint Paul í Minnesota- fylki. Eins og eftirnafn hans gefur til kynna er hann af íslenskum ættum. Afi Nicks var íslenskur en amma hans bandarísk. Þau bjuggu fyrst á íslandi og var faðir hans ftmm ára þegar þau fluttu til Bandaríkjanna. Islenska var ekki mikið töluð á heim- ili fóður Nicks svo enginn í fjölskyld- unni talar málið í dag. Afi hans lést rétt fyrir fæðingu hans og amma hans lærði aðeins nokkur orð. Nick segir námskeiðið vera skemmtilegt en þó frekar erfitt. Kennslan fari fram á íslensku sem sé gott að því leyti að þau verði að leggja sig harðar fram og þannig læri þau einnig meira. Melissa Lee er 21 árs grunnskóla- kennaranemi frá Concordia- háskólanum í Moorehead, einnigí Minnesota, og er þetta önnur heim- sókn hennar til landsins. Melissa er líkt og Nick af íslenskum ættum því amma hennar er alíslensk. Hún var ein þeirra Vestur-íslendinga sem fluttu til Norður-Dakóta í lok nítjándu aldar. Þar giftist hún inn í norska fjölskyldu og missti því fljót- lega tökin á íslenskunni sem hún hafði annars ahst upp við í æsku. Melissa hefur mikinn áhuga á ætt- artengslum sínum við Island og stefnir að því að rækta þau enn frek- ar í framtíðinni. „Námskeiðið er meiri áskorun en ég hélt það yrði og mér þykir málfræðin mjög erfið,“ segir Melissa og Nick er sammála því. „Ég hafði reynt að læra íslensku Hópurinn í kennslustund í Árnagarði. Fremst situr Melissa Lee og við hlið hennar er Eric Luttrell. Morgunblaðið/Ómar Nick Eyvindson fylgist hér glöggt með kennslunni. Hann hyggur jafnvel á háskólanám á Islandi í framtíðinni, svo ánægður er hann með dvölina. sjálfur en stafrófið og framburðurinn var mér það erfiður að ég gafst fljót- lega upp,“ segir hann en hvorugt þeirra kunni neitt í tungumálinu fyr- ir námskeiðið. Nick segist því miður ekki hafa kynnst neinum íslendingum það vel að hann muni halda sambandi við þá en fólkið hér sé mjög almennilegt. „Ég kom ekki með neinar væntingar hingað og hef haft mjög gaman af því að kynnast menningunni. Það kom mér þó á óvart hversu Island er líkt Bandaríkjunum að vissu leyti en samt sem áður er það auðvitað líka evrópskt." Melissa bætir við að unga fólkið hér á landi virðist vera mjög upptekið af svokallaðri poppmenn- ingu; tísku og tónlist líkt og vest- anhafs. Hópurinn hefur stundað sundlaug- ar borgarinnar mikið og voru fljót að komast upp á lagið með heitupot- taumræðumar. „Við spjöllum stund- um við fólkið í pottunum en hlustum líka oft á hvað það er að ræða um. Oftast skiljum við ekki mikið en stundum nokkur orð,“ segir Melissa. Ólíkt Nick og Melissu er Eric Luttrell ekki íslenskættaður og því lék blaðamanni sérleg forvitni á að vita hvað dró hann á þetta námskeið. Hann er 28 ára nemi í enskum mið- aldabókmenntum í háskólanum í Denver. „Þar sem íslenska er líkust miðaldaensku af nútímatungumálum fannst mér tilvalið að sækja þetta námskeið. Aður en ég kom hingað hafði ég litla hugmjmd um framburð miðaldaenskunnar svo íslenskunám- ið hjálpar mér mikið,“ útskýrir Eric. Hann er ánægður með námskeiðið þegar á heildina er litið og hafði sér- staklega gaman af ferðum á Þing- velli, Gullfoss og Geysi og að Eiríks- stöðum í Haukadal. A síðastnefnda staðnum var tekið mjög vel á móti hópnum. Það kom Eric mjög á óvart hversu vel staðurinn hefur verið end- urbyggður og í hversu gott návígi við gömlu tímana gestir komast þar. Það jók mjög áhuga Erics á Is- landi að hann er skírður í höfuðið á Eiríki rauða. „Þegar ég var nokkra daga gamall og var ég oft svo reiður af því að hggja í vöggunni minni að ég varð eldrauður í framan. Pabba fannst því tilvalið að skíra mig í höf- uðið á Éiríki rauða,“ segir Eric og hlær. Hann hafði því sérstaklega gaman af heimsókninni á Eiríksstaði. Hópurinn allur er mjög ánægður með námskeiðið og tveir munu vera áfram á landinu til að taka þátt í fjög- urra vikna íslenskunámskeiði fyrir fólk alls staðar að úr heiminum sem hefst um helgina. Það námskeið er einnig á vegum Stofnunar Sigurðar Nordal. Þátttaka á námskeiðinu sem nú er að ljúka hefur aldrei verið eins góð og í ár og mun Minnesota-háskóli og Stofnun Sigurðar Nordal bjóða upp á slíkt tungumála- og menningar- námskeið áfram á næstu árum. Nýr umboðsaðili UPS á íslandi! Frá og meó 1. júlí munu Vallarvinir ehf. taka við umboði hraðsendingafyrirtækisins UPS á íslandi. Þessi breyting er liður í að bjóða viðskiptavinum UPS aukna og bætta þjónustu sem kynnt verður nánar á næstu vikum. Nýtt þjónustunúmer UPS er 420 0900 Vallarvinir ehf. Authorized Service Contractor for UPS Bygging 10, Keflavíkurflugvöllur P.O. Box 40, IS 232 Keflavík Sími 420 0900 - Fax 420 0901 http://www.express.is Reuters 24 tonn af sandi FIMMTIU myndhöggvarar víðsveg- ar úr heiminum hafa undanfarnar fimm vikur verið að reisa þennan risavaxna sandskúlptúr í borginni Blankenberge í Belgíu í tilefni af 175 ára afmæli ríkisins. 24 tonn af sandi þurfti til verksins en gestir og gang- andi geta skoðað skúlptúrinn frá og með morgundeginum og fram til 28. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.