Morgunblaðið - 01.07.2005, Page 48

Morgunblaðið - 01.07.2005, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ / Tónlist | Norðmennirnir í Wig Wam sækja Island heim „Drögum Wig Wam- skrímslið um heiminnu Þeir Teeny, Sporty, Glam og Flash skipa Wig Wam og eru á leiðinni! Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is FJÓRMENNINGARNIR í hljóm- sveitinni Wig Wam komu, sáu og... lentu í níunda sæti í söngvakeppni evrópski'a sjónvarpsstöðva sem fram fór í Kænugarði. Hljómsveitin, sem keppti fyrir hönd Noregs enda liðsmenn allir frá því ágæta landi, vakti hinsvegar geysilega athygli í kjölfar keppninnar og hefur verið að leika á tónleikum víða um Skandinavíu og er hvergi nærri hætt. A dögunum kom út breið- skífan Hard To Be a Rock’n Roll- er... in Kiev og Evróvisjónlagið „In My Dreams (Come On)“ hefur verið mikið spilað á öldum ljósvakans víða um Evrópu. Hér á landi sat lagið efst á lista yfir vinsælustu lög lands- ins í síðustu viku. Um helgina liggur leið Wig Wam upp á íslandsstrendur þar sem þeir munu halda tvenna tónleika. Aðra í Smáralind og síðar um kvöldið á Gauk á Stöng auk þess sem þeir koma fram á sjónvarpsstöðinni Sirkusi til að leggja Live 8- málefninu lið. Söngvarinn Glam var staddur í heimalandi sínu við æfingar þegar blaðamaður náði af honum tali. Hefur verið mikið að gera hjá ykkur síðan í Evróvisjón-söngva- keppninni? „Já, biddu fyrir þér, það hefur verið stanslaus dagskrá hjá okkur síðan við unnum undankeppnina hér í Noregi. Nóttina áður en við héld- um til Kænugarðs vorum við með tónleika í Norður-Noregi og heldum svo beint í keppnina án þess að hafa sofið nokkuð.“ Það hefur þó greinilega ekki spillt fyrir árangri ykkar í keppninni. „Nei, það gerði það ekki. Þetta gekk allt saman mjög vel.“ Hefur keppnin opnað ykkur margar dyr? „Já, það er ekki spurning. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur síðan... og nóg eftir.“ Og nú eruð þið á leið til íslands. „Já, loksins.Við byrjum í Smára- lindinni og spilum svo á klúbbnum, hvað heitir hann aftur? Gúgúr?“ Gaukur á Stöng. „Já, einmitt. Við komum svo aftur til íslands og hitum upp fyrir Alice Cooper í ágúst og svo er áformað að halda aðra tónleika á Nasa í sept- ember að ég held.“ Finnst ykkur þið skyldugir til að heimsækja öll löndin sem gáfu ykk- ur 12 stig í Evróvisjón? „Nei, alls ekki, okkur langaði mikið að koma. Við höfum líka heyrt að lagið okkar sé orðið vinsælt þarna hjá ykkur.“ Já, það var vinsælasta lag síðustu viku hér á landi. „Já er það? Það er frábært!" Segðu mér aðeins frá Wig Wam, hvað hafíð þið spilað lengi saman? „Við lékum saman á níunda ára- tugnum en komum aftur saman á nýjan leik árið 2000 þegar Teeny (einn liðsmanna) hafði samband við mig. Við höfðum því samband við hina og við höfum saman verið að vinna við þetta frábæra verkefni sem Wig Wam er.“ Hvemig lítur svo framtíðin út hjá WigWam? „Eftir Islandsheimsóknina erum við að fara í tónleikaferð um Noreg. Platan okkar kemur svo út í Finn- landi, Svíþjóð, Danmörku, Sviss, Þýskalandi og Austurríki á næst- unni og líklegt er að stefnan verði einnig sett á Japan og Astralíu. Það er vonandi að við náum að draga þetta skrímsli sem við köllum Wig Wam sem víðast um heiminn. Við erum einnig með nýja plötu í bígerð en ég efast um að við höfum tíma til að koma henni út fyrr en í desem- ber eða janúar næstkomandi. Það er því lítil hvíld framundan hjá okk- ur.“ Tónleikar Wig Wam í Smáralind á laugardaginn hefjast klukkan 16.30. Aögang- ur er ókeypis. Hasgt er að nálgast miða á tónleikana á Gauk á Stöng um kvöldið á www.con- cert.is og í síma 511-2255. Miðaverð er 1.900 krónur. Tónlist | Dj Surg- eon á Islandi Tónlistar- veisla á Gauknum Meira fyrir peninginn ÍNNRASIN ER HAFIN álFAlAKKA smo; iJurgarbíój smHRH\ BÍÚ MastetCard Veidu ódýrt bensm +ávinning!m TÓNLISTARMAÐURINN og plötusnúðurinn Anthony Child, eða Dj Surgeon eins og hann kýs að kalla sig, leikur á Gauk á Stöng í kvöld ásamt Exos, Tómasi THX og Gus Gus plötusnúðunum. Dj Surgeon skaust upp á stjörnuhimininn í tekno-heiminum árið 1995 þegar Jeff Mills notaði tvö lög eftir hann á geisladiskinn fræga Live at the liquid room Tok- yo. Endurhljóðblandanir fyrir Dave Clarke, Hardfloor og Missile re- cords fylgdu strax í kjölfarið ásamt því að hann var boðaður sem fastaplö- tusnúður á neðanjarðarklúbbnum Tresor í Berlín. Surgeon hefur gefíð út 6 breið- skífur og gríðarlegt magn af endur- hljóðblöndunum fyrir útgáfur eins og Warp, Matardor, Music man, Fat cat og harthouse. Tónleikarnir hefjast á Gauk á Stöng í kvöld klukkan 23. Miða- verð er 1000 krónur. PCI lím og fiiguefr . 1 u [■* Stórhöfða www. ’l, við Gullinbrú, s. 545 5500. lis.is • netfang: f1is@flis.is 1|

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.