Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 53

Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 53
52 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR1. JÚLÍ 2005 53 •i STÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS • HAGATORGI • S. 530 1919 • www.hoskolabio.is I MYND EFTIK STEVEN SPIELBERG H War of the Worlds kl. Batman Begins kl. Inside Deep Throat kl. Voksne Mennesker kl. Crash kl. 3.30 - 6- 8.30- 11 bJ. 14 5 - 7 - 9 og 11 b.i. 12 10,15 Stranglega b.i. 16 ára 5.45 og 8 5.45-8 og 10.15 b.i. 16 ^23| H.B. / SIRKUS FRABÆR SKEMM F*. GHRISTIAN MICHAEL LbWj BALE CAINE NEE9 GARY MORGAN OLDMAN a,,u FREEMAN Gleymid öllum hirHim ★★★★ Batman myndunum. I . i ... . Ktnkmyndir.is Þessi er malió Vft'i'JD EFTiR mTVEN SPIELBERG k A k. k ★★xw Capoop' *■™ 919 Gleyrípdu hinum. Þetta er iluöru Batr '★★★★ ★★★ i D.Ó.J. I Kvikmyndir.com í Einn al stœrstu * \ sincllum árslns.1' HANN ÁÐUR ! \ BATMAN EINS OG ÞU HEFUR ALDREI ALFABAKKI KRINGLAN MUREYRS KEFLAVIK THE WAR 0FTHE W0RLDS kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 b.i. 14 ára. THE WAR 0F THE W0RLDS VIP kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 BATMAN BEGINS kl. 3.30 -4.30 -5 - 6.30 -7.30 -8 -9.30 -10.30 -10.50 b.i. 12 ára. ALOTLIKELOVE kl. 6 - 8.15 -10.30 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 BATMAN BEGINS kl- 3.30 - 5.10 - 6.30 - 8.10 - 10 b.í. 12 ára. HOUSEOFWAX kl.10 B.i. 16 ára. THE WEDDING DATE kl.8 THE ICE PRINCESS HITCHHIKER S GUIDE. SVAMPUR SVEINSSON kl.4 kl. 5.50 m/ísl.tali. kl. 3.30 BATMAN BEGINS kl. 5 - 8 -10.40 KICKING AND SCREAMING kl. 6 - 8 (ótboltatilboð 500 kr CRASHkl. 10 WAR OF THE WORLDS kl. 8 og 10.30 BATMAN BEGINS kl. 8 og 10.30 www.sambioin.is _______ÁLFABAKKl c 587 8900 KRINGLAN C 588 0800 AKUREYRI C 461 4666 KEFLAVÍK C 4211170 Live 8 | Utsending frá hádegi til miðnættis á sjónvarpsstöðinni Sirkus á morgun Risastór tónlist- arviðburður Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is TÓNLEIKAR verða haldnir víða um heim undir nafninu Live 8 á morgun. Þeir eru í anda annarra tónleika fyrir tuttugu árum, Live Aid - þeir snerust um að safna fé en Live 8 er haldið til að vekja athygli á ákveðnu málefni. Bob Geldof leiðir hóp skipuleggjenda, líkt og fyrr, en hann segir þetta „ekki snúast um ölmusu heldur pólitískt réttlæti“. Haldnir verða tíu tónleikar í G8- löndunum, auðugustu iðnaðarríkjum heims, auk Suður-Afríku. Milljónir manna fá tækifæri til að hlusta á margar frægustu hjómsveitir í heimi á meðan fræðst er um vandamálin sem þróunarlöndin eru að kljást við. Vonast er til að tónleikarnir setji pressu á leiðtoga G8-ríkjanna til að semja um skuldir, aðstoð og við- skipti við Afríku á ráðstefnu, sem fram fer í Skotlandi 6.-8. júlí. „Þetta eru stærstu og bestu tón- leikar sem haldnir hafa verði. Þetta verður stórkostlegt og tilgangurinn með þessu er að setja þrýsting á G8 til að gera það sem þarf fyrir Afr- íku,“ sagði Oliver Buston, fram- kvæmdastjóri DATA (Debt, AIDS, Trade, Africa) í Evrópu í samtali við AFP. Mikið hefur gengið á hjá skipu- leggjendum síðustu vikur en á mið- vikudag var Moskvu bætt við lista tónleikaborganna og er hún komin í hóp með London, París, Róm, Berl- ín, Fíladelfíu, Toronto, Tókýó og Jó- hannesarborg en til viðbótar verður haldinn sérstakur viðburður á Eng- landi með afrísku þema. Hann er haldinn undir nafninu „Afríka kall- ar“ eða „Afríca Calling", eingöngu afrískir hstamenn stíga á svið en tónleikarnir fara fram í Cornwall. Til að ítreka skilaboðin verður þögn á öllum tónleikastöðunum um tíma á meðan lista- menn og áhorf- endur smella fingrum á þriggja sek- únda fresti. Þetta er gert til að leggja áherslu á að barn deyr vegna fátækt- ar á þriðju hverri sek- úndu. Þessir þekktu tón- listarmenn draga að mál- efninu athygli fólks sem annars hefði ekki veitt því stuðning. „Fólkið mætir af því að tónlistin er góð en í leiðinni verður það meðvitað um þessi málefni,“ sagði Buston. Geldof vill að fólk fer ðist til E din- borgar eftir tónleikana til að taka þátt í mótmælum á meðan á G8- fundinum stendur en hann fer fram nærri borginni. Af því tilefni verða haldnir stórtónleikar í borginni á fyrsta fnndardegi. Nær til 85% heimsins Nýja sjónvarpstöðin Sirkus sendir frá Live 8 hérlendis frá hádegi til miðnættis. Fram koma margir þekktir íslenskir tónlistarmenn og verður mikill stjömufans í mynd- verinu. Hérlendis hafa 75% heimila aðgang að út- sendingum Sirkuss en hægt er að miða við að hún náist þar sem PoppTíví sást áður, að sögn Árna Þórs Vigfús- sonar sjónvarpsstjóra. Stöðin næst annað- hvort í gegnum Digital ísland eða UHF-dreifingu. „Fyrsti klukkutíminn í útsend- ingu fer í upphitun. Guðmundur Steingrímsson tekur á móti góðum gestum þennan fyrsta klukkutíma, frá UNICEF, poppurum, pólitík- usum og viðskiptafólki áður en við förum í sjálfa útsendinguna. Við ræðum um Live Aid fyrir tuttugu ár- um og Live 8 átakið," segir hann en eftir það mæta góðir gestir í heim- sókn reglulega yfir daginn. Sjónvarpsstöðin verður í sam- starfi við ÚNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, á Islandi. A meðan á útsendingu stendur verður hægt að skrá sig sem heimsforeldri í síma 562 6262 eða á heimasíðunni www.unicef.is. Um er að ræða langstærstu út- sendingu allra tíma en í gegnum sjónvarp, útvarp, netið og m.a.s. far- síma nær hún til um 5,5 milljarða manna. Ásamt Sirkus stendur Con- 6393 -ii/förf moe raniliina inð fmröni Útlönd MARGIR heimsþekktir hsta- menn koma fram á Live 8 og verða hér taldir upp þeir helstu. London: Annie Lennox, Bob Geldof, Coldplay, Dido, Elton John, Joss Stone, Keane, The Killers, Madonna, Mariah Car- ey, Ms. Dynamite, Paul McCartney, Pink Floyd, Razor- light, REM, Robbie Williams, Scissor Sisters, Snoop Dogg, Snow Patrol, Stereophonics, Sting, Travis, U2, UB40, Velvet Revolver. París: Andrea Bocelli, Craig David, The Cure, Dido, Muse, Placebo, Raphael, Shakira, Sheryl Crow og Youssou N’Dour. Berlín: A-ha, Audioslave, Brian Wilson, Crosby Stills & Nash, Die Toten Hosen, Faithless, Green Day, Roxy Music og Sasha. Róm: Duran Duran, Faith HiH, Tim McGraw og fjöldi þekktra ítalskra hstamanna. Toronto: Barenaked Ladies, Bryan Adams, Deep Purple, Jet og Motley Crue. Fíladelfía: Alicia Keys, Black Eyed Peas, Bon Jovi, Dave Matthews Band, Def Leppard, Destiny’s Child, Jay-Z, Josh Groban, Linkin Park, Maroon 5, P Diddy, Sarah McLachlan og Stevie Wonder. Jóhannesarborg: 4Peace En- semble, Lindiwe, Lucky Dube, Mahotella Queens, Malaika, Orchestre Baobab, Oumou Sengare og Vusi Mahlasela. Cornwall: Angelique Kidjo, Sal- if Keita, Thomas Mapfumo, Tinariwen, Daara J, Shikisha, Ayub Ogada og Modou Diouf & O Fogum. Tókýó: Björk, Def Tech, Dreams Come True, Good Charlotte, McFly, Rize. Moskva: Pet Shop Boys ásamt þarlendum listamönnum. títsýni frá aðalsviðinu í Hyde Park í London en þar koma fram margir þekktustu tónlistarmenn í heinii á Live 8 á morgun. AP ísland cert að útsendingunni hérlendis með aðstoð Baugs., Aðalatriðið er að fólk missi ekki af þessu því þetta er tón- listarviðburður sem fólk mun lifa lengi á að hafa fylgst með,“ segir Einar Bárðarson hjá Concert sem er spenntur fyrir deginum. „Eg er bú- inn að lifa á hinum tónleikunum í 20 ár, ég ber miklar væntingar til þess- arar útsendingar og ætla að skemmta mér rosalega vel yfir henni. Þetta er langstærsta sjón- varpsútsending sem send hefur ver- ið út. Það hafa tæplega 85% verald- arinnar aðgang að henni.“ www.live8live.com www.unicef.is TÓNLEIKAR fara fram hér- lendis í kvöld af tilefni Live 8 undir nafninu Átta líf. Fram koma Bubbi Morthens, Hjálmar, Kimono, Leaves, Mínus, Ragnheiður Gröndal, Papar, Singapore Sling, Stuð- menn og Without Gravity. Tónleikarnir verða í Hljóm- skálagarðinum og standa yfir frá 20.30 til 23. Hérlendis verður sýnt frá Live 8 á morgun frá hádegi til miðnættis á nýju sjón- varpsstöðinni Sirkusi. Á með- al gesta sem hafa boðað komu sína í útsendinguna eru Birgitta Haukdal, Wig Wam, Jónsi, Ragnhildur Gísladóttir, Björgvin Halldórsson, Nylon, Krummi og Frosti úr Minus, Kiddi úr Hjálmum, Rúnar Júl- íusson, Sölvi Blöndal, Selma Björnsdóttir, Magni, Sammi í Jagúar, Þorvaldur Bjarni, Erpur, Svavar Örn, Davíð Smári, Esther Thalía, Sigur- jón Kjartansson, Jón Gnarr, Ragnhildur Steinunn, Eva María Jónsdóttir, ÓIi Palli, Logi Bergmann, Inga Lind Karlsdóttir, Svanhildur Hólm, Eyrún Magnúsdóttir og Dag- ur B. Eggertsson. Þrír fjölmiðlamenn lýsa út- sendingunni, Skarphéðinn Guðmundsson á Morgun- blaðinu, Andrea Jénsdóttir á Rás 2 og Ragnar Már Vil- hjálmsson á Bylgjunni. Oruggur staður að vera á Sýningartíminn brunar hjá og nokkrar hressilegar senur skapa netta taugaveiklun, en samt skortir vána, nagandi óttann við það sem maður ekki þekkir, segir í dómi um myndina War of the Worlds. KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Sambíóin, Háskólabíó, Smárabíó, Borgarbíó Akureyri Innrásin frá Mars (War of the Worlds) ★★★☆☆ Leikstjóri: Steven Spielberg. Aðaiieik- endur: Tom Cruise (Ray), Dakota Fann- ing(Rachel), Miranda Otto(MaryAnn), Justln Chatwin (Robbie), Tim Robbins (Harlan Ogllvy). 117 mín. Bandaríkln. 2005. GEIMVERUR eru gamalkunnugt fyrirbæri í myndum Stevens Spiel- bergs sem nú tekur fyrir eina bestu sögu slíkrar gerðar, War of the Worlds, eða Innrásinni frá Mars eins og hinn klassíski vísindaskáld- skapur H.G. Wells hefur löngum heitið á íslensku. í E.T. og 67o.se Encounters of the Third Kind, eru gestirnir jákvæðir en eins og nafnið bender til er Innrásin annars eðlis, nú er dauðans alvara í spilinu. Handritshöfundurinn David Koepp fylgir Wells í stórum drátt- um en aðhæfir söguna sem Wells (1866-1946), lætur gerast rétt fyrir aldamótin 1900, að samtímanum. Að þessu sinni er söguhetjan New Yorkbúi, hafnarverkamaðurinn Ray (Cruisp), fráskihnn, tveggja bama faðir. I myndarbyrjun kemur fyrr- um kona hans (Otto), með bömin þeirra tvö, hún þarf að heimsækja foreldra sína í Boston, það er „pabbahelgi". Þá ríða ósköpin yfir. Þau hefjast með ónáttúrulegum segulstormum um allan heim, austurströnd Banda- ríkjanna ekki undanskihn. Eins og hendi sé veifað umturnast hvers- dagslífið sem breytist í hryllilega martröð þar sem allir verða að berj- ast fyrir lífi sínu og verður ekki far- ið nánar út í efnisþráðinn. Spielberg hefur átt misjöfnu fylgi að fagna að undanförnu og tvær síð- ustu myndir hans á undan, Catch Me If You Can og enn frekar The Terminal, stóðu langt undir vænt- ingum frá snillingi sem hefur gefið okkur fjölmargar af bestu myndum síðustu áratuga. Spielberg er einkar lagið að gera ósviknar stríðs- og spennumyndir, nú er hann aftur á beinu brautinni. Innrásin er girnileg sumarskemmtun, poppkornsmynd af bestu gerð en ekki ein af hans bestu og verður seint borin saman við Jaws, Minority Report eða Schindler’s List. Hvað þá útvarps- leikritið hans Orsons Welles. Yfrið nóg skemmtanagildi er engu að síð- ur fyrir hendi til að gera myndina af einum af stóru smellum ársins. Spielberg og hans fólk, sem flest er fremst í sínum hópi og gamlir samstarfsmenn, líkt og kvikmynda- tökumaðurinn Janusz Kaminski, út- litshönnuðurinn Rick Carter og tón- skáldið John Williams, hjálpa ásamt tölvubrellusnillingum að láta sýn- ingartímann bruna hjá og skapa hressileg augnablik þar sem maður er við það að gefa frá sér hálfkæft taugaveiklunaróp og sagan heldur bærilegri siglingu. Samt skortir vána, nagandi óttann við það sem maður ekki þekkir og liggur í loftinu og smitar út í salinn líkt og í í In- dependence Day, þegar risavaxin geimskipin byrgja fyrir sólu. Einn af göllum Spielbergs í seinni tíð eru lág væmnismörk sem hann hunsar lengst af, en því miður, eyr- arkarlinn verður sómi sinnar fjöl- skyldu. Mikið mæðir á Tom Cruise sem er borubrattur og ber fram- vinduna ágætlega uppi. Robbins á góða og dálítið óvænta innkomu, Fanning litla er nákvæmlega eins í öllum myndum en stendur fyrir sínu. Þá bregður Gene Barry fyrir í litlu atriði, en hann fór með aðal- hlutverkið í 1953 útgáfú Innrás- arinnar. Eflaust hefur Spielberg haft níð- ingsverkin sem kennd eru við 11. september í huga þegar hann fór í gerð Innrásarinnar, jafnvel gam- algróin fjölskyldugildi sem liggja undir miklu áreiti nú um stundir, líkt og fram kemur í myndinni. Hvað sem því líður hefðu þeir Spiel- berg og Koepp gjarnan mátt gefa sér betri tíma en það hálfa ár sem fór í hraðsuðu myndarinnar. Þá hefði Welles hugsanlega snúið sér í gröfinni. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.