Morgunblaðið - 02.07.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005 39
KONRÁÐ
GÍSLASON
+ Konráð Gíslason
fæddist á Frosta-
stöðum í Akrahreppi
2. janúar 1923. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 24. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guðrún Þ.
Sveinsdóttir, f. 29.7.
1895, d. 13.8. 1977,
og Gísli Magnússon,
f. 25.3. 1893, d. 17.7.
1981. Systkini Kon-
ráðs eru: Magnús
Halldór, f. 1918,
Konráð Elínbergur,
f. 1919, d. sama ár, Sveinn Þor-
björn, f. 1921, Rögnvaldur, f.
1923, Gísli Sigurður, f. 1925,
Frosti, f. 1926, d. 2001, Kolbeinn,
f. 1928, d. 1995, Árni, f. 1930,
María Kristín Sigríður, f. 1932,
Bjarni, f. 1933, Þorbjörg, f. 1935,
d. sama ár, og Þorbjörg Eyhild-
ur, f. 1936.
Hinn 1. desember 1957 kvænt-
ist Konráð Helgu Bjarnadóttur
frá Uppsölum í Akrahreppi, f.
13.12. 1935. Börn þeirra eru: 1)
Gísli Rúnar, f. 1957. 2) Sigurlaug
Kristín, f. 1960. 3) Bjarni Stefán,
Það er gott að minnast afa. Þegar
við heimsóttum hann og ömmu í
Furulundinn lá hann gjarnan uppi í
sófa, með peysu ofan á sér og las blöð-
in. Við að sjá okkur glaðnaði yflr hon-
um, hann reis upp frá blaðalestri,
heilsaði og spurði frétta. Spjallaði við
okkur um daginn og veginn. Rás 1
hljómaði undir. Afi átti sama sætið -
afasæti - við matarborðið, og var oft
með fæturna uppi á sófaborðinu í
stofúnni. Hann var alltaf í skyrtu og
vildi vera fínn til fara. Fór oft út til að
gá að gráðunni, eins og hann sagði.
Stundum tók hann kíki í hönd og
horfði yfir í Blönduhlíðina sem var
honum svo kær.
Afi spurði alltaf hvernig gengi í
skólanum og um framtíðaráformin.
Hvatti okkur stöðugt til dáða. Hann
fylgdist ekki mikið með íþróttum en
komst þó varla hjá því. Honum þótti
erfitt að bera fram nafnið á uppá-
haldsliðinu okkar flestra, Manchester
United. Þá var honum bent á að betra
væri að segja Arsenal og eftir það
spurði hann stundum hvort Arsenal
hefði unnið, en var þó alveg sama.
Afi tók mikið í nefið og bauð okkur
oft. Hann hnerraði líka þessi lifandis
ósköp og einu sinni varð blaðið, sem
við vorum að teikna á, svart af tóbaki
eftir einn hnerrann. Þegar við höfð-
f. 1960, maki Ágústa
Ólafsdóttir. 4) Kol-
beinn, f. 1963, maki
Linda Gunnarsdótt-
ir. 5) Þorleifur, f.
1963, maki Anna
María Gunnarsdótt-
ir. Afabörnin eru 12.
Konráð ólst upp í
Eyhildarholti í
Hegranesi þar sem
foreldrar hans
bjuggu. Hann stund-
aði nám við Héraðs-
skólann á Laugar-
vatni í tvo vetur og
lauk búfræðinámi
frá Bændaskólanum á Hólum
1942. Hann var bóndi á Frosta-
stöðum frá 1950-1985, brá þá búi
og flutti í Varmahlíð og átti þar
heima til lokadags.
Konráð starfaði mikið að fé-
lagsmálum heima í héraði og
áhugi hans á landsmálum var
mikill og vakandi. Hann var fé-
lagi í Karlakórnum Heimi í 60 ár.
Konráð verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11. Bálför fer
fram síðar og verður jarðsett í
Flugumýrarkirkjugarði.
um heilsað honum og kvatt, þurftum
við ævinlega að dusta af okkur nef-
tóbakið. Það var eiginlega tóbak út
allt gólf. Hann rölti oft um húsið, raul-
andi og hnerrandi.
Afi fylgdist með öllum fréttatím-
um, bæði í útvarpi og sjónvarpi, og
þegar hann var í heimsókn vildi hann
annaðhvort heyra fréttir áður en
hann fór heim eða vera kominn heim
fyrir fréttir.
Ef við komum með gos og snakk
þegar við gistum bað hann stundum
um að fá að smakka, sagði þetta vera
vont en fékk sér samt alltaf meira og
meira.
Við minnumst þess þegar við fór-
um með afa að vitja um netin í Vötn-
unum. Hann keyrði svo hægt á Löd-
unni sinni að okkur þótti stundum
nóg um. Það var jafnvel hægt að ná
góðum lúr þótt leiðin væri stutt. Væri
hann farþegi vildi hann að hægt yrði á
ferðinni ef mælirinn sýndi níutíu, við
ættum jú að skoða landið.
Þegar afi fór í ferðalög setti hann
ævinlega upp grænu Olís-derhúfuna
sem honum hafði eitt sinn áskotnast.
Fyrir allar kosningar fór hann á
flug. Okkur þótti samt ansi skemmti-
legt þegar hann sagðist bara ætla að
kjósa Sigurpál, vin sinn og nágranna,
í forsetakosningunum ’96.
Amórl. Pálsson
frarakvæmilastjóri
ísleifurjónsson
útfararetjóri
Fn'niannAndrésson
útfararþjónusta
Svaíar Magnússon
útfmifjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
llugrún jónsdóttir GuðmundurBaldvitisson tialidór Ólafeson Ellert Ingason
útfaraifijónusta vítfararþ jón usta útfaraiþjónusta útfaraiþjónusla
Sfíeyczr ancffáí £er aS fiöncfum
Onnumsí aíía þœ/ti útj-ararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Vinir okkar afabamanna voru ætíð
velkomnir í Furulundinn og kallaði
hann þá flesta Bjössa, einnig kallaði
hann tvo af okkur oft Bjössa og
Brand þegar við vorum litlir. Afi var
mjög hreinskilinn og sagði það sem
hann hugsaði. Hann var góður og sér-
stakur og alltaf tilbúinn að taka á
móti afabömunum og grínast.
Við sjáum hann ljóslifandi fyrir
okkur, brosandi, með tóbaksklútinn í
hægri rassvasanum og tóbakið í hin-
um. Þegar við fómm heim stóð hann
við gluggann og veifaði í kveðjuskyni.
Eflaust veifar hann enn brosandi
til okkar, þaðan sem hann er nú
staddur. Og við minnumst hans með
þökk og hlýju og veifum til baka í
huganum.
Afabömin.
„Nóttlaus voraldar veröld þar sem
víðsýnið skín.“ (Stephan G).
Það er Jónsmessa þegar hann
Konni frá Frostastöðum fer í sína
hinstu ferð. Eg var örfárra ára þegar
ég fékk að fara ein í sveitina. Sveitin
er að sjálfsögðu Skagafjörður. Það
fyrsta sem ég sá út um gluggann á
morgnana var Glóðafeykir og bæir í
Út-Blönduhlíð og mikið vorkenndi ég
fólkinu á Frostastöðum. En þegar ég
sá Konna og Helgu skildi ég að bæj-
amafnið hafði ekkert með kulda að
gera. Hlýrra, gestrisnara og betra
fólk er vandfundið. Konni hafði bæði
verið á Laugarvatni og Hólum og
hafði áhuga á öllu. Hann var mjög
ættfróður, las blöðin upp til agna og
vissi allt um pólitík og okkur leiddist
ekki að tala á þeim nótum. Konni
söng í Heimi í áratugafjöld og fáir
held ég hafi lagt kómum til fleiri
söngmenn því þrír af fjórum sonum
Konna og Helgu em í kómum.
Konni minn, þær em margar minn-
ingarnar og allar góðar. Ferðin í
Ábæjarmessu og Merldgilskaffi er
ógleymanleg og þá ekki síður þegar
ég fékk að fara með kómum til Græn-
lands. Húmorinn þinn og glaðværð
þegar ég ræddi við þig ylja um ókom-
in ár. Þegar við hittumst næst verður
umræðan á grænum nótum. Genginn
er sannur Skagfirðingur.
Elsku Helga mín, Lauga, Leifur,
Kolli, Gísli, Bjami og fjölskyldur, guð
veri með ykkur.
„Nú blikar sól á Blönduhlíðarfjöll-
um og blómum skrýðist fell og grand-
in slétt.“ (Kristján frá Gilhaga.)
Blessuð sé minning Konráðs Gísla-
sonar frá Frostastöðum.
Sigurlaug G.
Afabróðir okkar, Konráð Gíslason,
Konni, er dáinn. Þegar andlát góðs
vinar ber að höndum, streyma horfn-
ar minningar fram. Við bræðumir ól-
umst upp á efri hæð gamla hússins á
Frostastöðum en á neðri hæðinni
bjuggu Konni og Helga. Snemma
urðum við heimagangar hjá þeim
hjónum, eyddum ekki minni tíma
niðri hjá þeim en heima hjá okkur. Að
fara niður til Konna og Helgu var
þáttur í daglegu lífi og þangað var
alltaf gott að koma. Konni var alltaf
hress og kátur, mikill húmoristi og
gerði grín að sjálfum sér og öðram.
Báðir fengum við bræðumir okkar
fyrstu kennslu í neftóbakstöku hjá
Konna, þá þriggja eða fjögurra ára
gamlir, hnerraðum hressilega og
uppskáram mikinn hlátur viðstaddra.
Þegar Konni og Helga hættu búskap,
fluttu þau til Varmahlíðar og reistu
sér hús þar. Þangað fórum við bræð-
ur svo nokkram sinnum í heimsókn
og fengum að gista. Þangað var ekki
síðra að koma og alltaf boðið upp á
eitthvert góðgæti. Okkur bræðram
auðnaðist að hitta Konna rétt fyrir
andlát hans. Þá var hann þrotinn að
kröftum en engu að síður brá enn fyr-
ir glettni í augum hans. Hann fylgdist
vel með allt fram í andlátið og gam-
ansemin var aldrei langt undan. Við
kveðjum góðan og sannan bemsku-
vin, þess fullvissir að Konna líður vel
þar sem hann er núna. Aðstandend-
um sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Þorgeir og Teitur frá
Frostastöðum.
• Fleirí minningargreinar
um Konráð Gíslason bíða birtingar
og munu birtast íblaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Hjörtur,
Brynjar og Irís Osk; Gunnar Odds-
son; Ingibjörg Kolka og Jón
Bjarnason; Sigurpáll Arnason.
GUÐMUNDUR
SKÚLASON
Guðmundur
Skúlason húsa-
smíðameistari fædd-
ist á Ísafírði 22. júlí
1921. Hann lést á
sjúkrahúsi ísafjarðar
25. júní sfðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðrún Guðjónsdótt-
ir húsmóðir í Hnífs-
dal, f. 18.júlí 1896, d.
6.júlí 1996, og Skúli
Skúlason kaupmaður
á Ísafírði, Eiríksson-
ar frá Brúnum, f. 10.
júlí 1888, d. 19. apríl 1957. Fóstur-
foreldrar Guðmundar voru Magn-
ea Þorláksdóttir úr Fljótum í
Skagafirði (1888-1974) og Þórður
Guðmundsson smiður úr Skaga-
firði (1884-1972). Systkini Guð-
mundar eru, sammæðra: Sesselja
Elísabet, f. 1925; Níelsína, f. 1927;
Margrét Guðný, f. 1928; Pétur, f.
1930; Finnur, f. 1931; Halldór, f.
1932, d. 2000; Jón Arnar, f. 1933;
Gunnar, f. 1934; og Jóhanna Stella,
f. 1938. Samfeðra eru: Áslaug, f.
1924, d. 2003; og Jón Ásgeirsson
(Skúlason), f. 1928. Fóstursystkini
Guðmundar eru: Þóra, f. 1923, d.
2000; Guðmundur Jóel, f. 1924; og
Rögnvaldur Þór, f. 1927. Auk þess
Anna Sigmundsdóttir, f. 1913, d.
1999, sem einnig var tekin í fóstur
af Magneu og Þórði.
Guðmundur kvæntist 23.12.
1951 Hjördísi Öldu Ólafsdóttur, f.
á ísafirði hinn 16. maí 1927. For-
eldrar hennar voru Guðríður
Brynjólfsdóttir (1891-1969) og
Ólafur Ágúst Halldórsson fisk-
matsmaður (1895-1976). Börn
Guðmundar og Öldu
eru: 1) Guðríður
Brynja, f. 21. ág.
1952, maki Þorlákur
Kjartansson, f. 19.
des. 1952. Synir
þeirra eru: a) Krist-
ján Geir, f. 1974. b)
Viðar, f. 1977. c)
Bjarki, f. 1977. d)
Grétar Ber, f. 1982.
Auk þess átti Þorlák-
ur dóttur áður,
Hörpu, f. 1973. 2)
Ólaftir Þór, f. 13. apr.
1956, maki Hulda Hafsteinsdóttir,
f. 23. des. 1960. Þeirra börn eru. a)
Hjördís Eva, f. 1980. b) Stefán Þór,
f. 1981. c) Árni Björn, f. 1983. d)
Hjörtur, f. 1991. 3) Margrét Anný,
f. 26. mars 1964, fráskilin, börn
hennar eru: a) Erna Lind, f. 1981.
b) Guðmundur Orri, f. 1986. c)
Magni Þór, f. 1989. d) Haukur
Snær, f. 2000. Barnabarnabörn
Guðmundar eru tvö.
Guðmundur gekk í barnaskól-
ann á Isafirði. Hann Iauk búfræði-
námi frá Hólum í Hjaltadal árið
1938. Á ísafirði lærði hann svo
húsasmíði hjá Jóni Sigmundssyni
húsasmíðameistara og lauk síðan
meistaranámi. Lengst af starfaði
Guðmundur við smíðar. Hann
vann í nokkur ár hjá Kaupfélaginu
sem smiður og sá um timburaf-
greiðslu. Þá var hann í mörg ár
smiður hjá Daníel Sigmundssyni.
Síðustu starfsárin vann hann hjá
íshúsfélagi ísfirðinga.
Útför Guðmundar verður gerð
frá fsaljarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Takk fyrir tímann sem með þér við áttum,
tíma sem veitti birtu ogfrið.
Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram,
lýsa upp veg okkar fram á við.
Gefi þér Guð og góðar vættir,
góða tíð eftir kveðjuna hér.
Knn orðstír mun lifa um ókomna daga.
Indælar minningar hjarta okkar ber.
(P.O.T.)
Börnin.
Guðmundur tengdafaðir minn er
látinn eftir erfið veikindi. Guðrún
móðir hans var vinnukona hjá Skúla
föður hans, kaupmanni á Isafirði. I þá
daga þótti vinnukona ekki nógu fin
fyrir kaupmann og varð ekkert úr
sambandi Guðrúnar og Skúla. Guð-
rún veiktist mikið eftir fæðingu Guð-
mundar, fékk mjólkina í blóðið og var
þar að auki einstæð móðir. Fór það
svo að hann var boðinn upp eins og
stundum var gert hér áður fyrr við
böm einstæðra. Þegar Guðmundur
var eins árs og móðir hans búin að
kynnast verðandi eiginmanni sínum
Þorvaldi Péturssyni, þá reyndi hún að
fá hann aftur en það gekk ekki. Fóst-
urforeldrar Guðmundar, Magnea og
Þórður, reyndust honum vel og ólst
hann upp hjá þeim.
En eins og nærri má geta þá hefúr
það verið erfitt fyrir bam og ungling
að alast upp í litlum bæ og faðir hans
þekktur kaupmaður, hafði engin af-
skipti af honum, en hann rak bæði
matvöraverslun og herra- og dömu-
búð auk úraverslunar. Ef Guðmundur
þurfti inn í búð þá lét Skúli sig hverfa
en lét Villa bróður sinn sem alltaf kom
vel fram við Guðmund afgreiða hann.
Á unglingsárum sínum fór Guðmund-
ur í sveit í Fljótin í Skagafirði að bæn-
um Krakavöllum, þaðan sem fóstur-
foreldrarnir vora ættaðir. Hann
ljómaði alltaf er hann talaði um þenn-
an tíma svo það var auðséð að þar hef-
ur honum Kðið vel og átt góðar stund-
ir. Hann fór í bændaskólann á Hólum
í Hjaltadal og útskrifaðist sem bú-
fræðingur, en lauk síðan húsasmíða-
meistaranámi á Isafirði.
Það varð honum mikil gæfa að
kynnast hinni góðu og kærleiksríku
konu, Öldu, sem varð lífsfóranautur
hans og má með sanni segja að hún
hafi staðið þétt við hlið hans í gegnum
lífið og naut hann hennar umönnunar
allt undir það síðasta.
Guðmundur starfaði við smíðar og
var mjög vandvirkur sem eftir var
tekið og varð það til þess að sumir
vildu eingöngu hann til þess að vinna
verk fyrir sig. Sjðustu starfsarin vann
Guðmundur í íshúsfélagi ísfirðinga
sem brýnari.
Hann byggði sér og konu sinni hús
að Seljalandsvegi 8 og árið 1963 fluttu
þau inn og hafa búið þar síðan.
Guðmundur tók ekki bílpróf fyrr en
eftir fimmtugt þannig að þegar böm-
in vora ung þá var það mikið ævintýri
þegar ákveðið var á sunnudegi að
heimsækja Guðrúnu ömmu í Hnífs-
dal. Þá var tekinn leigubíll úteftir sem
sótti þau svo aftur að lokinni heim-
sókn. Og á sumrin var kannski farið
inn í skóg í beijaferð með Malt og
Sínalkó og leikið áður en farið var
heim aftur með bílnum. Þetta era
skemmtilegar minningar. Eftir að bíl-
prófið var komið þá fóra þau Alda og
Guðmundur víða akandi, t.d. í Fljótin
og til Siglufjarðar sem þau höfðu
mikla ánægju af.
Alltaf átti Guðmundur afi bijóst-
sykur eða annað sælgæti í skál fyrir
bamabömin, því hann var mikill sæl-
keri og þurfti amman oft að fela bök-
unarsúkkulaðið svo það yrði ekki búið
þegar þyrfti að nota það. Við sjón-
varpið muna bömin eftir afa sitjandi í
stólnum sínum með nammiskálina í
hæfilegri fjarlægð auk fjarstýringar-
innar.
Að loknu dagsverki er sælt að hvíl-
ast og veit ég að Guðmundur var
tilbúinn til þess að kveðja, með hon-
um er genginn góður maður. Eg vil
þakka Guðmundi fyrir allt á liðnum
áram og bið honum Guðs blessunar.
Hulda Hafsteinsdóttir.
Við þökkum samfylgd á lífsins leið,
þar lýsandi stjömur skína,
og birtan himneska björt og heið
húnboðarnáðinasína.
En alfaðir blessar hvert ævinnar skeið
og að eilífu minningu þína.
(Höf. ók.)
Með kærri þökk fyrir allt, elsku afi.
Guð blessi minningu þína.
Guðmundur Orri,
Magni Þór og Haukur Snær.
• Fleiri minningargreinar
um Guðmund Skúlason bfða birt-
ingar ogmunu birtast íhlaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Erna
Lind; Hjördís Eva, Stefán Þór, Árni
Björn ogHjörtur; (hkar Andri,
Tristan Dagur og Sædís Birta.