Morgunblaðið - 02.07.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005 49
folk@mbl.is
Astralski leikarinn Russell Crowe
segist vera mjúkur maður og
hvetur annað fólk til þess að reyna
að líkjast sér og læra að ná stjórn á
reiði sinni.
Leikarinn, sem
þekktur er fyrir
hlutverk sitt í
myndinni Glad-
iator, var nýlega
handtekinn fyrir
að rífa símtól af
síma og þeyta því
í átt að hótelþjóni
sem hann reidd-
ist. I samtah við þýska. tímaritið TV
Movie sagði Crowe: „Ég er eins
mjúkur maður og mögulegt er.“
Crowe, sem er 41 árs, veitti aðdá-
endum sínum ráð: „Pað hjálpar ekk-
ert að reiðast. Fólk verður að geta
stjórnað skapi sínu og haldið adr-
enalíninu í skefjum."
Crowe ræddi einnig um son sinn
Charles, sem er ársgamall. „Hans
vegna er ég hamingjusamasti maður
í heiminum. Ef ég fengi ekki faðm-
lag frá honum á degi hverjum myndi
mig ekki langa til þess að lifa leng-
ur.“ Hann sagði að hann og Danielle
eiginkona hans hefðu í hyggju að
eignast fleiri böm. „Við viljum eign-
ast fleiri en kannski ekki alveg
strax.“
• • •
Bandaríski söngvarinn Miehael
Jackson hefur falhð frá áform-
um sínum um að flytja frá Banda-
ríkjunum eftir að hann var sýknaður
af ákærum um að
hafa beitt ungan
pilt kynferðislegu
ofbeldi og haldið
fjölskyldu hans
fanginni. Jackson
ætlar þess í stað
að búa áfram á
búgarði sínum,
Neverland, sam-
kvæmt upplýs-
ingum fóður hans, en óstaðfestar
fréttir bárust af því meðan á rétt-
arhöldunum yfir honum stóð að
hann hefði selt búgarðinn.
„Hann átti erfíðar stundir á með-
an réttarhöldin stóðu yflr og talaði
þá þannig,“ segir faðir hans, Joe.
„Ég held hins vegar ekki að hann
muni fara frá Neverland á næst-
unni.“ Þá segir hann söngvarann nú
einbeita sér að því að vera með
börnum sínum og að ná heilsu eftir
réttarhöldin sem hafi reynt mjög á
hann.
Næringaríræðingur, sem Jack-
son-fjölskyldan leitaði ráða hjá, hef-
ur upplýst að hann hafi borðað htið
sem ekkert meðan á réttarhöld-
unum stóð og því lést hættulega
mikið.
• • •
Leikararnir Ben Affleck og
Jennifer Garner gengu í
hjónaband síðastliðinn miðvikudag
og eiga von á sínu fyrsta barni. Al-
veg síðan parið byrjaði saman fyrir
um ári hafa
sögusagnir
um yfirvof-
andi brúð-
kaup og
barneignir
þeirra víða
ratað á síður
slúðurpress-
unnar en það
var fyrst nú
um helgina sem talsmaður
hjónanna gaf frá sér yfirlýsingu og
staðfesti fregnirnar. Olíkt sam-
bandi Afflecks við Jennifer Lopez,
hafa hjónakornin nefnilega reynt
að halda sér fyrir utan sviðsljósið
þegar kemur að fregnum um sam-
bandið.
Brúðkaupið fór að sögn fram á
Parrot Cay í Karíbahafinu.
Þetta er fyrsta hjónaband
Afflecks en Garner var áður gift
leikaranum Scott Foley.
• • •
Leikkonan Brooke Shields hef-
ur svarað ummælum leik-
arans Toms Cruise um að hún
hefði frekar átt að taka vítamín en
þunglyndislyf vegna fæðing-
arþunglyndis sem hún þjáðist af í
kjölfar fæðingar dóttur sinnar.
„Ég ætla að gerast mjög djörf
og slá því fram að herra Cruise
hafi aldrei
þjáðst af fæð-
ingaþung-
lyndi,“ segir
m.a. í grein
Shields sem
birt er í dag-
blaðinu The
New York
Times í vik-
unni.
Þá segir hún ummæli Cruise
vera argasta virðingarleysi við
mæður um allan heim og greinir
frá því að sjálf hafi hún jafnvel
íhugað að fremja sjálfsmorð er
henni leið sem verst.
• ••
Gera á sjónvarpsþáttaröð um
líf Jóhannesar Páls páfa II
þar sem breski leikarinn sir Ian
Holm, sem lék Bilbo Baggins í
Hringadróttinssögu, leikur páfa,
að því er fram
kemur í frétt
BBC.
Þáttaröðin
verður fjög-
urra klukku-
stunda löng
og mun fjalla
um páfa allt
frá námsárum
hans og fram
til andláts hans, en hann lést 2.
apríl 84 ára að aldri. Verður með-
al annars fjallað um tilræðið við
páfa 1981 og baráttu hans við
Parkinson-sjúkdóminn.
Sagnfræðingar Páfagarðs hafa
lesið yfir handritið en kvik-
myndagerðarmennirnir fengu að-
gang að byggingunum við Pét-
urstorgið.
y'
Sorg yfir Hundraðekruskógi
Bangsímon og vinir hans á góðri stund.
LEIKARINN Paul Winc-
hell, sem þekktastur er
fyrir að ljá Tuma tígra,
félaga Bangsúnons, rödd
sína, lést á föstudaginn í
síðustu viku, 73 ára að
aldri. Daginn eftir lést
svo leikarinn John Fied-
ler, sem talað hefur inn á
fyrir Gríslinginn í sömu
teiknimyndum, en hann
var 80 ára.
Þeir Winchell og Fied-
ler ljáðu Tuma og Grísl-
ingnum fyrst raddir sínar
árið 1968 í Ósk-
arsverðlaunateiknimyndinni Winnie
the Pooh and the Blustery Day.
Winchell talaði fyrir Tuma tígur
allt fram til ársins 1999 en síðasta
verk Fiedlers sem Gríslingurinn var
Stóra kvikmynd Gríslingsins (Pig-
let’s Big Movie) sem kom út árið
2003 og Pooh’s Heffalump Movie
sem frumsýnd var í febrúar síðast-
liðnum.
Iceland Express » Concert kynnir í samvinnu við fceland Express og Byfgjuna
ti/l, GJA N
/Hrrtrw a4 Þlus-tal
n
ip
GAUK A STttNG Í KVttLD
F0RSALA VIDINNKANGINN
I
Ekkert Wham og Duran Duran neitt, nú er það bara WIGWAl
Síminn býður á sérstaka kynningartönleika í
Smáralind í dag kl. 16:30
Hljómsveitin tekur vinsælasta lag íslands "In my dreams ( Come on, come on! )
og áritar nýja diskinn sinn fyrir gesti og gangandi. Frítt inn lyrir aiia
% •, k
t^^Ha að þad takyfvi áð btrj-%
“þðð* - ígjörsamlega að verða l-k,
Síminn
Fremst í röðina með
Concert og MasterCard
20% aflsáttur af öllum viðburðum Concert ef greitt er
neð MasterCard á sérstökum MasterCard forsöludegi
<yrtnið ykkur málið é www.mastercard.is/klubbar
Bankastræti 11 - 101 Reykjavík - Sími 511 2255
CONCERT
Ath. Concert getur ekki endurgreitt tónleikamiða. Ölvun ógildir miðann meö ötlu. Öll myndataka og hljóðupptaka stranglega bönnuð. Nánar á www.concert.is