Úrval - 01.04.1976, Page 54
52
MEGRUNARFÆÐI SEM BYGGIST Á NEYSLU
GRÖFGERÐRAR FÆÐU.
ÚRVAL
Útilokaðu neyslu allrar fíngerðrar fæðu, svo sem alls fínmalaðs og
Ibleikts mjöls og mjölafurða og fíngerðs sykurs (einnig fíngerðs
púðursykurs). Neyttu þess í stað hrásykursíróps og hunangs.
Borðaðu grófgerðar fæðutegundir, svo sem heilhveitiafurðir,
trefjamikla ávexti og grænmeti einnig hnetur og fræ, hvenær sem slíkt er
mögulegt.
Neyttu aðeins hóflegs magns af fitulitlu kjöti, fiski og fuglakjöti.
(Eftir að þú byrjar að neyta grófgerðrar fæðu, fínnur þú ekki til löngunar
í mikið kjöt).
Allar mjölvörur, sem þú neytir, ættu að vera gerðar úr heilrúgi,
heilhveiti, sojamjöli, heilmöluðu maísmjöli, heilbókhveitimjöli eða
carobmjöli, án þess að fínmöluðum og meðhöndluðum sykri sé bætt í
þær og með sem allra minnstu innihaldi af feiti.
Forðastu neyslu allra „gervivara”, svo sem gervirjóma út í kaffi og te,
gervisúrrjóma og blátt áfram allra gervivara.
Neyttu ekki neinnar fæðu, sem inniheidur mikinn sykur eða sterkju,
þar á meðal rjómaíss, sælgætis, gosdrykkja, sem í er sykur, að neinna
tilbúinna bökunarvara og kornflaga og annars slíks pakkakorns, sem
sykri hefur verið bætt í í verksmiðjunum.
Það er ekkert rúm fyrir áfenga drykki samkvæmt þessu megrunar-
fæði.... né samkvæmt nokkru öðru megrunarfæði, sem byggir á réttum
læknisfræðilegum forsendum. Vlnandi breytis fljótt I sykur I líkamanum
og grefur algerlega undan áhrifum þessa megrunarfæðis. (Margir þeir,
sem neyta grófgerðrar fæðu, komast að því, að löngun þeirra í áfengi
hefur næstum alveg horfíð að mánuði liðnum).
Borða skyldi ávexti og grænmeti hrátt, ef slíkt er mögulegt. Annars
skyldi slíkt soðið sem allra minnst og þá soðið með fræjum og hýði, sem
næst sínu upprunalega ástandi. Neyttu aðeins nýrra ávaxta.
Nota mjólkurvörur í hófi. Notaðu aðeins hæfilega mikið af feiti og
olíum tii suðu og salatgerðar. Minnkaðu notkun sterks krydds og
annarra sterkra bragðbætiefna.
Fáðu þér tvær teskeiðar af óunnu (grófu) hveitiklíði út I glas af vatni á
undan hverri máltíð.
Fáðu þér matskeiðar af júgurð daglega til þess að hjálpa innyflagerl-
um að breytast I mjólkurgerla.
Drekktu minnst 8 glös af vatni á dag. Trefjar þarfnast vatns, svo að
líkami þinn geti starfað á þann hátt, sem hann á að starfa.