Úrval - 01.04.1976, Page 56
54
URVAL
starfa á, þá mun hann stjórna þyngd
sinni á sjálfvirkan hátt, Þú skalt fara
eftir eftirfarandi reglum til þess að
tryggja góðan árangur:
Gakktu fyrst úr skugga um, að
heilsufar þitt sé gott. Það er nauðsyn-
legt, að þú hafir nýlega fengið
læknisskoðun, áður en þú byrjar á
þessu mataræði. Þeir, sem þjást af
sjúkdómum, sem tengdir eru nær-
ingu, svo sem sykursýki, háum
blóðþrýstingi, hjartasjúkdómum,
pokamyndun á ristli, nýrnasjúkdóm-
um og skyldum kvillum, ættu alls
ekki að breyta um mataræði og taka
að neyta annarrar fæðu en þeir eru
vanir án þess að hafa fyrst fengið
samþykki læknis síns.
Þú skalt fara nákvæmlega eftir
fyrimælum um neyslu grófgerðrar
fæðu. Það er ekki um neinar
undantekningar né „frídaga” að
ræða.
Þú skalt borða hægt. Trefjarnar
verða að fá tíma til þess að taka til sín
vökva, svo að þær geti veitt þér hina
nauðsynlegu fyllingarkennd.
Þú skalt ekki borða nema þú sért
svangur. Margtfólk, sem erofþungt,
lítur á hið venjulega frjálsa mataræði,
þar sem fæðumagn er ekki tak-
markað, eins og eins konar áskorun
um að borða allt hvað af tekur.
Þú skalt vera þolinmóður. Ef þú
neytir þessarar fæðu, geturðu forðast
óþægindi, sem fylgja oft megrunar-
fæði. Það liggur ekkert á. Minnstu
þess, að enda þótt þú léttist aðeins
um 250 grömm á viku, þá gerir það
samtals 13 kíló á ári.
Þú munt verða var við athyglisvert
atriði, hvað mataræði þetta snertir.
Yfirleitt er ekki minnst á neitt magn.
Svo framarlega sem neytt er nóg af
grófgerðum fæðutegundum og í
skynsamlegu magni, þá munu 1—2
aukabollar af grófgerðu korni (all-
bran) eða aukaskammtur af kjöti eða
hýðishrísgrjónum ekki gera mikinn
mun.
Það er líka um hagnað að ræða á
öðrum sviðum. Mestallt ofát orsakast
að minnsta kosti að nokkru leyti af
ástæðum, sem eru tilfinningalegs
eðlis. Streita, kvíði og asi og hraði
daglegs lífs hvetja til ofáts. Grófgerð
fæða virðist valda aukinni hugarró.
Eftir 1—2 vikur virðist draga úr
hvötinni til þess að flýta sér óhóflega
og einnig úr óhóflegri kvíðakennd.
Flestum finnst þá auðveldara að
sofna á kvöldin.
Hvenær sem þú ákveður að grenna
þig, bíður þetta mataræði þér til
hjálpar. En þú verður að gera þér
grein fyrir því, að það er vanabind-
andi. Eðlileg fyllingarkennd, sú
vissa, að líkami þinn starfar loks eins
og hann á að starfa og að þú ert
jafnframt að grennast, allt þetta kann
að gera það að verkum, að það verði
ómögulegt fyrir þig að taka þínar
gömlu matarvenjur upp aftur.
★