Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 13
verkstjóri. Til hans varð ég að sækja upplýsingar um eitt og annað,
er að verkinu laut, sem framundan var, meðal annars um áiit hans
á verkamönnum, sem ráðnir voru. „Þeir eru sumir lítilmenni, -
hálfgerðir Þorlákar,“ - sagði sá lífsreyndi maður, sem ekki kallaði
allt afa sinn eða ömmu.
Ég lagði af stað austur 14. maí, á slóðir, sem mér voru algjörlega
ókunnar, en með mér var kunnugur maður, Jónas Þorsteinsson
múrari úr Reykjavík, og ungur gamansamur piltur, Böðvar Jónsson.
Við vorum gangandi með 3 kerruhesta, sem drógu kerrur fermdar
tjöldum og ýmsum viðleguútbúnaði. Ferðin gekk hægt og rólega,
veðrið var stillt og gott alla leiðina. Gist var á Kolviðarhóli hjá
þeim ágætu rausnarhjónum Sigurði Daníelssyni og Valgerði Þórð-
ardóttur. Næsta dag var haldið áfram ferðinni og gist á myndar-
heimili í Flóanum. Þar gekk um beina gjörvileg og prúð heima-
sæta. Á leiðinni þaðan átaldi Jónas mig í glettni fyrir að hafa
ekki veitt slíku konuefni verðuga athygli. Ég svaraði eitthvað
á þá leið, að hugur minn væri bundinn við verkefnið, sem fram-
undan væri, léti tíma og tilviljun ráða hvenær ég staðfesti ráð
mitt. Varð úr því tali gaman eitt. Jónas var kvæntur, átti ástríka
konu. Var því ábending hans auðskilin.
Að kvöldi þriðja dags var komið á leiðarenda, Ægisíðu. Ferðin
hafði gengið vel og ég haft góð tök á að líta yfir það mikla og
þéttbýla hérað, sem leið okkar lá um, en ég hafði ekki áður augum
litið nema í fjarlægð af sjó. - Nú var ærið verkefni fyrir höndum,
reisa tjöld, taka á móti verkamönnum og skrásetja þá.
Vegna jarðskjálfta á þessu svæði, - aðallega í nánd við Heklu,
- sem gengu yfir viku, áður en ég kom austur, voru flestir verka-
menn, er fyrst voru komnir, lánaðir um stundarsakir þeim bændum,
þar sem mest húshrun varð, til hjálpar að lagfæra, þar sem hús
voru gjörfallin. Var ömurlegt og óhrjálegt yfir það að líta, t. d.
útihús með torfþaki og veggjum úr grjóti og torfi, voru fallin saman
í haug, þar sem grjótið í undirstöðu veggjanna var efst ofan á
öllu saman.
Efnið til brúarinnar var flutt á skipi frá Reykjavík til Eyrar-
bakka, flutningurinn þaðan að brúarstæðinu var greiddur með
ákveðnu gjaldi á hvert kíló af sementi og járni og hvern rúmmetra
Goðasteinn
11