Goðasteinn - 01.09.1966, Side 15
urður Sigurðsson, sem lengi vann við brúargerð eftir það. Vinnu-
hópurinn í heild var lengstum 20 menn. Kunnastir af þeim verka-
mönnum, er ég man og enn munu vera á lífi, eru Finnur Jónsson
listmálari og dr. Björn Karel Þórólfsson skjalavörður. Kaup smiða
var krónur 3,50 og 4,00, en verkamanna kr. 3,25 fyrir 10 vinnu-
tíma dag.
Veðráttan var góð allt sumarið fram að lokum ágústmánaðar.
Vinnan gekk vel án allra óhappa, sem hent geta við slíka vinnu,
engin mistök í verki og engin meiðsli.
Til brúargerðarinnar voru á Alþingi 1911 veittar kr. 45 þúsund, en
ef afgangur yrði af því fé, mátti nota hann til brúargerðar á Hróars-
læk, sem talinn var torfæra á leiðinni austur frá Rangá. Þangað var
sendur 18 manna vinnuflokkur 23. ágúst, er sýnt var, að fé yrði
aflögu í það verk, 18 metra steypta bogabrú. Var því verki nær
lokið 3. september. Vinnu við Rangá lauk í ágústlok. Lengd brú-
arinnar var 92 metrar. Auk landstöpla voru tveir stöplar í ánni.
Brúarvígsla var ákveðin laugardaginn 31. ágúst. Þá athöfn átti
að framkvæma Hannes Hafstein ráðherra, en hann hafði tekið við
ráðherraembættinu í annað sinn þá um sumarið, 24. júlí.
Unnið var að því að skreyta brúna og laga umhverfi hennar dag-
inn áður. Sendu Rangæingar þá tvær hefðarmeyjar, Önnu dóttur
Gríms Thorarensen og Þórhildi dóttur Skúla prófasts í Odda, til
að segja fyrir því verki. Vígsludagurinn skyldi hátíðlega haldinn,
eftir því sem tök voru á.
Dagskrá var ráðgerð þannig:
1. Samkoman sett og stjórnað af Björgvin sýslumanni Vigfússyni.
2. Vígsluræða, Hannes ráðherra Hafstein.
3. Flutt brúarljóð eftir Guðmund skáld Guðmundsson.
4. Minni íslands, Eggert alþingism. Pálsson.
5. Minni héraðsins, Skúli próf. Skúlason.
6. Minni kvenna, Einar alþingism. Jónsson.
Lúðrasveit Reykjavíkur skyldi leika við almennan söng þjóðlög
milli dagskráratriða. Einnig skyldi lúðrasveitin leika fyrir dansi í
lokin, en stór danspallur var útbúinn á hátíðarsvæðinu.
Þrátt fyrir allan undirbúning, fór samkoman gersamlega út um
þúfur veðurs vegna. Snemma morguns gerði kalsa-austanveður með
Goðasteinn
13