Goðasteinn - 01.09.1966, Page 18
komið í áætlun 30. sept. eftir fjögra daga ferð frá Prestsbakka.
Ferðin tók mig 9 daga frá Odda og ég taldi. mig kominn heim. -
Heildarútkoman eftir sumarið 1912 var góðar minningar, sem geymzt
hafa í huga mínum í rúma fimm tugi ára.
Að lokum þetta: Þeir milljónatugir króna, sem nú er varið til
vega og brúargerða með þeim stórvirku vélum, sem að því vinna,
stinga svo í stúf við slíkar framkvæmdir fyrir rúmum fimmtíu árum,
þegar mannshöndin var ein að verki, eins og hér hefur verið sagt
frá, að líkt er sem þær séu komnar óralangt aftur í liðna tíð. Samt
var þá ánægjan yfir unnum sigri á torfærum ekki minni en nú er,
líklega öllu meiri - ef vel er að gáð.
☆ ☆ ☆
Vísa Jóns skálda
Jón Jónsson, Torfabróðir, var kaupamaður í Skarðsseli á Landi
og Gunnarsholti á Rangárvöllum 1820, sína vikuna í hvorum stað.
Þá var uppblástur tekinn að herja á Gunnarsholt. Jón orti þessa
vísu, er hann fór frá Gunnarsholti um helgi:
Verður á morgun vindmor svalt
úr veðra urnis skolti.
Fast og laust til fjandans allt
fer í Gunnarsholti.
Sögn Jóns Árnasonar í Lækjarbotnum.
16
Goðasteinn