Goðasteinn - 01.09.1966, Síða 25
saman fara veðursæld og tilbreytingarík náttúrufegurð, svipmikil
útsýn til hafs og fjalla.
Haustið 1894 giftist Árni Sigríði Sigurðardóttur skipstjóra Símon-
arsonar frá Dynjanda í Arnarfirði í Isafjarðarsýslu, mikilli myndar-
og dugnaðarkonu, er hann kunni vel að meta, enda var sambúð
þeirra, að sögn kunnugra, með ágætum. Þeim hjónum varð eigi
barna auðið, en þau tóku til fósturs þrjú bróðurbörn Sigríðar,
Gústaf Adolph (er dó ungur og fósturfaðir hans harmaði mjög),
Kristínu Sigríði og Elínu. Gengu þau þessum fósturbörnum sínum
algerlega í foreldrastað. En móðir umræddra barna dó frá þeim
ungum, og faðir þeirra fáum árum síðar. Þau Sigríður og Árni ólu
einnig upp að miklu leyti elztu dóttur Elínar, Árníu Sigríði Lillian,
nú Mrs. Robert E. Barnes í Blaine, Wash.
Sigríði og Árna lifa, auk framantaldra fósturdætra þeirra, fjöldi
barna hinna síðarnefndu og barnabarna.
Ennfremur lifa Árna þrjú systkini hans: Jón á Elliheimilinu
„Stafholti" í Blaine; Valgerður (Mrs. Miller) í Victoria, B. C.; og
Margrét (Mrs. Gower) í Duncan, B. C., að ótöldum fjölda systkina-
barna hans, barna þeirra og barnabarna.
Árni Mýrdal var myndarmaður í sjón og hinn geðþekkasti. í grein
um hann í tímaritinu Fróða í Winnipeg, sem séra Magnús J. Skapta-
son gaf út (jan. 1932), er honum lýst á þessa leið: „Árni er góður
meðalmaður á hæð, en allur þrekinn og samsvarar sér ágætlega.
Hann er hvatlegur mjög og fjörlegur, en vöðvar allir sem gerðir
væru af stálfjöðrum einum. Hann er hraustur maður og vasklegri
til fylgdar, en flestir 2 eða 3 aðrir. Ræðinn er hann og skemmtinn
mjög. Bókasafn hans er eitthvert hið vandaðasta sem ég hefi séð
hjá einum manni og yfirgripsmesta. Enda er Árni víðar heima, en
margir aðrir, sem menntaðir kallast".
Þannig kom hann mér einnig fyrir sjónir, þegar fundum okkar
bar fyrst saman fyrir rúmum 30 árum. Hann hélt einnig líkamlegum
kröftum sínum, eins og blaðagreinar hans um ýmis efni í Lögbergi-
Heimskringlu bera órækastan vottinn. Var þetta okkur hjónum
einnig aðdáunarefni, er við komum heim til hans á Point Roberts
í júlílok síðastliðið sumar. Ekki bar seinasta bréf hans til mín,
Goðasteinn
23