Goðasteinn - 01.09.1966, Side 29

Goðasteinn - 01.09.1966, Side 29
Jón R. Hjálmarsson: íslandi allt Það er bjart fyrir augum á íslandi um sólstöðurnar, og í nótt- lausri voraldar veröld þeirra skynjum við til fullnustu þann undra- heim ijóss, lífs og fegurðar, sem náttúra lands okkar hefur upp á að bjóða í fegursta skarti sínu. Skuggar langs vetrar liggja líka svo langt að baki og virðast svo óraunverulegir í birtu hásumarsins, að við höfum næstum gleymt þeim. Við lítum heldur ekki svo mjög um öxl, en horfum gjarna fram móti birtu og yl og fylkjum liði hinnar ungu þjóðar til starfs, náms, leiks og keppni. Æskan er hug- rökk og djörf og hún keppir af einurð og drengskap. Aldrei fer það svo, að allir hljóti viðurkenningu og sigurlaun á opinberum vett- vangi, og það skiptir heldur ekki öllu máli, þótt gott sé. Hitt er mikilsverðara að vera reiðubúinn til að leggja það af mörkum, sem hver og einn getur, og hika ekki við að vera með í leiknum. Það er hið æskilega viðhorf, sem hin unga og frjálsborna þjóð okkar hefur tileinkað sér í ríkum mæli og sýnir sig ljóslega á þessum stað, svo sem svo víða annars staðar við lík eða ólík tækifæri. Það að vera með, leggja sig fram og gera sitt bezta fyrir sjálfan sig, félagið sitt, fólkið sitt og landið sitt, veitir þátttakendum innri gleði og sanna hamingju. Vel má vera, að oft sé það auðveldara og Goðasteinn 27

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.